Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Magnea Sverrisdóttir, djákni, flytur.
Útvarpsfréttir.
Sálmaskáldið séra Valdimar Briem.
Umsjón: Sigríður Ingvarsdóttir.
Lesarar: Sigríður Eyþórsdóttir og Þór Tulinius.
Sigurbjörn Einarsson biskup talar um sálma séra Valdimars.
(Áður á dagskrá 1988)
Útvarpsfréttir.
Fyrri þáttur um Hvítasunnuhreyfinguna á Íslandi.
Umsjón: Pétur Pétursson guðfærðiprófessor.
Lesari: Guðrún Ásmundsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Árið 1913 var Guðbjörg Bjarnadóttir ritstjórafrú á Ísafirði, hamingjusöm í hjónabandinu, vel efnuð og fimm barna móðir. En á þessu eina ári hrundi allt. Eiginmaður Guðbjargar, Kristján H. Jónsson, dó úr krabbameini, allar eigur varð að selja fyrir skuldum og Guðbjörg hafði ekki annað úrræði en að láta fjögur barna sinna í fóstur, hér og þar um landið, og gerast sjálf vinnukona með eitt barnið með sér. Samt missti hún hvorki kjarkinn né lífsgleðina. Guðbjörg var langamma umsjónarmanns þáttarins, Unu Margrétar Jónsdóttur, og í þessum tveimur þáttum segir Una Margrét sögu hennar allt frá því að Guðbjörg fæddist utan hjónabands árið 1877, barn bónda og vinnukonu hans, og þar til hún dó níræð að aldri árið 1967.
Lesarar: Hanna María Karlsdóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Gunnar Hansson.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Helga Novak, Ísland, Austur-Þýskaland og Stasi.
Í þáttunum er brugðið upp mynd af sögu íslenskra námsmanna í Austur-Þýskalandi og fjallað um aðferðir Stasi við að njósna um þá. Sérstaklega er fjallað um austurþýska - síðar íslenska - rithöfundinn Helgu Novak, sem átti í senn ævintýralegt og átakanlegt lífshlaup.
Umsjón: Björn Teitsson og Helgi Hrafn Guðmundsson.
Aðstoð við dagskrárgerð: Guðni Tómasson.
Helga Novak, Ísland, Austur-Þýskaland og Stasi.
Í þáttunum er brugðið upp mynd af sögu íslenskra námsmanna í Austur-Þýskalandi og fjallað um aðferðir Stasi við að njósna um þá. Sérstaklega er fjallað um austurþýska - síðar íslenska - rithöfundinn Helgu Novak, sem átti í senn ævintýralegt og átakanlegt lífshlaup.
Lesarar: Broddi Broddason og Guðrún Sóley Gestsdóttir.
Umsjón: Björn Teitsson og Helgi Hrafn Guðmundsson.
Aðstoð við dagskrárgerð: Guðni Tómasson.
Guðsþjónusta.
Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari.
Séra Eiríkur Jóhannsson predikar.
Organistar: Björn Steinar Sólbergsson, Matthías Harðarson og Steinar Logi Helgason.
Kór Hallgrímskirkju, stjórnandi Steinar Logi Helgason.
Nýtt kórorgel vígt, frumflutningur á nýjum verkurm eftir Heiðar Inga Þorsteinsson og Báru Grímsdóttur.
Fyrir predikun:
Innganga: Canticum Novum. Lag: Hreiðar Ingi Þorsteinsson. Texti: úr Sálmi 98.
Sálmur 265: þig lofar, faðir, líf og önd. Lag: Nicolas Decius. Text: Sigurbjörn Einarsson.
Veni Sancte Spiritus. Höfundur: Bára Grímsdóttir.
Sálmur 170: Leiftra þú, sól. Lag: Jón Ásgeirssson. Texti: Sigurbjörn Einarsson.
Eftir predikun:
Á hvítasunnudag. Lag: Finnur Karlsson. Texti: Einar Sigurðsson í Eydölum.
Sálmur 496a: Gegnum Jesú helgast hjarta. John F. Wade. Texti: Hallgrímur Pétursson.
Guð helgur andi, heyr oss nú. Lag: Martin Luther. Texti: Helgi Hálfdándarson. Útsetning: Róbert A. Ottóson.
Nun bitten wir den Heiligen Geist eftir Dietrich Buxtehude.
Sálmur 165: Skín á himni skír og fagur (1. og 5. vers). Lag: Philipp Nicolai. Texti: Valdimar Briem.
Eftirspil: Ciacona í B-dúr eftir Johann Bernhard Bach.
Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Jón Þór Birgisson er vel þekktur tónlistaráhugafólki sem Jónsi í Sigur Rós. Jónsi hefur áratugum saman starfað þvert á listmiðla og unnið að alls kyns listsköpun auk tónlistarinnar með sinni heimsfrægu hljómsveit. Nú undirbýr hann nýja einkasýningu í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur sem opnuð verður 1. júní næstkomandi, á fyrsta degi Listahátíðar í Reykjavík. Í þættinum er rætt við Jónsa um lífið og listina, sem getur tekið á sig myndir ljóss og skugga, torræðra hljóða, ilms og alls kyns ruglunar í rýmisskynjun áhorfandans.
Umsjón: Guðni Tómasson.
Á höfuðborgarsvæðinu eru tæplega þúsund strætóskýli. Í Beðið eftir strætó er fjallað um þessar litlu byggingar sem eru hreint ekki allar eins. Strætóskýli eiga sviðið og eru jafnvel sviðið.
Í fyrri þætti er rætt um hönnun strætóskýla, útlit, aðbúnað og rekstrarform. Hvað er strætóskýli, af hverju þarf gott skýli að státa? Hvað er einkennandi, hvað er áhugavert og hvað er truflandi við strætóskýli?
Í seinni þættinum er rýnt í ummerki á veggjum strætóskýla, fjallað um tilfinningar sem tengjast þeim og samskipti fólks. Hafa samskipti milli ókunnugra aukist eða minnkað síðastliðin ár? Eru einhverjar óskrifaðar reglur sem gilda á meðan beðið er eftir strætó?
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.
Vasagangan er 90 km gönguskíðakeppni frá Sälen til þorpsins Mora í dölunum í Svíþjóð. Á milli Sälen og Mora er vegur sem er vel hægt að keyra á rúmlega einum klukkutíma en ég ásamt rúmlega 15.000 keppendunum hef ákveðið að borga fúlgur fjár fyrir og ganga þetta á gönguskíðum. Af hverju? Ég veit það ekki alveg.
Umsjón: Gerður Jónsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Vespro della Beate Vergine, Maríuvesper eftir Claudio Monteverdi.
Kammerkórinn Schola Cantorum, sönghópurinn Cantores Islandiae og söngvarar úr Skólakór Kársness syngja með Alþjóðlegu barokksveitinni í Reykjavík og tónlistarhópnum Scandinavian Cornetts and Sackbutts.
Einsöngvarar: Herdís Anna Jónasdóttir, Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir, Benedikt Kristjánsson, Martin Vanbert, Þorkell Helgi Sigfússon, Philip Barkhudarov og Örn Ýmir Arason.
Stjórnandi: Bjarni Frímann Bjarnason.
Hljóðritun frá tónleikum í Eldborg, Hörpu 3. desember í fyrra.
Um hljóðritun sá Georg Magnússon
Umsjón: Guðni Tómasson.
Texti í efnisskrá í umfjöllun: Atli Freyr Steinþórsson.
Kvöldfréttir útvarps
Mánudaginn 5. apríl 1976 mætti 27 ára gamli bréfberinn Bo Jansson ekki í vinnu á pósthúsi í Stokkhólmi þar sem hann starfaði. Hann lét ekki heldur vita af sér eða tilkynnti sig veikan. Bosse hafði alltaf mætt samviskusamlega til vinnu svo samstarfsmenn fengu samstundis áhyggjur af að eitthvað væri ekki eins og það ætti að vera. Þegar lögreglan athugaði málið eftir dúk og disk og braust inn í íbúð Bosse var allt í röð og reglu en hann var hvergi sjáanlegur, hann virtist hafa gufað upp.
Umsjón: Þórdís Gísladóttir.
Samsetning og framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Leitin af bréfberanum Bosse Jansson fer hægt af stað og ýmsar brotalamir við rannsókn málsins koma í ljós. Bosse hafði mikinn áhuga á öllu sem viðkom Albaníu og það höfðu hugsjónarík ungmenni á Íslandi líka.
Í þættinum heyrist í þeim Önnu Kristínu Kristjánsdóttur, Hjálmtý Heiðdal, Hlín Agnarsdóttur, Sigrúnu Huld Þorgrímsdóttur og Sumarliða Ísleifssyni.
Umsjón: Þórdís Gísladóttir.
Klipping og framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir
Veðurstofa Íslands.
Fjallað um höfunda ýkju- og lygasagna fyrri tíma. Sjónum er beint að Lúkíanosi frá Samósata sem var uppi í Grikklandi á 2. öld. Fluttir eru nokkrir kaflar úr verkum Lúkíanosar, í þýðingu Arthurs Björgvins Bollasonar og úr Lofi lyginnar eftir Þorleif Halldórsson frá Dysjum á Álftanesi sem samin var á 18. öld.
Lesari með umsjónarmanni er Svala Arnardóttir.
Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason.
Seinni þáttur
Í þættinum er fjallað um höfunda ýkju- og lygasagna fyrri tíma. Þar á meðal Lúkíanos frá Samósata en hann var uppi í Grikklandi á 2. öld. Sagt er frá þeim ferðalögum sem hann sendi sögupersónur sínar í til tunglsins. Þá er vikið að sams konar reisum Münchhausens baróns frá Bodenwerder í Þýskalandi og ævintýrum barónsins á tunglinu. Allt þetta er kryddað með heimspekilegum vangaveltum Þorleifs Halldorssonar, af Álftanesi, um lygina.
Lesari með umsjónarmanni er Svala Arnardóttir.
Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason
(Áður á dagskrá 1996)
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Cincinnati Pops Orchestra leikur undir stjórn Erich Kunzel Thema úr kvikmyndinni Lawrence of Arabia (1962) eftir Maucice Jarre. David Lean leikstýrði kvikmyndinni.
Skólakór Kársness syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur, lagið Maístjarnan eftir Jón Ásgeirsson, ljóðið er eftir Halldór Laxness. Af plötunni Undir bláum sólarsali frá 1993.
Matin Fröst leikur einleik á klarínettu, Amicizia per clarinetto solo (1981) eftir Ingvar Lidholm (1921-2017).
Hljóðritað í ágúst 1994 í Malmö Concert Hall í Svíþjóð, og kom út á plötunni, French beauties and swedish beasts frá 1994.
Þættir verksins eru:
I. Amabile
II. Drammatico
III. Scherzando
IV. Amabile
Black Swan og Miracle eftir Gyðu Valtýsdóttur, af plötunni Ox frá 2021.
Gyða Valtýsdóttir syngur, leikur á selló og píanó. Með henni leika Alex Sopp á flautur, Doug Wieselman á klarínettur, Aaron Roche, básúnu, Julian Sartorius á trommur og Úlfur Hansson leikur á segulhörpu og sér um forritun.
Martha Argerich leikur á píanó ásamt hljómsveitinni Orchestra della Svizzera italiana undir stjórn Alexander Vedernikov. Þau flytja Píanókonsert í G-dúr eftir Maurice Ravel. Hljóðritun frá frá tónleikum á Lugano hátíðinni í júní 2016.
Þættir verksins eru:
I. Allegramente
II. Adagio assai
III. Presto
Barbörukórinn, undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar flytur Barbara mær, eftir Huga Guðmundsson við ljóð Þórarins Eldjárn. Af plötunni Barbara mær frá 2023.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-05-13
Cincinnati Pops Orchestra - Theme from 'Lawrence of Arabia' (1962).
Skólakór Kársness - Maístjarnan.
Fröst, Martin - Amicizia per clarinetto solo (1981) : 1. Amabile.
Fröst, Martin - Amicizia per clarinetto solo (1981) : 2. Drammatico.
Fröst, Martin - Amicizia per clarinetto solo (1981) : 3. Scherzando.
Fröst, Martin - Amicizia per clarinetto solo (1981) : 4. Amabile.
Gyda - Black swan.
Gyda - Miracle.
Orchestra della Svizzera Italiana, Argerich, Martha - Piano concerto in G : I. Allegramente.
Orchestra della Svizzera Italiana, Argerich, Martha - Piano concerto in G : II. Adagio assai.
Orchestra della Svizzera Italiana, Argerich, Martha - Piano concerto in G : III. Presto.
Barbörukórinn - Barbara mær.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Loksins eru þeir Hillary og Tenzing komnir í grennd við efsta tind jarðar. En þá segja óvæntir erfiðleikar til sín. Verða þeir að snúa til baka eða komast þeir loksins á tind Everest? Já - það vita nú reyndar allir að þeir náðu vissulega markmiði sínu? En er hægt að segja til hvor þeirra var á undan? Og skiptir það máli?
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Er ekki lang skemmtilegast að vaða úr einu í annað, til dæmis úr sjókvíaeldi yfir í drag? Það er að minnsta kosti tilfellið núna og ég vona að þið séuð jafn hrifin af því og ég. Hugsanlega eru þið í sömu stöðu og ég, vitið af eða hafið jafnvel horft á RuPaul’s Drag Race. Svo er auðvitað hægt að fara á sýningar reglulega hér á landi og þið verið svo heppin að sjá eina slíka. En hvað er drag, hver er uppsprettan og hvað gera dragdrottningar við typpið á sér? Ég fékk til mín Sigurð Guðjónsson eða Gógó Starr og við fórum yfir þetta allt, en líka svo margt annað í viðbót
Útvarpsfréttir.
Jón eigrar um akra tónlistarinnar, léttstígur og viljugur með skemmtilega fróðleiksmola í farteskinu.
Íslensk tónlist spilar yfirleitt stórt hlutverk. Þægilegur og laufléttur morgunþáttur í umsjón frumherja Rásar 2.
Umsjón: Jón Ólafsson
Útvarpsfréttir.
Í þessum þáttum mun Þráinn Árni Baldvinsson gítarleikari fjalla um gítarinn frá öllum mögulegum sjónarhornum, kynna hlustendur fyrir áhugaverðum gítarleikurum og spila skemmtilega gítarmúsík.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ýmsir.
Ágúst Bent er ekki bara rappari, því hann er líka leikstjóri, handritshöfundur, kvikmyndatökumaður og klippari! Hann segir frá sínum störfum og sinni reynslu á bak við töldin í þáttagerð og auglýsingagerð.
Rúnar Róberts í huggulegum helgargír og spyr hvernig var helgin og hvernig verður vikan framundan?
Útvarpsfréttir.
Sólóferill súperstjörnunnar Beyoncé spannar tvo áratugi en enginn listamaður hefur oftar verið verðlaunaður í sögu Grammy verðlaunanna. Tónlistarkonan hefur á löngum ferli flakkað á milli tónlistarstíla og sýnt og sannað að hún getur jöfnum höndum glímt við R'n'B, hip hop, rokk, kántrí og klassík. Við förum yfir ávexti Beyoncé, í löngu máli og af mikilli innlifun, og spönnum hennar fjölbreytta feril allt frá Houston, Texas til heimsyfirráða.
Umsjón: Snærós Sindradóttir.
Kvöldfréttir útvarps
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 12. - 19. maí 2024.
Fréttastofa RÚV.
Umsjón: Andrea Jónsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Prins Póló fer niðrá strönd, Jónsi fer sóló, Ensími gefur heilræði í aldanna ró og allir eru að fá sér með Blaz Roca og Ragga Bjarna. Hvanndalsbræður vilja vera vinsælir og frægir, Friðrik Dór er alveg með'etta en Pollapönkarar hringja á vælubílinn. Elíza Newman kennir útlendingum að segja Eyjafjallajökull, Hljómsveitin Ég býður upp á Lúxus upplifun, en það geta ekki allir verið Gordjöss á Diskóeyjunni.
Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
Meðal viðmælenda í þriðja hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2010 eru Svavar Pétur Eysteinsson, Margeir Ingólfsson, Björk Guðmundsdóttir, Elíza Newman, Jón Þór Birgisson, Róbert Örn Hjálmtýsson, Hrafn Thoroddsen, Franz Gunnarsson, Friðrik Dór Jónsson, Þorkell Máni Pétursson, Erpur Eyvindarson, Ágúst Bent, Bragi Valdimar Skúlason, Páll Óskar Hjálmtýsson, Ingólfur Þórarinsson, Arnar Þór Gíslason, Guðni Finnsson og Haraldur Freyr Gíslason.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Prinspóló - Hakk og spagettí
Prinspóló - Niðrá strönd
Prinspóló - Niðrá strönd ( Jack Schidt & Sexy Lazer remix)
Robin - Hyberballad (Live Polar Awards)
Elíza Newman - Eyjafjallajökull
Jónsi & Alex - Boy 1904
Jónsi - Boy Lilikoi
Jónsi - Go Do
Jónsi - Animal Arithmetic
Jónsi - Sticks and Stones (Live)
Ég - Tíu fingur og tær
Ég - Já þessir vísindamenn
KK - Viltu elska mig á morgun
Lights on the Highway - Leiðin heim
Anna Halldórsdóttir - Hazel Blue
Spilverk Þjóðanna - Egils appelsín
Spilverk Þjóðanna - Tívolí
Hvanndalsbræður - Lala lagið
Hvanndalsbræður - Vinsæll
Ensími - Heilræði
Ensími - Aldanna ró
Friðrik Dór - Hlið við hlið
Friðrik Dór - Leiðarlok (Remix - Ólafur Arnalds)
Friðrik Dór - Hún er alveg með’etta
Blaz Roca & Friðrik Dór - Keyrum þetta í gang
Blaz Roca - Elskum þessar mellur
Blaz Roca & XXX Rottweiler ft. Raggi Bjarni - Allir eru að fá sér
Prófessorinn & Memfismafían - Dýrin á Diskó
Prófessorinn & Memfismafían - Prófessorinn kynnir sig
Páll Óskar, Prófessorinn & Memfismafían - Gordjöss
Robert The Roomate - I’m Loosing you
Ingó & Veðurguðirnir - Ef ég ætti konu
Ingó & Veðurguðirnir - Argentína
Pollapönk - 113 Vælubíllinn
Pollapönk - Pönkafinn
Pollapönk - Ómar Ragnarsson
Friðrik Ómar - Dáinn úr ást
Ragga Gísla - Velkominn Þorri
Haffi Haff - Jealousy
Laddi - Jón Spæjó snýr aftur
Steindinn - Geðveikt fínn gaur
Steindinn - Gull af Mönnum
Steindinn - Djamm í kvöld