Á tónsviðinu

Tvö verk eftir Joseph Haydn

Í þættinum verður sjónum beint tveimur verkum eftir Joseph Haydn sem hafa trúarleg viðurnefni, en eiga þó hugsanlegt ekkert skylt við trúmál. Þetta eru sinfónía nr.49 í f-moll og píanótríó í es-moll Hob. XV/31. Sinfónían hefur viðurnefnið „La Passione", það er segja „Passían" eða „Píslargangan" og var áður talið hinn tregafulli 1. kafli hennar vísaði til píslargöngu Krists, en telja tónlistarfræðingar það misskilningur. Píanótríóið hefur viðurnefnið „Jakobsstiginn" og er þar vísað til frásagnar Biblíunnar af því þegar Jakob dreymdi stiga sem náði til himins og englar gengu upp og niður. Viðurnefnið er komið frá Haydn sjálfum, en tilgangurinn var þó ekki trúarlegur heldur var hann glettast við fiðluleikara nokkurn sem átti stundum í erfiðleikum með háu tónana. Seinni hluti tónverksins fer nefnilega nokkuð hátt upp tónstigann sem Haydn líkti þarna við Jakobsstigann. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Frumflutt

21. mars 2024

Aðgengilegt til

22. júní 2024
Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,