Fjallað um höfunda ýkju- og lygasagna fyrri tíma. Sjónum er beint að Lúkíanosi frá Samósata sem var uppi í Grikklandi á 2. öld. Fluttir eru nokkrir kaflar úr verkum Lúkíanosar, í þýðingu Arthurs Björgvins Bollasonar og úr Lofi lyginnar eftir Þorleif Halldórsson frá Dysjum á Álftanesi sem samin var á 18. öld.
Lesari með umsjónarmanni er Svala Arnardóttir.
Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason.
Seinni þáttur
Í þættinum er fjallað um höfunda ýkju- og lygasagna fyrri tíma. Þar á meðal Lúkíanos frá Samósata en hann var uppi í Grikklandi á 2. öld. Sagt er frá þeim ferðalögum sem hann sendi sögupersónur sínar í til tunglsins. Þá er vikið að sams konar reisum Münchhausens baróns frá Bodenwerder í Þýskalandi og ævintýrum barónsins á tunglinu. Allt þetta er kryddað með heimspekilegum vangaveltum Þorleifs Halldorssonar, af Álftanesi, um lygina.
Lesari með umsjónarmanni er Svala Arnardóttir.
Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason
(Áður á dagskrá 1996)
Veðurstofa Íslands.
Mánudaginn 5. apríl 1976 mætti 27 ára gamli bréfberinn Bo Jansson ekki í vinnu á pósthúsi í Stokkhólmi þar sem hann starfaði. Hann lét ekki heldur vita af sér eða tilkynnti sig veikan. Bosse hafði alltaf mætt samviskusamlega til vinnu svo samstarfsmenn fengu samstundis áhyggjur af að eitthvað væri ekki eins og það ætti að vera. Þegar lögreglan athugaði málið eftir dúk og disk og braust inn í íbúð Bosse var allt í röð og reglu en hann var hvergi sjáanlegur, hann virtist hafa gufað upp.
Umsjón: Þórdís Gísladóttir.
Samsetning og framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Leitin af bréfberanum Bosse Jansson fer hægt af stað og ýmsar brotalamir við rannsókn málsins koma í ljós. Bosse hafði mikinn áhuga á öllu sem viðkom Albaníu og það höfðu hugsjónarík ungmenni á Íslandi líka.
Í þættinum heyrist í þeim Önnu Kristínu Kristjánsdóttur, Hjálmtý Heiðdal, Hlín Agnarsdóttur, Sigrúnu Huld Þorgrímsdóttur og Sumarliða Ísleifssyni.
Umsjón: Þórdís Gísladóttir.
Klipping og framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna eru Davíð Stefánsson formaður Varðbergs, Bjarni Már Magnússon lagaprófessor og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar. Þau ræddu forsetakosningar, öryggis- og varnarmál, alþjóðamál og stöðu þingmála á Alþingi.
Umsjón: Höskuldur Kári Schram.
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Útvarpsfréttir.
Ekkert lát er á kvikusöfnun undir Svartsengi. Næsta eldgos gæti orðið stærra og gosprungan opnast á nýju svæði, jafnvel nær Grindavík.
Ísraelsher segist hafa gert yfir sjötíu árásir á Gaza á síðasta sólarhring. Hjálpargögn eru farin að berast um flotbryggju sem dregin var að strönd Gaza í gær.
Katrín Jakobsdóttir hefur endurheimt forskot sitt á Höllu Hrund í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Stjórnmálafræðingur segir fylgisaukningu Höllu Tómasdóttur marktæka.
Úkraínuforseti segir að herinn hafi aðeins um fjórðung vopna sem til þarf að verjast árásum Rússa og viðurkennir að fáliðaður herinn skorti baráttuþrek.
Dómsmálaráðherra harmar andlát fanga á Litla-Hrauni og segir erfitt að tryggja öryggi fanga við núverandi aðstæður. Heildarendurskoðun á fangelsismálakerfinu sé í pípunum.
Kosning utan kjörfundar fyrir forsetakosningarnar lauk í Svíþjóð á hádegi. Fréttastofa leit við á kjörstað í Gautaborg.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Stríðið í Súdan er stundum kallað gleymda stríðið en áralöng átök hafa valdið því að stór hluti súdönsku þjóðarinnar er á barmi hungursneyðar. Ógnarmargir íbúar þessa þriðja stærsta lands Afríku er á flótta en það hafa aldrei áður verið jafn margir á flótta innan eigin lands á heimsvísu. Það eru alls um 75,9 milljónir jarðarbúa og talsvert hefur fjölgað í þessum hópi undanfarið ár. Aukningin skrifast fyrst og fremst á tvennt, stórauknar árásir Ísraelshers á Gaza-ströndina síðan síðasta haust og svo borgarastríð í Súdan sem staðið hefur yfir í heilt ár. Birta kynnti sér átökin og talaði við Adjaratou Fatou Ndiaye, sem er sendifulltrúi UN Women í Súdan.
Svo fjöllum við um fegurðarsamkeppnir. Það kom á óvart og vakti mikla athygli þegar sigurvegarar tveggja fegurðarsamkeppna í Bandaríkjunum sögðu sig frá hlutverkinu með aðeins nokkurra daga millibili. Þessar afsagnir hafa leitt af stað umræðu um vinnuumhverfið sem stúlkunum er boðið upp á á vegum fyrirtækisins Miss Universe, sem rekur báðar keppnirnar. Ásakanir hafa komið fram um að konunum sé bannað að tala um ákveðna hluti, stjórnun innan fyrirtækisins sem reki fegurðarsamkeppninnar sé afar ábótavant og að þar séu jafnvel sýndir eineltistilburðir. Hallgrímur Indriðason fer yfir þetta allt með góðri aðstoð konu með reynslu úr þessum heimi, Elísu Gróu Steinþórsdóttur.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var það Kamilla Kjerúlf lögfræðingur, barnabókarithöfundur og saksóknarfulltrúi hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Kamilla talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Undir yfirborðinu e. Freida McFadden
Þú sérð mig ekki e. Evu Björg Ægisdóttur
DJ Bambi e. Auði Övu Ólafsdóttur
Sjö systur e. Lucinda Riley
Harry Potter bækurnar e. JK Rowling
Ungfrú Ísland e. Auði Övu Ólafsdóttur
The Hunger Games serían e. Suzanne Collins
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Kristín Þóra Haraldsdóttir hefur fengist við allskonar músík með allskonar hljómsveitum en mest með Helga og hljóðfæraleikurunum og Mógil. Þjóðlagatónlist hefur staðið henni nærri, en á síðustu árum hefur hún aðallega samið sinfóníska tónlist og sviðs- og kvikmyndatónlist.
Lagalisti:
Solo Acoustic Vol. 14 - Night
Korriró - Tungustapi
Bóðhófnir - Lán þitt engu líkt
Bóðhófnir - Ég lá ein
Óútgefið - Touch
Óútgefið - Harmur
Óútgefið - Stigninger og fall
Helga Novak, Ísland, Austur-Þýskaland og Stasi.
Í þáttunum er brugðið upp mynd af sögu íslenskra námsmanna í Austur-Þýskalandi og fjallað um aðferðir Stasi við að njósna um þá. Sérstaklega er fjallað um austurþýska - síðar íslenska - rithöfundinn Helgu Novak, sem átti í senn ævintýralegt og átakanlegt lífshlaup.
Umsjón: Björn Teitsson og Helgi Hrafn Guðmundsson.
Aðstoð við dagskrárgerð: Guðni Tómasson.
Helga Novak, Ísland, Austur-Þýskaland og Stasi.
Í þáttunum er brugðið upp mynd af sögu íslenskra námsmanna í Austur-Þýskalandi og fjallað um aðferðir Stasi við að njósna um þá. Sérstaklega er fjallað um austurþýska - síðar íslenska - rithöfundinn Helgu Novak, sem átti í senn ævintýralegt og átakanlegt lífshlaup.
Lesarar: Broddi Broddason og Guðrún Sóley Gestsdóttir.
Umsjón: Björn Teitsson og Helgi Hrafn Guðmundsson.
Aðstoð við dagskrárgerð: Guðni Tómasson.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Gyrðir Elíasson hlaut í vikunni ljóðabókabókaverðlaunin Maístjörnuna fyrir ljóðabókatvennuna Meðan glerið sefur og Dulstirni. Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn veita verðlaunin árlega fyrir útgefna ljóðabók. Verðlaunin, Þau var afhent í áttunda sinn við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni og við ræðum stuttlega við verðlaunahafann.
Er brátt kominn tími til að kveðja genið? Það er stór spurning sem hvílir yfir í síðari hluta þessa þáttar. Öld gensins eftir Evelyn Fox Keller kom út í íslenskri þýðingu Kristjáns G. Arngrímssonar í Lærdómsritröð hins íslenska bókmenntafélags síðasta haust. Keller var einn fremsti vísindasagnfræðingur, heimspekingur og hugsuður samtímans sem nálgaðist vísindin af sterkri réttlætiskennd og heiðarleika. Skúli Skúlason líffræðingur og prófessor við háskólann á hólum skrifar inngang að bókinni og kemur til okkar í lok þáttar og segir okkur betur frá erfðavísindum á tímamótum.
Viðmælendur: Gyrðir Elíasson og Skúli Skúlason.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Í þessum þáttum er fjallað um bandarískar sönggyðjur allt frá því að Bessie Smith og hinar kröftugu blússöngkonur hófu að hljóðrita með djasshljómsveitum til helstu djasskvenna okkar tíma einsog Dee Dee Bridgewater. Billie Holliday, Ella Fitzgerald og Sarah Vaughan eru drottningar djassins, en fjöldi annarra söngkvenna gerðu garðinn frægan þótt sjaldnar heyrist þær á öldum ljósvakans, nema þá gospelsöngkonan Mahalia Jackson og söngkonur sem voru á mörkum djass og popps einsog Nina Simone og Diana Washington. Samt sem áður eru þær margar sem ekki eiga skilið að falla í gleymsku og verða kynntar í þessum þáttum jafnt sem hinar frægari.
Umsjón með þáttunum hefur Vernharður Linnet.
(Áður á dagskrá 2008)
Billie Holiday, sem oft var kölluð Lady Day, er merkasta listakona sem rytmísk tónlist hefur eignast. Allt frá því hún hljóðritaði fyrst með stórsveit Benny Goodman árið 1938 þar til hún fór síðast í hljóðver með hljómsveit Ray Ellis 1959, hljóðritaði hún slíkan fjölda meistaraverka að engin þörf er á að endurtaka nokkurt laganna sem leikið var í sex Billie Holiday þáttum sem voru á dagskrá RÚV í upphafi nýrrar aldar.
Veðurstofa Íslands.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Modern Jazz kvartettinn og Jimmy Guiffre leika lögin Fun, Finé og Da Capo og MJQ leikur Sun Dance, Three Windows og Rose Tuc. Charles Mingus leikur lögin Wrap Your Troubles In Blues, Me And You Blues, Mysterious Blues og Body And Soul. Terumasa Hino leikur lögin T For Three, Lava Dance, There's Always Time For Peace, Free Mandela, Sage og Over The Rainbow.
Gunnar Stefánsson fjallar um merkisfólk fyrri tíðar og leitar fanga í bókum og blaðagreinum.
(Áður á dagskrá 2007)
Umsjónarmaður les eftirmælagrein um Karólínu (Líbu) Einarsdóttur, sem birtist í Morgunblaðinu 4. janúar 1963. Höfundur er Guðni Jónsson prófessor.
Sigríður Stephenssen les efni eftir Karólínu Einarsdóttur:
Minningarþátturinn Mósa mín og kvæðið Heiðin mín.
Umsjónarmaður: Gunnar Stefánsson.
Fjallað er um Sturlungasögu og rætt við leika og lærða um söguna, sögusviðið og einstakar persónur frá ýmsum sjónarhornum.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.
(Áður á dagksrá 1984-85)
Í þættinum er flutt jólasaga úr Íslendingasögu Sturlu Þórðarsonar. Segir þar frá herför Órækju Snorra til föðurhefnda á jólum og bardaganum í Skálholti 2. janúar 1242. Lestur Helga Hjörvar er uppistaðan í þættinum.
Lestur úr tímatali: Kristbjörg Kjeld.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.
Veðurstofa Íslands.
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan handfjatlar gamla appelsínugula barnaplötu frá 1969 með mynd af manni á axlaböndum, og rifjar upp vísurnar um Gutta og Ara eftir Stefán Jónsson barnakennara, í flutningi Bessa Bjarnasonar leikara. Bessi bregður sér einnig í hlutverk Mikka refs og Jónatans ræningja, í brotum úr barnaleikritum Thorbjörns Egner, Dýrunum í Hálsaskógi og Kardemommubænum, sem komu út á hljómplötum á árunum 1967 og 70. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna eru Davíð Stefánsson formaður Varðbergs, Bjarni Már Magnússon lagaprófessor og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar. Þau ræddu forsetakosningar, öryggis- og varnarmál, alþjóðamál og stöðu þingmála á Alþingi.
Umsjón: Höskuldur Kári Schram.
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Útvarpsfréttir.
Tónlist af ýmsu tagi.
Kristján Freyr stekkur í skó Felix Bergssonar, rabbar við hlustendur í morgunsárið og spilar huggulega tóna sem hæfa laugardagsmorgnum. Hin bráðskemmtilega Fimma er á sínum stað þar sem góðir gestir segja frá fimm skemmtilegum atriðum sem hafa breytt lífi þeirra
Umsjón: Salka Sól Eyfeld.
Útvarpsfréttir.
Ekkert lát er á kvikusöfnun undir Svartsengi. Næsta eldgos gæti orðið stærra og gosprungan opnast á nýju svæði, jafnvel nær Grindavík.
Ísraelsher segist hafa gert yfir sjötíu árásir á Gaza á síðasta sólarhring. Hjálpargögn eru farin að berast um flotbryggju sem dregin var að strönd Gaza í gær.
Katrín Jakobsdóttir hefur endurheimt forskot sitt á Höllu Hrund í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Stjórnmálafræðingur segir fylgisaukningu Höllu Tómasdóttur marktæka.
Úkraínuforseti segir að herinn hafi aðeins um fjórðung vopna sem til þarf að verjast árásum Rússa og viðurkennir að fáliðaður herinn skorti baráttuþrek.
Dómsmálaráðherra harmar andlát fanga á Litla-Hrauni og segir erfitt að tryggja öryggi fanga við núverandi aðstæður. Heildarendurskoðun á fangelsismálakerfinu sé í pípunum.
Kosning utan kjörfundar fyrir forsetakosningarnar lauk í Svíþjóð á hádegi. Fréttastofa leit við á kjörstað í Gautaborg.
Atli Már Steinarsson rabbar við hlustendur og leikur létta tónlist.
Mikið óskaplega var gaman hjá okkur í dag, Steve Winwood, Stevie Wonder og fleiri sem áttu afmæli í vikunni, ásamt aragrúa af klassík sem var gefin út um þetta leyti í gegnum tíðina.
Lagalisti:
HAUKUR MORTHENS - Hæ Mambó.
STEVE WINWOOD - Valerie.
HERBERT GUÐMUNDSSON - Can't Walk Away.
STEVIE WONDER - Higher Ground.
Flowers - Glugginn.
STJÓRNIN - Láttu Þér Líða Vel.
SPILVERK ÞJÓÐANNA - Njáll og Bergþóra.
MUGISON - Mugiboogie.
FREE - All Right Now.
BEACH BOYS - God Only Knows.
MOBY - Porcelain.
Missy Elliott - Get ur freak on.
XXX Rottweiler hundar - Þér er ekki boðið.
BEYONCÉ feat. JAY Z - Crazy In Love.
ERIC PRYDZ - Call On Me.
MARK RONSON feat. AMY WINEHOUSE - Valerie.
DAVID BOWIE - Heroes.
QUEEN - Bohemian Rhapsody.
Ragnhildur Gísladóttir - Hvað Um Mig Og Þig?.
RADIOHEAD - Fake Plastic Trees.
Adele - Rolling In The Deep.
EDWIN STARR - War.
FLEETWOOD MAC - Dreams.
A-HA - Take On Me.
BRITNEY SPEARS - Toxic.
The Jimi Hendrix Experience - Purple Haze.
BON JOVI - Livin On A Prayer.
BILLY JOEL - Piano Man.
PRINCE - When Doves Cry.
ÞURSAFLOKKURINN - Nútíminn.
JEFFERSON AIRPLANE - Somebody To Love.
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Ábyggilega.
JOURNEY - Don't Stop Believin'.
ROLLING STONES - (I Can't Get No) Satisfaction.
STEVIE NICKS - Edge Of Seventeen.
THE POLICE - Message In A Bottle.
CREEDENCE CLEARWATER REVIVAL - Proud Mary.
DONNA SUMMER - Hot Stuff.
Bridges, Alicia - I love the nightlife.
BARRY WHITE - Your the first, the last, my everything.
Bee Gees - Love you inside out.
SAM & DAVE - Soul Man.
Steve Winwood - Higher Love
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Prins Póló fer niðrá strönd, Jónsi fer sóló, Ensími gefur heilræði í aldanna ró og allir eru að fá sér með Blaz Roca og Ragga Bjarna. Hvanndalsbræður vilja vera vinsælir og frægir, Friðrik Dór er alveg með'etta en Pollapönkarar hringja á vælubílinn. Elíza Newman kennir útlendingum að segja Eyjafjallajökull, Hljómsveitin Ég býður upp á Lúxus upplifun, en það geta ekki allir verið Gordjöss á Diskóeyjunni.
Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
Meðal viðmælenda í þriðja hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2010 eru Svavar Pétur Eysteinsson, Margeir Ingólfsson, Björk Guðmundsdóttir, Elíza Newman, Jón Þór Birgisson, Róbert Örn Hjálmtýsson, Hrafn Thoroddsen, Franz Gunnarsson, Friðrik Dór Jónsson, Þorkell Máni Pétursson, Erpur Eyvindarson, Ágúst Bent, Bragi Valdimar Skúlason, Páll Óskar Hjálmtýsson, Ingólfur Þórarinsson, Arnar Þór Gíslason, Guðni Finnsson og Haraldur Freyr Gíslason.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Prinspóló - Hakk og spagettí
Prinspóló - Niðrá strönd
Prinspóló - Niðrá strönd ( Jack Schidt & Sexy Lazer remix)
Robin - Hyberballad (Live Polar Awards)
Elíza Newman - Eyjafjallajökull
Jónsi & Alex - Boy 1904
Jónsi - Boy Lilikoi
Jónsi - Go Do
Jónsi - Animal Arithmetic
Jónsi - Sticks and Stones (Live)
Ég - Tíu fingur og tær
Ég - Já þessir vísindamenn
KK - Viltu elska mig á morgun
Lights on the Highway - Leiðin heim
Anna Halldórsdóttir - Hazel Blue
Spilverk Þjóðanna - Egils appelsín
Spilverk Þjóðanna - Tívolí
Hvanndalsbræður - Lala lagið
Hvanndalsbræður - Vinsæll
Ensími - Heilræði
Ensími - Aldanna ró
Friðrik Dór - Hlið við hlið
Friðrik Dór - Leiðarlok (Remix - Ólafur Arnalds)
Friðrik Dór - Hún er alveg með’etta
Blaz Roca & Friðrik Dór - Keyrum þetta í gang
Blaz Roca - Elskum þessar mellur
Blaz Roca & XXX Rottweiler ft. Raggi Bjarni - Allir eru að fá sér
Prófessorinn & Memfismafían - Dýrin á Diskó
Prófessorinn & Memfismafían - Prófessorinn kynnir sig
Páll Óskar, Prófessorinn & Memfismafían - Gordjöss
Robert The Roomate - I’m Loosing you
Ingó & Veðurguðirnir - Ef ég ætti konu
Ingó & Veðurguðirnir - Argentína
Pollapönk - 113 Vælubíllinn
Pollapönk - Pönkafinn
Pollapönk - Ómar Ragnarsson
Friðrik Ómar - Dáinn úr ást
Ragga Gísla - Velkominn Þorri
Haffi Haff - Jealousy
Laddi - Jón Spæjó snýr aftur
Steindinn - Geðveikt fínn gaur
Steindinn - Gull af Mönnum
Steindinn - Djamm í kvöld
Fréttastofa RÚV.
Sérstakur PartyZone þáttur tileinkaður rafdúettnum Kiasmos, en þeir eru komnir á kreik aftur eftir nokkurra ára hlé. Ný breiðskífa væntanleg og tónleikaferð framundan í sumar. Þáttastjórnendur fá þá Janus Rasmussen og Ólaf Arnalds í heimsókn og spjalla við þá um heima og geima. Eðli máli samkvæmt verður öll tónlist þáttarins frá Kiasmos.
Umsjón: Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi Stefánsson.
Spjallað við landann og leikin tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
Fullt af góðum samtölum í þætti kvöldsins og meira að segja nokkrir krakkar sem hringdu inn sem er alltaf gaman.
Ingi Þór lagði land undir fót síðustu helgi og heimsótti Guðmund Bónda, sem var orðið löngu tímabært, norður í Svartárdal. Hann fór ekki einsamall því Sigurveig gamla sem hringir oft í þáttinn slóst í för. Myndir úr heimsókninni eru á Fésbókarsíðu Næturvaktarinnar. Það var aðeins komið inná þá heimsókn í þættinum og meira að segja náði Sigurveig inn í einum símatímanum og þakkaði fyrir ferðina. Eintóm gleði..
Lagalisti kvöldsins:
Una Torfadóttir - Yfir strikið.
OJBA RASTA - Gjafir jarðar.
JACK JOHNSON - Good People.
JACK JOHNSON - Better Together.
Van Halen - Panama.
VIOLENT FEMMES - Blister In The Sun.
THE MAGIC NUMBERS - Love Me Like You.
LJÓTU HÁLFVITARNIR - Lukkutroll.
RAGGI BJARNA OG LAY LOW - Þannig týnist tíminn.
Three Dog Night - Shambala.
KK - Á æðruleysinu.