Á tónsviðinu

Tónverk Mozarts og Chopins sem fundust 2024

Haustið 2024 fundust á söfnum áður óþekkt tónverk eftir tvo af mestu tónsnillingum sögunnar. Á Tónlistarsafninu í Leipzig fannst Serenaða í C-dúr eftir Wolfgang Amadeus Mozart, verk fyrir tvær fiðlur og bassa. Verkið hefur verið kallað „Ganz kleine Nachtmusik“ (Mjög lítið næturljóð) í stíl við hið fræga tónverk Mozarts „Eine kleine Nachtmusik“ (Lítið næturljóð), en hið nýtundna verk er samið mun fyrr, sennilega á árunum 1766-69. Á Morgan-bóka- og minjasafninu í New York fannst áður óþekktur Vals í a-moll eftir Frédéric Chopin, stuttur vals fyrir píanó. Tónverkin verða bæði flutt í þættinum „Á tónsviðinu“ auk annarra verka eftir tónskáldin. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Birt

26. feb. 2026

Aðgengilegt til

31. maí 2026

Á tónsviðinu

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,