Í sígildri tónlist er algengt að samdir séu kvartettar, tónsmíðar fyrir fjóra flytjendur, eða kvintettar, tónverk fyrir fimm flytjendur. Sjáldgæfara er að samdir séu nónettar, verk fyrir níu flytjendur. Það hafa þó fáein tónskáld gert og í þættinum verða fluttir kaflar úr nónettum eftir 19. aldar tónskáldin Louis Spohr og Louise Farrenc og nónett eftir Heitor Villa-Lobos verður fluttur í heild. Síðastnefndi nónettinn er að vísu ekki alveg í samræmi við regluna um níu hljóðfæri því tónskáldið telur mörg slagverkshljóðfæri sem eitt og bætir þar að auki við heilum kór. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.