Grunur er um að bíl, sem hafnaði utan vegar við Krýsuvikurveg með þeim afleiðingum að þrjú ungmenni létust, hafi verið ekið á yfir 220 kilómetra hraða. Íbúar á Völlunum hafa lengi varað við hraðakstri á veginum. Mörg ungmenni voru vitni að slysinu.
Bókun þrjátíu og fimm í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið gæti orðið að dómsmáli á næstunni. Eftirlitsstofnun EFTA undirbýr svokallað samningsbrotamál sem rekið verður fyrir EFTA dómstólnum.
Pútín Rússlandsforseti neitar ásökunum Þjóðverja um árásartilraun í Leipzig í byrjun ágúst. Leiðtogar Evrópusambandsins og NATO lýsa yfir stuðningi við Þjóðverja og segja að árásir sem þessar verði ekki til þess að draga út stuðningi vestrænna ríkja við Úkraínu.
Heiðar Guðjónsson segir ásakanir fjárfesta gegn sér fráleitar. Honum hefur verið stefnt og hann sakaður um að halda upplýsingum frá kaupendum að hlutabréfum hans í Sýn þegar hann hætti sem forstjóri 2022.
Maður er í haldi lögreglu vegna rannsóknar á bruna í nótt í kjallara á Laugavegi sextán sem hýsir Hótel Skjaldbreið og fataverslunina Andrá.
Ný vatnslögn til Vestmannaeyja hefur enn ekki verið þrýstiprófuð. Tjón varð á lögninni í byrjun ágúst.
Þrjú leiktæki hafa verið tekin úr notkun á skömmum tíma á lóð leikskólans á Húsavík. Maður slasaðist um helgina þegar gólf í leikkastala á lóðinni gaf sig.
Toppslagur KR og Víkings Reykjavíkur í gær var best sótti leikur í efstu deild í fótbolta í tæp tólf ár.