Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Sérstök rannsóknarnefnd verður skipuð til að rannsaka málsatvik í tengslum við snjóflóðið í Súðavík í janúar 1995. Fjórtán létust í flóðinu.
Nefndin hefur eitt ár til verksins. Alþingi samþykkti þetta nýverið. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins lagði rannsóknina til; formaður hennar, Þórunn Sveinbjarnardóttir kom til okkar.
Björn Malmquist fréttamaður í Brussel fjallaði um stjórnmál í Evrópu. Evrópuþingskosningarnar eftir mánuð voru á dagskrá, samstarf Evrópusambandsins og EFTA og Evrópuheimsókn Kínaforseta.
Hundrað ár eru um þessar mundir liðin frá fyrsta hnattfluginu í heiminum. Flugið umhverfis hnöttinn vakti miklar athygli – ekki síst hér á landi – enda áttu vélarnar að hafa viðkomu á Íslandi. Það gerðu þær í ágústbyrjun árið 1924 og var það í fyrsta sinn sem flugvélum var flogið til landsins. Leifur Reynisson sagnfræðingur hefur skoðað sögu hnattflugsins og hann var gestur þáttarins.
Tónlist:
Eivör Pálsdóttir - Remember me.
Lynn, Vera - The white cliffs of Dover.
Vartan, Sylvie - L’amour c’est comme une cigarette.
Stuðmenn, Stuðmenn - Fljúgðu.
Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög þar sem Ronnie Wood kemur við sögu. Lögin eru með Jef Beck Group og Faces auk þriggja laga af fyrstu sólóplötu hans. Lögin sem hljóma í þættinum eru Plynth (Water Down the Drain) með Jeff Beck Group, Flying, Around the Plynth, Stay With Me, Ooh La La og Cindy Incidentally með Faces, Far East Man, I Can Feel The Fire, If You Gotta Make A Fool of Somebody og Mystifies Me af sólóplötum Ronnie Wood.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Fjölmenningarþing var haldið á vegum Reykjavíkurborgar nú um helgina en þingið er mikilvægur vettvangur virkrar umræðu sem snertir á málefnum innflytjenda og fólks af erlendum uppruna. Reykjavíkurborg er fjölmenningarborg og eru um fjórðungur íbúa hennar af erlendum uppruna. Á þinginu var til dæmis varpað fram spurningunum: Fjölmenningarfærni - sitjum við öll við sama borð? Ert þú fjölmenningarfær? Getur góð þýðing á bókmenntum falið í sér inngildingu? Hvernig þróum við samfélagstúlkun í breyttu samfélagi? Íslenska töluð með hreim - hefur það áhrif á samskipti í daglegu lífi? Guðný Bára Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, kom í þáttinn og sagði okkur frá því sem kom fram á þinginu.
Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og vinkill dagsins var lagður við komandi forsetakosningar, frá nokkrum hliðum. Til dæmis hvernig sameiginlegur kynningarþáttur getur haft áhrif á skoðanir þeirra sem hafa kosningarétt, en líka hvaða forsendur við gefum okkur áður en uppáhaldsframbjóðandi er valinn og hvort við séum tilbúin til að breyta um skoðun ef okkar manneskja stendur sig síður en aðrir í kynningu, eða hvort við höldum tryggð við fyrsta val.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Sveinn Sampsted íþróttafræðingur. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Sveinn sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum:
Uppruni (Origin á ensku) e. Dan Brown
Iron Widow e. Xiran Jay Zhao
Eldarnir e. Sigríði Hagalín Björnsdóttur
Barn að Eilífu e. Sigmund Erni Rúnarsson
Andrés Önd Syrpurbækurnar frá Disney
Tónlist í þættinum í dag:
Ef ég hefði vængi / Halli Reynis og Elínrós Ben (Haraldur Reynisson)
Velkomin / Bubbi (Bubbi Morthens)
Vorið er komið / Gísli Rúnar Jónsson (Hallbjörg Bjarnadóttir, texti Jón Thoroddsen)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Mikil örvænting hefur gripið um sig í Rafah á Gaza eftir að Ísraelsher dreifði miðum í morgun þar sem íbúar voru hvattir til að forða sér. Vopnahlésviðræður halda áfram þrátt fyrir yfirvofandi innrás.
Orsök flugslyssins í Þingvallavatni í febrúar 2022 þegar fjórir létust er rakin til viljandi eða óviljandi lendingar á ísilögðu vatninu að mati Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Mannlegir þættir höfðu líklega áhrif í flugslysinu.
Vinna við nýja varnargarða við Grindavík hefst í dag. Þeir verða innan núverandi garða og er ætlað að leiða þunnfljótandi hraun framhjá bænum.
Úrskurðir Landskjörstjórnar um gildi forsetaframboða eru endanlegir jafnvel þótt að að upp komist um fölsun undirskrifta. Halla Hrund Logadóttir mælist áfram með mest fylgi í skoðanakönnunum.
Aðgerðir stjórnvalda vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði kosta ríkissjóð um þrettán milljarða í ár. Þetta kemur fram í frumvarpi til fjáraukalaga sem hefur verið lagt fram á Alþingi.
Talsmaður fernra náttúruverndarsamtaka segir umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vanhæfan í máli Hvammsvirkjunar vegna ummæla sem hann lét falla um stefnu landeigenda gegn ríkinu. Ummælin séu ámælisverð.
Fréttamenn ítalska ríkisútvarpsins eru í sólarhrings verkfalli til að mótmæla afskiptum ríkisstjórnar landsins af fréttaflutningi.
Íslandsmet í bakgarðshlaupi var slegið nú í hádeginu. Þrír hlauparar hafa nú hlaupið meira en 340 kílómetra á rúmum tveimur sólarhringum.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Ósvífnir símasvindlarar hafa komið sér upp árangursríkum aðferðum við að tæma bankareikninga hjá grunlausum eldri borgurum. Þóra Tómasdóttir tók saman umfjöllun Sænska ríkissjónvarpsins um málið.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Fyrir helgi var Netaprent, fyrirtæki í eigu fjögurra Verslunarskólanema, valið fyrirtæki ársins í fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla – JA Iceland. Þetta fyrirtæki, Netaprent, framleiðir þrívíddarprentefni úr notuðum fiskinetum og var eitt þeirra 30 fyrirtækja frá 15 framhaldsskólum sem komust í úrslit og mun taka þátt í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla sem fer fram á Sikiley í sumar. Við forvitnumst um Unga frumkvöðla og Netaprent hér á eftir - tölum við Petru Bragadóttur,framkvæmdastjóra Ungra frumkvöðla, og tvo úr hópnum sem stendur að baki fyrirtækis ársins, þá Andra Clausen og Erik Gerritsen.
Við mælum okkur mót við Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Landverndar, samtökin standa í flutningum og enginn veit hvað átt hefur fyrr en flutt hefur. Saga félagsins spannar rúma hálfa öld og starfsfólk fann við undirbúning flutninganna fjölda kassa með áhugaverðum skjölum - við kíkjum í einn slíkan og ræðum við Þorgerði um áherslur umhverfisverndarhreyfingarinnar fyrr og nú.
Við heyrum málfarsmínútu í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur málfarsráðunautar og í lok þáttar heimsækjum við Þjóðskjalasafn Íslands og fræðumst um rafræna skjalavörslu, þar tekur Haukur Kristófer Bragason á móti okkur.
Tónlist:
ELVIS COSTELLO & THE ATTRACTIONS - Good Year For The Roses.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Við hugum að stolnum bókum, glötuðum, gleymdum og illfáanlegum í þætti dagsins. Ritmálið hefur verið menningarmiðja öldum saman, en allt er þetta viðkvæmt og það þarf að treysta á að handrit og bækur og það sem í þeim stendur geymist. Bækur brenna við 451 fahrenheit, svo mikið er víst. Svo eru það bókaþjófarnir. Við veltum fyrir okkur tilgangi þess að stela bók, hvort sem það er vegna gróða eða söfnunaráráttu.
Við rifjum líka upp innslag um illfáanlega bókaröð. Í ár eru 70 ár frá fyrstu útgáfu háfantasíubóka J.R.R Tolkiens, The Lord of the Rings, Hringadróttinssögu en fyrsta bindið Fellowship of the ring, kom út sumarið 1954. Íslensku þýðingarnar eftir Þorstein Thorarensen komu út á 10. áratugnum en hafa verið nær ófáanlegar síðan, hvers vegna?
Viðmælendur: Dagný Hulda Erlendsdóttir, Guðvarður Már Gunnlaugsson, Friðgeir Einarsson, Björn Thorarenssen, Gunnar Theodór Eggertsson.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Útvarpsfréttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Í Ásmundarsal varpar hönnunarteymið Erindrekar ljósi á notagildi og gæði annarsflokks æðardúns. Íslenski æðardúnninn er fyrir löngu orðin þekktur sem hágæða vara víða um heim en nú vilja ungir hönnuðir, sem einnig eru æðarbændur á Skálanesi í Seyðisfirði, nýta það sem fellur frá við hreinsun á fyrsta flokks æðardúni. Við hittum hönnuðinn og æðarbóndann Signýju Jónsdóttur á sýningunni.
Þorleifur Sigurlásson segir frá tónlistarstefnunni Exotica sem dregur nafn sitt af plötu eftir bandaríska tónlistarmanninn Martin Denny og einkennist af píanóleik, slagverki og fuglaköllum.
Við heimsækjum einnig kirkjugarð í París í þætti dagsins.
Útvarpsfréttir.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla og Karitas ræða við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum.
Umsjón: Embla Bachmann og Karitas M. Bjarkadóttir.
Í þessum þætti af Hvað ertu að lesa? kanna Embla og Karitas bækurnar sem fylgja okkur í hjartanu frá barnæsku. Bók vikunnar er Ég heiti Blíðfinnur en þú mátt kalla mig Bóbó eftir Þorvald Þorsteinsson. Einn stærsti aðdáandi bókanna um Blíðfinn, Ágúst Elí Ásgeirsson, kíkir í heimsókn og bókaormurinn Ásgeir Atli segir hvernig honum fannst bókin. Karitas fer á stjá í útvarpshúsinu og spyr fullorðna fólkið sem vinnur á RÚV hvaða barnabók situr enn í þeim.
Veðurstofa Íslands.
Dánarfregnir.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Tónhjólið
5. maí 2024
Umsjón: Guðni Tómasson
Tónhjólið þessa vikuna er helgað einu tónverki og aðeins einu tónverki, níundu sinfóníu Ludwigs van Beethoven, en 7. maí næstkomandi eru 200 ár liðin frá frumflutningi þessarar óvenjulegu tónsmíðar sem olli straumhvörfum í tónlistarsögunni. Umsjónarmaður segir frá sköpunarsögu verksins og grípur niður í lýsingar á frumflutningnum og daglegu lífi Beethovens. Ennig hljómar í síðari hluta þáttarins Tónlistarrabb Atla Heimis Sveinssonar tónskálds frá árinu 1979 þar sem hann fjallaði um lokakafla verksins, lék tóndæmi og lýsti framvindu kaflans um leið og hljóðritun af honum var leikin.
Tónlistin í þættinum er öll eftir Beethoven og hljómar í brotum:
Brot úr fyrsta og öðrum þætti níundu sinfóníunnar. Pablo Heras-Casado stjórnar Barroksveitinni i´Freiburg.
Jacqueline Du Pré og Daniel Barenboim leika hæga þáttinn úr sellósónötu nr. 5
Murray Perahia leikur Adagio Cantabile úr píanósónötu nr. 8 - Pathetique
Lokakafli níundu sinfóníunnar leikinn og sunginn undir tali Atla Heimis Sveinssonar um hann í Tónlistarrabbi. Óvíst með flytjendur.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Fyrir helgi var Netaprent, fyrirtæki í eigu fjögurra Verslunarskólanema, valið fyrirtæki ársins í fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla – JA Iceland. Þetta fyrirtæki, Netaprent, framleiðir þrívíddarprentefni úr notuðum fiskinetum og var eitt þeirra 30 fyrirtækja frá 15 framhaldsskólum sem komust í úrslit og mun taka þátt í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla sem fer fram á Sikiley í sumar. Við forvitnumst um Unga frumkvöðla og Netaprent hér á eftir - tölum við Petru Bragadóttur,framkvæmdastjóra Ungra frumkvöðla, og tvo úr hópnum sem stendur að baki fyrirtækis ársins, þá Andra Clausen og Erik Gerritsen.
Við mælum okkur mót við Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Landverndar, samtökin standa í flutningum og enginn veit hvað átt hefur fyrr en flutt hefur. Saga félagsins spannar rúma hálfa öld og starfsfólk fann við undirbúning flutninganna fjölda kassa með áhugaverðum skjölum - við kíkjum í einn slíkan og ræðum við Þorgerði um áherslur umhverfisverndarhreyfingarinnar fyrr og nú.
Við heyrum málfarsmínútu í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur málfarsráðunautar og í lok þáttar heimsækjum við Þjóðskjalasafn Íslands og fræðumst um rafræna skjalavörslu, þar tekur Haukur Kristófer Bragason á móti okkur.
Tónlist:
ELVIS COSTELLO & THE ATTRACTIONS - Good Year For The Roses.
Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Fjölmenningarþing var haldið á vegum Reykjavíkurborgar nú um helgina en þingið er mikilvægur vettvangur virkrar umræðu sem snertir á málefnum innflytjenda og fólks af erlendum uppruna. Reykjavíkurborg er fjölmenningarborg og eru um fjórðungur íbúa hennar af erlendum uppruna. Á þinginu var til dæmis varpað fram spurningunum: Fjölmenningarfærni - sitjum við öll við sama borð? Ert þú fjölmenningarfær? Getur góð þýðing á bókmenntum falið í sér inngildingu? Hvernig þróum við samfélagstúlkun í breyttu samfélagi? Íslenska töluð með hreim - hefur það áhrif á samskipti í daglegu lífi? Guðný Bára Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, kom í þáttinn og sagði okkur frá því sem kom fram á þinginu.
Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og vinkill dagsins var lagður við komandi forsetakosningar, frá nokkrum hliðum. Til dæmis hvernig sameiginlegur kynningarþáttur getur haft áhrif á skoðanir þeirra sem hafa kosningarétt, en líka hvaða forsendur við gefum okkur áður en uppáhaldsframbjóðandi er valinn og hvort við séum tilbúin til að breyta um skoðun ef okkar manneskja stendur sig síður en aðrir í kynningu, eða hvort við höldum tryggð við fyrsta val.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Sveinn Sampsted íþróttafræðingur. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Sveinn sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum:
Uppruni (Origin á ensku) e. Dan Brown
Iron Widow e. Xiran Jay Zhao
Eldarnir e. Sigríði Hagalín Björnsdóttur
Barn að Eilífu e. Sigmund Erni Rúnarsson
Andrés Önd Syrpurbækurnar frá Disney
Tónlist í þættinum í dag:
Ef ég hefði vængi / Halli Reynis og Elínrós Ben (Haraldur Reynisson)
Velkomin / Bubbi (Bubbi Morthens)
Vorið er komið / Gísli Rúnar Jónsson (Hallbjörg Bjarnadóttir, texti Jón Thoroddsen)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Lagalisti:
PRINS PÓLÓ - Er of seint að fá sér kaffi núna.
MUMFORD & SONS - Little Lion Man.
Teddy Swims - The Door.
Ásdís, Purple Disco Machine - Beat Of Your Heart.
Løv og Ljón - Ég gef þér allt mitt líf.
Cage the Elephant - Neon Pill.
10CC - I'm Not In Love.
Lorde - Take Me to the River.
HARRY STYLES - Watermelon Sugar.
ROD STEWART - I Don't Want To Talk About It.
MILKY CHANCE - Stolen Dance.
GRAFÍK - Húsið Og Ég.
NÝDÖNSK - Klæddu Þig.
PÍLA - Nobody.
Snorri Helgason - Falleg.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Rúnar Róbertsson.
Í síðustu viku hófu Barnaheill hina árlegu vorsöfnun með sölu á lyklakippum til styrktar starfi samtakanna. Lyklakippurnar eru hannaðar og framleiddar af handverksfólki í Freetown, höfuðborg Síerra Leóne, í Vestur Afríku. Allur ágóði sölunnar rennur til verkefna Barnaheilla sem snúa að vernd gegn ofbeldi á börnum. Við hringdum til Sierra Leóne þar sem framkvæmdastjóri Barnaheilla, Tótla Sæmundsdóttir, er stödd til að taka úr verkefni samtakanna þar.
Neytendasamtökin eru nú á ferð um landið til að efna til samtals um neytendamál við neytendur og sveitarstjórnir vítt og breitt um landið. Samtökin ætla að kynna sér helstu mál sem brenna á fólki á landsbyggðinni og segja frá baráttumálum sínum og þann ávinning sem sterkur hagur neytenda færir fólki, fyrirtækjum og samfélaginu öllu. Breki Karlsson, formaður, Neytendasamtakanna, var á línunni.
Strandveiðar hófust á fimmtudaginn 2. maí. Aðeins er leyfilegt að veiða mánudaga til fimmtudaga, að báðum dögum meðtöldum, og því aðeins einn veiðidagur að baki. Til okkar kom Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, og fórum við yfir veiðitímabilið sem var að hefast. Reglugerð um strandveiðar er nánast óbreytt frá síðasta ári en samkvæmt henni verður aflamagn ekki minna en 10 þúsund tonna af þorski.
Í tilefni af 30 ára afmæli EES-samningsins standa Rannís, utanríkisráðuneytið, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og sendinefnd ESB á Íslandi fyrir þremur viðburðum miðvikudaginn 8. maí til að fagna samstarfinu. Samningurinn var undirritaður 1992 og gekk í gildi 1 janúar 1994. Þau Aðalheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs hjá Rannís og Viktor Stefánsson, stjórnmála- og fjölmiðlafulltrúi Sendinefndar ESB á Íslandi, komu til að ræða þessi tímamót.
Við litum yfir íþróttir helgarinnar og vikunnar framundan með Einari Erni Jónssyni.
Annað kvöld fara fram tónleikar í Háskólabíói þar sem hópur listafólks kemur saman til þess að sýna samstöðu með þeim sem búa við hörmulegar aðstæður á Gaza. Allur ágóði af tónleikunum rennur til mannúðaraðstoðar á Gaza, þar sem þörfin er mest, með aðstoð frá Rauða krossinum og UNICEF á Íslandi. Til að segja okkur meira komu til okkar mæðgurnar Elísabet Eyþórsdóttir og Ellen Kristjánsdóttir.
Lagalisti:
Una Torfadóttir - Yfir strikið
Fleetwood Mac - As Long As You Follow
Freddie Mercury - The Great Pretender
Elín Ey - Ekkert mál (Hljómskálinn)
The Mavericks - Dance The Night Away
Á móti sól - Okkur líður samt vel
Kasper Björke, Systur og Sísý Ey - Conversations
White Town - Your Woman
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Einar Örn Jónsson sem oftast talar um íþróttir mætti að þessu sinni til að segja frá gullárinu sínu í liðnum Gullárið, það var árið 1996. Ellen Kristjánsdóttir og Elísabet Eyþórsdóttir sögðu frá samstöðu tónleikum og Doddi kom með fullkomna þýðingu á enska orðinu banger!
Lagalisti þáttarins:
VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON - Þú átt mig ein.
BOB MARLEY AND THE WAILIERS - I Shoot The Sheriff.
Travis hljómsveit - Gaslight.
U2 - Where The Streets Have No Name.
Rodrigo, Olivia - Obsessed.
Kool and The Gang - Summer madness.
SLY AND THE FAMILY STONE - Thank You (Falenttinme Be Mice Elf Agin).
MADONNA - La Isla Bonita.
SIMON & GARFUNKEL - Homeward Bound.
Grande, Ariana - We can't be friends (wait for your love).
Fontaines D.C. - Starburster.
EMMSJÉ GAUTI - Þúsund hjörtu.
STJÓRNIN - Hamingjumyndir.
Swift, Taylor, Post Malone - Fortnight.
Terrell, Tammi - Ain't no mountain high enough.
BOTNLEÐJA - Hausverkun.
MAUS - Égímeilaðig.
GUS GUS - Polyesterday.
LENNY KRAVITZ - Fly Away.
LED ZEPPELIN - Whole Lotta Love.
LEAVES - Breathe.
WOMACK & WOMACK - Teardrops.
Systur, Bjørke, Kasper, Sísý Ey Hljómsveit - Conversations.
ÁSGEIR TRAUSTI - Hærra.
Cyrus, Miley, Beyoncé - II MOST WANTED.
IGGY POP - Lust For Life.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Sjalið.
Friðrik Ómar Hjörleifsson - Svefninn laðar.
Williams, Pharrell, Mumford and Sons - Good People.
Pale Moon - Spaghetti.
ALANIS MORISSETTE - Ironic.
Jón Jónsson - When You're Around.
Kristín Sesselja - Exit Plan.
CAGE THE ELEPHANT - Come a Little Closer.
PEARL JAM - Elderly woman behind the counter in a small town.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Mikil örvænting hefur gripið um sig í Rafah á Gaza eftir að Ísraelsher dreifði miðum í morgun þar sem íbúar voru hvattir til að forða sér. Vopnahlésviðræður halda áfram þrátt fyrir yfirvofandi innrás.
Orsök flugslyssins í Þingvallavatni í febrúar 2022 þegar fjórir létust er rakin til viljandi eða óviljandi lendingar á ísilögðu vatninu að mati Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Mannlegir þættir höfðu líklega áhrif í flugslysinu.
Vinna við nýja varnargarða við Grindavík hefst í dag. Þeir verða innan núverandi garða og er ætlað að leiða þunnfljótandi hraun framhjá bænum.
Úrskurðir Landskjörstjórnar um gildi forsetaframboða eru endanlegir jafnvel þótt að að upp komist um fölsun undirskrifta. Halla Hrund Logadóttir mælist áfram með mest fylgi í skoðanakönnunum.
Aðgerðir stjórnvalda vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði kosta ríkissjóð um þrettán milljarða í ár. Þetta kemur fram í frumvarpi til fjáraukalaga sem hefur verið lagt fram á Alþingi.
Talsmaður fernra náttúruverndarsamtaka segir umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vanhæfan í máli Hvammsvirkjunar vegna ummæla sem hann lét falla um stefnu landeigenda gegn ríkinu. Ummælin séu ámælisverð.
Fréttamenn ítalska ríkisútvarpsins eru í sólarhrings verkfalli til að mótmæla afskiptum ríkisstjórnar landsins af fréttaflutningi.
Íslandsmet í bakgarðshlaupi var slegið nú í hádeginu. Þrír hlauparar hafa nú hlaupið meira en 340 kílómetra á rúmum tveimur sólarhringum.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Útvarpsfréttir.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Útvarpsfréttir.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Sultan er 30 mínútna lagalisti settur saman fyrir þig í hverri viku. Hlustaðu á Sultuna í útvarpinu eða í spilaranum þegar þér hentar. Á mánudögum er sulta dagsins soul, jazz og annað sem grúvar.
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Útvarpsfréttir.
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Tónlist að hætti hússins.