07:03
Morgunútvarpið
Hjólhýsabyggð í Gufunesið og ópíóðar og ketamín á höfuðborgarsvæðinu

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Kristján Hafþórsson, sem kallar sig stundum Krissa Haff, er á leiðinni í Vinnuskóla Kópavogs í sumar með fyrirlestra um jákvæðni, hugrekki og valdeflingu. Kristján telur að vinnuskólana vanmetna og vill koma jákvæðum skilaboðum til unga fólksins sem þar starfar. Við fengum Kristján til okkar í valdeflandi spjall.

Guðmundur tæknitröll Morgunútvarpsins færði okkur fréttir af nýjustu tækni og vísindum. Vélmenni sem þrífa voru aðal umræðuefnið.

Lokafundur vormisseris í fundaröðinni Heilsan okkar fór fram í Veröld, húsi Vigdísar í síðustu viku. Umfjöllunarefnið var ópíóíðar og verkjalyfjameðferðir í íslensku samfélagi og fjallaði Adam Bauer, réttarefnafræðingur á Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands um ópíóíða og ketamín á höfuðborgarsvæðinu og um greiningu á lyfjaávísunum, fráveitugögnum og fölsuðum lyfjum. Adam kom til okkar ásamt Martin Inga Sigurðssyni, prófessor við Læknadeild HÍ.

Stefnt er að því að hjólhýsabyggðin sem hefur staðið við Sævarhöfða í tvö ár færist í Gufunes. Í borgarstjórn var deilt um þessa ákvörðun þó flestir geti verið sammála um að aðstoðan við Sævarhöfða hafi verið óviðunandi. Geirdís Hanna Kristjánsdóttir býr í hjólhýsi og hún kom til okkar að ræða þetta mál.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,