Útvarp
Sjónvarp
Útvarp
KrakkaRÚV
UngRÚV
MenntaRÚV
Beint
RÁS 1
RÁS 2
RONDÓ
Dagskrá
Leit
Ólátagarður
Þáttur 35 af 160
Birt
1. júní 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Ólátagarður
Griðarstaður grasrótarinnar.
Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Þættir
Þáttur 35 af 160
Hljómsveit fólksins: Gammosíur
Hljómsveitin Gammosíur kíkti í stúdíó 12 og spilaði nokkur lög sem má heyra í þættinum en sveitin sigraði hljómsveit fólksins á Músíktilraunum fyrr í ár. Bjarni Daníel stingur einnig…
Tíunda sóló plata Ægis
Ægir Sindri gaf út sína tíundu sóló plötu að nafninu conditioned by experience 6. maí en platan er búin að velkjast um í höfðinu á honum í um fimm ár. Í þættinum má heyra um gerð plötunnar…
Róshildur - Samferða
Tónlistarkonan Róshildur gefur út sína fyrstu plötu, Samferða. Ólátabelgirnir spjalla við hana um gripinn, útgáfuinnsetninguna hennar og margt fleira.
Upprásin: j. bear & the cubs, Venus Volcanism & Gargan
Á Upprásinni 14. apríl komu fram þau j. bear & the cubs, Venus Volcanism & Gargan . Ólátabelgirnir voru að vana á svæðinu og tóku púlsinn á tónlistarfólkinu þegar það steig af sviðinu.
RVK Noise Fest
RVK Noise Fest er tónlistarhátíð haldin í R6013 sem fagnar hvers kyns óhljóðatónlist. Þórir Georg, stofnandi hátíðarinnar segir frá henni í þættinum en ásamt því eru spilaðar upptökur…
Grýbos
Grýbos er tónlistarverkefni bræðranna Alexanders og Jakobs Grybos. Verkefnið hófst við tilraunastarfsemi í upptökuveri en þróaðist svo yfir í að verða hljómsveit. Sveitin hefur gefið…
Strákurinn fákurinn
Hljómsveitin Strákurinn Fákurinn gaf út sína fyrstu plötu Drengurinn fengurinn núna í lok mars. Það sem einkennir plötuna er að það er aðeins hægt að nálgast hana á vínyl eins og er.
Músíktilraunir 2026
Úrslitakvöld Músíktilrauna átti sér stað á ansi stormasömum laugardegi í Norðurljósasal í Hörpu. Í þættinum tala ólátabelgirnir um upplifunina og tónlistarfólkið ásamt því að spila…
Upprásin: Lindy Lin, Splitting Tongues & Jelena Ciric
Á Upprásinni 10. mars komu fram þau Lindy Lin, Splitting Tongues og Jelena Ciric. Ólátabelgirnir voru að vana á svæðinu og tóku púlsinn á tónlistarfólkinu þegar það steig af sviðinu.
Gluggað í Músíktilraunir 2026
Það er vor í lofti sem þýðir aðeins eitt í garðinum: það er komið að Músíktilraunum! Í tilefni þess er þátturinn tileinkaður því að glugga í hvaða hljómsveitir munu koma fram ásamt…
Upprásin: Laufkvist, glupsk & Anya Shaddock
Á Upprásinni 24. febrúar komu fram grænkubandið Laufkvist, spunasveitin glupsk og söngkonan Anya Shaddock ásamt hljómsveit. Ólátabelgirnir létu sig ekki vanta og tóku púlsinn á tónlistarfólkinu…
Tónlist! Tónlist! Tónlist!
Ólátabelgirnir spila tónlist! tónlist! tónlist! Þá fyrir tilviljun mikið af raftónlist og rokki, ræða stöðuna á hljóðskýinu góða og lokatónleika hljómsveitarinnar World Narcosis.
Tónleikaferðalög með Sunnu Margréti
Í þættinum heyrum við í tónlistarkonunni Sunnu Margréti sem var rétt í þessu að ljúka við tónleikaferðalag í Bretlandi, ásamt því heyrum við nánast alfarið tónlist eftir konur í tilefni…
Þögn
Ólátabelgirnir klæða sig í rokkskóna og spjalla við vestmanneysku hljómsveitina Þögn um stuttskífuna Læti sem þær gáfu nýverið út og reyna að komast að því hvað tómatsósufordómar eiginlega…
Upprásin: Curro Rodríguez, Hoym & Skurðgoð
Fyrsta Upprás ársins 2026 átti sér stað þann 27. janúar þar sem Curro Rodríguez, Hoym og Skurðgoð komu fram. Ólátabelgirnir létu sig af sjálfsögðu ekki vanta og tóku púlsinn á tónlistarfólkinu…
ÞESAL
Teiknimynda hljómsveitin ÞESAL kom og spjallaði við ólátabelgina um hvernig maður heldur uppi stemningu á tónleikum, geimveruna Marens og margt fleira skemmtilegt.
Drýpur og myrkur í garðinum
Ólátabelgirnir demba sér á kaf í myrkrið þar sem skrítin og skemmtileg óhljóð leynast í hverju horni ásamt því að ræða við Bergþóru Kristbergsdóttur um plötu hennar Drýpur sem kom…
Fimm ára afmæli Ólátagarðs
Ólátagarður fagnar fimm ára afmæli sínu með því að smala saman gömlum ólátabelgjum og rifja upp hvernig þátturinn kom til, hvað Andrés sé eiginlega að segja í upphafsstefinu og uppáhalds…
Halidome og gítarkósý á soundcloud
Í þættinum er spjallað systkinin Breka og Sindra í hljómsveitinni Emmu um plötuna þeirra Halidome sem kom út í fyrrasumar. Nýlega var platan tilnefnd í flokknum „best geymda leyndarmálið“…
Upprásar yfirferð 2025
Við ólátabelgirnir tökum yfirferð yfir tónleika Upprásarinnar í Hörpu á árinu sem leið. Við spjöllum um atriðin, tónlistina og upplifun okkar ásamt því að spila tónlist í lifandi flutningi…
Ársuppgjör 2025 & safnplatan Að standa á haus
Í síðasta þætti ársins er litið til baka yfir árið sem er að líða ásamt því að ræða við Mariu-Carmelu um safnplötuna Að standa á haus. Platan inniheldur 14 lög með ungu upprennandi…
Jólátagarður 2025
Jólátabelgirnir láta ekki rigningu og rok stoppa sig frá því að vera í jólaskapi. Eins og vanalega er haldið upp á hálfgerð litlu jól í síðasta Ólátagarðsþætti fyrir hátíðirnar. Já,…
Upprásin: Rakur, Alter Eygló & Geðbrigði
Síðustu Upprásar tónleikar ársins voru þann 2. desember og létu ólátabelgirnir sig ekki vanta. Þar komu fram Rakur, Alter Eygló og Geðbrigði.
Kraumsverðlaunin & Brenglaðir kettir frá Portsmouth
Við kíkjum almennilega á þau sem tilnefnd voru til Kraumsverðlauna og verðlaunahafana ásamt því að tala við forsprakka hljómsveitarinnar BKPM um plötuna þeirra Bíddu Ha?
Dagur íslenskrar tónlistar
Í tilefni degi íslenskrar tónlistar kíkjum við á góða íslenska grasrótartónlist.
Upprásin: MOTET, Turturi & K.óla
Upprásin heldur ótrauð áfram og kvöldið 4. nóvember var engu síðra en þau fyrri. Þar komu fram tvíeykið í hljóð- og ljósasveitinni MOTET og indí poppararnir í hljómsveitinni Turturi…
Kyrsa & Iceland Airwaves off venue
Rokkhljómsveitin Kyrsa skaut upp kollinum snemma í ár og hefur verið virk í grasrótarsenunni síðan. Í þættinum heyrum við hljóðið í þeim ásamt því að kíkja á svokallaða off venue tónleika…
Airwaves dagbók Ólátagarðs 2025 – On venue
Ólátabelgirnir fóru á stúfana á Iceland Airwaves um helgina með hljóðupptökutæki að vopni. Í þættinum förum við yfir okkar upplifun og spilum upptökur frá tónleikum.
knackered
Við kíkjum á nýlegar útgáfur í þættinum ásamt því að heyra í tónlistarkonunni knackered sem er að gefa út sína fyrstu stuttskífu á dögunum ásamt því að fara að spila á Iceland Airwaves.
Upprásin: Kóka Kóla Polar Bear, Ari Árelíus & Fríd
Aðrir tónleikar Upprásarinnar áttu sér stað þann 30. september í Kaldalóni í Hörpu. Þar komu fram grallara rappararnir í Kóka Kóla Polar Bear, fjallafönkarinn Ari Árelíus og rafpopp-tónlistarkonan…
Streymisveitur
Undanfarið hefur nokkuð magn af grasrótartónlist horfið af streymisveitunni Spotify. Við Ólátabelgirnir reynum að komast til botns í málinu með því að taka púlsinn á senunni. Af hverju…
Upprásin: Néfur, Laglegt & Straff
Fyrstu tónleikar í þriðju seríu tónleikaraðarinnar Upprásin áttu sér stað í Hörpu þann 2. september síðastliðinn. Þar komu fram Néfur, Laglegt og STRAFF. Að vana var Ólátagarður á…
Mannfólkið breytist í slím
Ólátabelgirnir hoppa upp í tímavélina sína og ferðast aftur til hlýrri tíma, þegar tónlistarhátíðin Mannfólkið breytist í slím var haldin hátíðlega í júlí. Í þættinum má heyra viðtöl…
Hvað spratt upp í garðinum í sumar?
Ólátagarður snýr aftur eftir langan sumardvala! Ólátabelgirnir stikla á stóru um helstu grasrótar plötuútgáfur sem áttu sér stað á meðan.
BSÍ & hvað er á döfinni í sumar?
BSÍ gaf nýverið út stuttskífuna Because honestly. Platan er hvorki fínpússuð játning né bein frásögn – heldur bútasaumur úr hávaða, tilfinningum og hráu hljóði. Í gegnum fimm lög –…
Upprásin: Sóðaskapur, Inki & Silkikettirnir
Þann 13. maí áttu sér stað síðustu tónleikar Upprásarinnar í bili, áður en tónleikaröðin fer í smá sumarleyfi. Á tónleikunum komu fram Sóðaskapur, Inki og Silkikettirnir. Einar fór…
AGLA & grasrótarsumar
Í þætti kvöldsins kom Agla Bríet Bárudóttir, sem semur tónlist einfaldlega undir nafninu AGLA, til okkar og sagði okkur frá tónlistinni sinni og tónleikum sem hún kemur fram á í vikunni.
Undur & HVFFI
Urður Óliversdóttir semur tónlist undir nafninu Undur og gaf nýlega út sína fyrstu plötu. Hún kíkti til okkar og sagði okkur nánar frá plötunni, sköpunarferlinu og mörgu fleiru.
Gleðilegt fokking ár & Kammerkórinn Huldur
Konsept hljómsveitin Gleðilegt fokking ár gaf út samnefnda tólf laga plötu 1. apríl þar sem hvert lag fjallar um hvern mánuð ársins. Þau Heiða og Tommi komu og sögðu okkur betur frá…
Upprásin: Smjörvi, Matching Drapes & Blairstown
Við ólátabelgirnir snúum aftur úr páskafríi og skoðum hvaða útgáfum við höfum misst af í apríl. Í síðari hluta þáttarins fjöllum við svo um tónleika Upprásarinnar 15. apríl þar sem…
Músíktilraunir 2025 yfirferð
Við Ólátabelgirnir förum bæði yfir öll undanúrslitakvöldin og úrslitakvöld Músíktilrauna 2025, spjöllum um tónlistarfólkið, tónlistina og spilum upptökur frá lifandi flutningi þeirra.
Oddweird & Hjalti Jón
Tónlistarmaðurinn Oddweird kom til okkar og sagði okkur frá plötunni sinni Daydream Deluxe sem kom út í byrjun mars. Við spjölluðum um sköpunarferlið, dagdrauma hans og muninn á því…
Upprásin: Samosa, Unfiled & Eló
Sjöttu tónleikar Upprásarinnar þennan vetur fóru fram 11. mars síðastliðin og við ólátabelgirnir létum okkur að sjálfsögðu ekki vanta! Á tónleikunum komu fram sýrurokk hljómsveitin…
gubba hori & tónlist utan af landi
Gönk pönk hljómsveitin gubba hori kíkti til okkar í spjall um stuttskífuna þeirra guffagor sem kom út í vikunni, þau sögðu okkur frá plötuumslaginu, sköpunarferlinu og mörgu fleiru…
hafaldan & Að standa á haus eða Herðum haus
Tónlistarmaðurinn Hálfdán Aron Hilmarsson semur tónlist undir nafninu hafaldan og var að gefa út sína fyrstu stuttskífu, reflections, á dögunum. Hann kíkti til okkar og spjallaði við…
Tvennir tónleikar: Tófa og GARGAN
Við ólátabelgirnir kíktum á tvenna tónleika um helgina, annarsvegar á útgáfutónleika hjá pönkhljómsveitinni Tófu sem gaf út plötuna Mauled 8. nóvember í fyrra eftir næstum átta ára…
Upprásin: KUSK & Óviti, SiGRÚN og CHÖGMA
Í tilefni konudagsins hlustum við aðeins á tónlist eftir konur í fyrri hluta þáttarins en í seinni helmingnum hoppum við í tímavélina okkar og skellum okkur á Upprásina 11. febrúar…
Bara tónlist
Í þætti kvöldsins heyrum við bara tónlist; nýja tónlist ásamt eldri, tónlist af væntanlegum plötum, tónlist sem hefur verið gefin „formlega“ út og „óformlega“ tónlist af soundcloud,…
HáRún & Rafleiðsla
Tónlistarkonan HáRún er að gefa út sitt fyrsta „formlega“ lag, Enda alltaf hér, föstudaginn 14. febrúar, á valentínusardaginn sem er þó einnig afmælisdagur hennar. Hún kom til okkar…
Alter Eygló & Lindy Lin
Nýklassíska tónskáldið Eygló Höskuldsdóttir Viborg á sér hliðarsjálf að nafninu Alter Eygló sem gerir frumsamda kareókí tónlist. Hún kíkti upp í Efstaleiti og spjallaði við Björk um…
Fyrsta Upprás ársins: Osmē, Áslaug Dungal & rauður
Fyrsta Upprás ársins átti sér stað þann 14. janúar og við ólátabelgirnir létum okkur að sjálfsögðu ekki vanta! Á tónleikunum komu fram hugleiðsluþungarokks hljómsveitin Osmē, skógláps…
Kátt á línunni & Lottó
Splunkuný tónleikaröð að nafninu Kátt á línunni hefur skotið upp kollinum á hverfisbarnum Catalinu í Kópavoginum. Pétur Eggertsson skipuleggjandi viðburðarins kíkti í Ólátagarð og…
Glatkistan og Dread Lightly
Í öðrum þætti ársins var eins og vanalega farið yfir margt nýlegt en einnig margt gamalt! Björk skoðaði vefsíðuna glatkistan.is vel og fann margt áhugavert í grasrótarsögu íslands…
Upprásar yfirferð & heimur Iðunnar Einars
Við ólátabelgirnir tökum góða yfirferð yfir tónleika Upprásarinnar í Hörpu í haust. Við spjöllum um atriðin, tónlistina og upplifun okkar ásamt því að spila tónlist í lifandi flutningi…
Ársuppgjör Ólátagarðs 2024
Í síðasta Ólátagarði ársins 2024 ráðumst við í ársuppgjör og lítum yfir helstu vendingar í grasrótinni undanfarna tólf mánuði. Undir lok þáttar fáum við heimsókn frá gömlum Ólátabelg,…
Jólátagarður 2024 og síðasta Upprás ársins: Juno Paul, AfterpartyAngel, sameheads
Uppúr snævi þaktri grasrótinni gægjast í kvöld nokkrar furunálar, mistilteinn og mandarína. Venju samkvæmt er haldið upp á hálfgerð litlu jól í síðasta Ólátagarðsþætti fyrir hátíðirnar.
Yang Soup & tildra / Kaflaskil?
Í þætti kvöldsins köfum við djúpt í Soundcloud heiminn. Þá kannski alveg óvart sérstaklega hverjum Snæi, fyrrum ólátabelgur, er að fylgja þar.
Kárahátíð & Andkristni
Reykvískar tónleikahátíðir sem setja öfgafulla og hávaðasama tónlist í sviðsljósið eru helsta viðfangsefni Ólátagarðs í kvöld. Annars vegar er það þungarokkshátíðin Andkristnihátíð,…
Margþætti dagurinn, Gosi og symfaux
Það er hægt að kenna daginn í dag við svo margt: Rásin okkar á afmæli, sem og fullveldi Íslands, það voru kosningar í nótt og ofan á allt saman er víst dagur íslenskrar tónlistar.
Laufkvist & Aliza gestaplötusnúður
Í þætti kvöldsins kynntumst við tónlistarkvárinu Francis Laufkvist sem semur tónlist undir nafninu Laufkvist. Hán kom í stúdíó 0, spjallaði við Bjarna um tónlistina sína, félagsfræði…
Upprásin 5. nóvember og fyrstu tónleikar Turtura
Við höldum áfram umfjöllun um tónleikaröðina Upprásina - fimmta nóvember síðastliðinn fór hún fram í þriðja sinn þennan veturinn, að þessu sinni í Norðurljósasal. Spacestation, Adalaus…
Iceland Airwaves og færeysk tónlist með Sakaris
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves var haldin í 25. skiptið í vikunni. Björk var útsendari Ólátagarðs þar og við rekjum ferð hennar um hátíðina og ræðum upplifunina - tölum um mismunandi…
Tónlist og spunagreind
Í lok október gaf tónlistarmaður að nafninu Meistari F út plötuna Suno Íslensk Meistaraverk 1 og deildi henni á facebook síðunni Nýleg íslensk tónlist. Platan hefur þá sérstöðu að…
Blossi, Andervel og Andlit á Upprásinni
Ólátagarður fer rólega af stað að þessu sinni og býður fram einfalda, sveimkennda og tilraunatónlist framan af. Seinni hluti þáttarins er svo tileinkaður öðrum Upprásartónleikum vetrarins,…
Geðbrigði & indris
Sindri Snær Rögnvaldsson gaf út plötuna Höfuðmynd á dögunum undir nafninu indris. Þetta er hans fyrsta plata í fullri lengd en hann hefur verið að gefa út tónlist í nokkur ár. Björk…
Sushi á geðdeildinni, 25aur í Tónabíó & tónleikastaðavandinn
Tónlistarkonan Hugrún hefur verið búsett í Svíþjóð um nokkurra ára skeið, stundað þar tónlistarnám og tónsmíðar með hljómsveitinni Communist Sex svo eitthvað sé nefnt. En nú er hún…
Feluleikur & LegFest
Feluleikur nefnist ný tónleikaröð í Reykjavík, en hugmyndin á bakvið hana er að finna nýjan tónleikastað í hvert sinn, nýjan felustað. Þannig vilja skipuleggjendur, bræðurnir Hugi…
Oyama, Masaya Ozaki, útgáfudagurinn mikli: 27. september
Á föstudaginn var kom út óvenju mikið af nýrri tónlist og Björk átti fullt í fangi með að kynna hana fyrir Bjarna, Einari og hlustendum Ólátagarðs, slíkt var magnið.
Miðbæjarbrölt, Moogie & the Boogiemen
Lágstemmt kántrí, sveimtónlist og drungarokk eru meðal strauma sem eru áberandi í þætti kvöldsins. Við heyrum sundurleitan samtíning af nýrri músík (og svolítið af eldra stöffi líka,…
Fyrsta Upprás vetrarins, Amor Vincit Omnia & nýir Ólátabelgir
Ólátagarður snýr aftur eftir sumarfrí, endurnærður, og hefur kannski svolítið nýjan hljóm. Tveir glænýir Ólátabelgir og einn gamall hafa skotið upp kollinum.
Einakróna & Hörður Gabríel
Síðasti þáttur Ólátagarðs fyrir pásu og einnig lokaþáttur Kalla og Snæa fór fram á þann hátt að Kalli fékk til sín Björk Magnúsdóttur eða Einakrónu að ræða útgáfu hennar fyrsta opinbera…
K.óla & Woolly Kind
Katrín Helga Ólafsdóttir eða K.óla kom í hljóðverið að ræða um nýjustu plötu sína sex on a cloud sem kom út í lok júní mánaðar og hvað drifið hefur á daga hennar síðustu misserin.
Skoffín & endurkoma Snæa
Snæbjörn er snúinn aftur úr reisu sinni og fögnuðu Ólátagarðsmenn því með aragrúa af grasrótartónlist allsstaðar að úr heiminum í bland við almenna stuðmúsik. Jói úr Skoffín kom svo…
Sól ey, Marta Ákadóttir & dönsk grasrót
Íslenska grasrótin var á sínum stað í upphafi þáttar en svo kom Marta Ákadóttir í heimsókn og tók við stjórnvölunum í hljóðverinu og var óvænt með Mið-Austurlenska og Írska slagsíðu…
HÁTÍÐNI & NORRÆN DÆGURTÓNLIST
Tónlistarhátíðin Hátíðni sem fram fer á Borðeyri helgina 5-7. júlí var í brennidepli í þætti kvöldsins og kom Embla Ýr einn af skipuleggjendum hátíðarinnar í hljóðverið að ræða hátíðina.
TOMI G & grasrótar yfirferð að hætti Snæa
Tomi G mætti í studio 2 að ræða útgáfu sinnar fyrstu plötu, Geimvera, sem kom út fyrir viku síðan, væntanlega fyrstu tónleika sína eftir músíktilraunir, sem verða einnig nokkurskonar…
BLOSSI & Finnskir straumar
Blossi mætti í spjall í byrjun þáttar að ræða útgáfu fyrstu EP plötu sinna Le Blossi, fyrstu tónleika sína undir listamannsnafninu Blossi og hvað í vændum er hjá honum. Íslenskra Grasrótartónlistin…
2/4 af supersport! og norsk grasrót
Þau Hugi Kjartansson og Þóra Birgit Bernódudóttir úr hljómsveitinni Supersport! mættu í spjall í stúdíó tvö að ræða erlenda gesti sem þau eru að taka á móti sem munu troða upp á fjórum…
Nýr þáttastjórnandi, Móeiður og norskur jazz
Rakel Andrésdóttir var við stjórnvölin í þætti kvöldsins ásamt Kalla og stjórnaði lagavali kvöldsins af mikilli list þar sem Snæi er að sjálfsögðu ennþá staddur í Björgvin (Bergen)…
Frumburður - GKR & norskur hálftími
Þáttur kvöldsins var sneysafullur en tvö viðtöl voru tekin, eitt í stúdíó 2 og annað á tómum bar í Bergen í Noregi. En viðtölin voru tekin við þá Frumburð hérna á klakanum og ræddum…
Post Performance Blues Band & Josie Gaitens / póstkort frá Skotlandi
Ólátagarður í kvöld var fjölbreyttur (eins og venjan nú er) en Snæi hefur lagt land undir fót og sendi þættinum póstkort frá Skotlandi og ræddi við Josie Anne Gaitens um skoska grasrót…
TORFI og Sigríður Langdal
Torfi Tómasson (TORFI) góðvinur þáttarins kom í spjall og hlustuðum við á tónleika hans frá því 16. apríl á Upprásinni. Ný grasrótartónlist var spiluð eins og venjan er og svo kom…
Sucks to be you, Nigel & Andervel
Óvenjuleg byrjun á Ólátagarði í kvöld en það var 80's hálftími í byrjun þáttar en svo tók hefðbundin dagskrá við. Ernir og Fúsi úr Sucks to be you, Nigel kom í spjall og hlustuðum…
Eitt nýtt, eitt gamalt & slummi
Eitt nýtt, eitt gamalt var þema kvöldsins framan af þætti sem litað af fortíðarþrá í gömlu góðu vídeóleigudagana þar sem leigð var ein gömul og ein ný spóla, en í kvöld var um lög…
Sumardagurinn fyrsti og FÓKUS
Sumardeginum fyrsta fagnað í skipulagðri óreiðu í Ólátagarði, ginhörpu tvenna var spiluð í bland við danska, franska, íslenska og finnska raftónlist og svo mættu þær Anna og Amylee…
Celestine, sjálfshatur og harðkjarni
Harðkjarnahátíð í Ólátagarði í kvöld. Reynsluboltarnir í Celestine mættu til þess að ræða nýja plötu sína Detriment sem spiluð var í heild sinni í bland við frjálslegar umræður. Viðtal…
Mukka & gestaplötusnúðurinn Rakel Andrésdóttir
Stofnendur hljómsveitarinnar Mukka þeira Guðmundur Óskar og Kristjón mættu í stúdíóið til okkar að ræða tónleika sína á Upprásinni 5.mars, en nóg er á döfinni hjá sveitinni sem klárað…
MC Myasnoi & stígvélafætur Einars
Ólátagarður snýr aftur eftir tveggja vikna pásu með smekkfullan þátt af splunkunýrri tónlist eins og vaninn er á þeim bænum. MC Myasnoi mættu svo í stúdíóið að ræða og hlusta á tónleika…
Músíktilraunir, KUSK & ÓVITI
Allsherjar músíktilraunafögnuður í þætti kvöldsins, fengum sigurvegara ársins 2022 í heimsókn hana Kolbrúni Óskarsdóttur eða KUSK og henni til halds og traust var Hrannar (Óviti).
MÚR, harðkjarna teknó & hughrifa tónlist
Kári og Árni úr hljómsveitinni MÚR mættu í þátt kvöldsins og ræddu við okkur um tónleika sína í Hörpunni þann 13. febrúar síðastliðinn sem partur voru af Upprásinni en einnig um þeirra…
Saki, EazyPower & Færeysku tónlistarverðlaunin.
Félagarnir Ísak (Saki) og Ísar (EazyPower) komu í stúdíoið og frumsýndu nokkur lög og í leiðinni fóru yfir ferlið og harkið. Farið var yfir væntanlega tónleika í borginni á komandi…
einakróna & Marta Ákadóttir gesta-plötusnúður
einakróna (Björk & Einar) komu í langt spjall í þætti kvöldsins þar sem við hlustuðum á tónleika þeirra í Hörpunni frá því fyrr í mánuðinum, auk þess sem allt á milli himins og jarðar…
Blairstown & Emma
Tvö viðtöl voru tekin við tvö bönd af tveimur dagskrágerðarmönnum á Rás 2 í Ólátagarði á þessu fallega fimmtudagskvöldi. Hljómsveitin Blairstown kom í spjall og sagði okkur stórskemmtilega…
Krassoff & grasrótar gúmmelaði
Krassoff kom í heimsókn og ræddi við okkur um sína vegferð í tónlistinni og hvað er á döfinni hjá henni á árinu 2024 en hún er þessi misserin að vinna að sinni fyrstu LP-plötu sem…
KRISTRÚN og FeelNik
Í þætti kvöldsins fengum við tónlistarkonuna Kristrúnu Steingrímsdóttur sem gefur út tónlist undir nafninu KRISTRÚN. Síðan hlustuðum við af nóg af nýrri íslenskri grasrótartónlist…
einakróna, gender benders og danskur hálftími
Í þætti kvöldsins var pökkuð dagskrá. Við fengum til okkar meðlimi hljómsveitarinnar The Gender Benders og síðan spiluðum við tónleika og viðtal sem einakróna gaf í stúdíó 12 í janúar…
Tucker Carlson's Jonestown Massacre í stúdíó 12
Þátturinn var í styttri kantinum þessa vikuna en það var einungis eitt á dagskrá og það voru upptökur úr stúdíó 12 af hljómsveitinni Tucker Carlson's Jonestown Massacre þar sem sveitin…
TORFI og Víf Gesta DJ
Í þætti kvöldins ræddum við við tónlistarmanninn Torfa og síðan fengum við líka heimsókn frá Víf Ásdísar Svansbur sem þeytti 'skífum' og spilaði lög sem hán hefur verið að fíla uppá…
200, Trailer Todd & DJ Silja Rún
Fyrsti þáttur ársins tekinn með trukki en bæði komu tónlistarmaðurinn 200 og hljómsveitin Trailer Todd í heimsókn auk þess sem nýjung var kynnt í Ólátagarði þegar Silja Rún varð fyrsti…
Grasrótartónlistarárið 2023
Það er komið að því: síðasti Ólátagarðsþáttur ársins 2023. Í kvöld lítum við yfir farinn veg og gerum tilraun til þess að gera upp grasrótartónlistarárið sem senn er á enda. Við fáum…
Jólátagarður 21. desember
Ólátagarður í hátíðarskapi, jólatónlist úr ýmsum áttum á matseðlinum í þætti kvöldsins og farið var um víðan völl í tónlistarsögunni. Áherslan á íslensku grasrótina eins og vanalega…
BKPM og Crescented - og glænýr Ólátabelgur
Í þætti kvöldsins fengum við góða gesti m.a. alla meðlimi hljómsveitarinnar BKPM, en þau komu fram í Kaldalóni í Hörpu á tónleikum Upprásarinnar á dögunum. Það var rætt um allt sem…
Iðunn Einars og kastalinn hans Smjörva
Iðunn Einars steig fram á sjónarsviðið á síðasta ári þegar hún sendi frá sér sína fyrstu plötu, "Allt er blátt". Hún hefur lengi fengist við tónlist, hefur bakgrunn sem klassískur…
The Boob Sweat Gang
Gjörningapönksveitin The Boob Sweat Gang kom fram á tónleikum Upprásarinnar í Hörpu á dögunum. Þrír af sex meðlimum sveitarinnar kíktu í heimsókn í Ólátagarð í kvöld til að ræða þessa…
Xiupill í Hörpu
Hljómsveitin Xiupill hefur verið eitt framleiðnasta band sem grasrótarsenan í Reykjavík hefur getið af sér undanfarin ár. Auk þess að senda frá sér heilmikið af tónlist síðan þeirra…
Sucks to be you, Nigel og íslenskir textar á degi íslenskrar tungu
Ólátagarður leggur áherslu á íslenska textagerð á degi íslenskrar tungu og kannar þá kima grasrótarinnar sem yrkja á hinu ástkæra ylhýra. Við fáum að auki heimsókn frá hljómsveitinni…
Lúpína, Lounge Sápmi og færeysk tónlist á uppleið
Ólátagarður ræðst ekki á ólátagarðinn þar sem hann er lægstur í kvöld: við bjóðum upp á hvorki meira né minna en þrjú viðtöl auk yfirferðar yfir tónleikahald í Reykjavík undanfarna…
Krownest - Taramina - Stirnir
Fengum í viðtal til okkar hljómsveitina Krownest og ræddum um allt milli numetal og surfrock, skotapilsa og forseta. Síðan heyrðum við í Taraminu sem er nýtt tónskáld frá Þórshöfn…
MSEA. Lilló Hardcore Fest og K.óla
Í þætti kvöldsins fengum við til okkar í viðtal MSEA ásamt hljómsveitarmeðlimum hennar Höllu Kristjánsdóttur og Sigurlaugar Thorarensen. Seinna fengum við að heyra um tónlistarhátíðina…
Drengurinn Fengurinn og MC Myasnoi
Sláðum á þráðinn til Drengsins Fengsins og fengum heimsókn frá hljómsveitinni MC MYASNOI sem voru að gefa frá sér nýja plötu. Þess á milli spiluðum við nýja og spennandi tónlist ogí…
DRIF og Samosa
Í þessum þætti af ólátagarði fórum við í ferðalag um heima íslenskrar raftónlistar. Við spjölluðum við Atla James sem stendur fyrir gróskumikilli plötusnúðastarfsemi á Lækjatorgi í…
Þjóðargersemin Laura Secord og Super Soaker á Prikinu
Ólátabelgirnir bjóða upp á sérstaklega þéttan pakka í þætti kvöldsins: við fáum heimsókn frá Alison McNeil úr hljómsveitinni Laura Secord, sem var að senda frá sér sitt fyrsta lag…
róshildur - indie hringur bjarna - norðurlandahringur snæa - grasrót
Í þætti kvöldsins heyrum við glænýja tónlist, geggjaða tónlist og æðislega tónlist úr grasrótinni. Síðan hringdi Snæi í og tók viðtal við Önnu Róshildi Benediktsdóttur sem komur fram…
Lúpína skýjum ofar og virgin orchestra orchestra í Hörpu
Við höldum áfram að rýna í þær hljómsveitir sem koma fram á Upprásinni í Hörpu í vetur. Nú er komið að virgin orchestra, sem lokuðu fyrsta umgangi með pompi og prakt, en þau hafa verið…
Flaaryr - Linus Orri - Óþekkt tónlist - Óþekk tónlist
Skemmtilegur þáttur þar sem við spiluðum mikið af nýrri tónlist úr grasrót íslands og hinna norðurlandana. Linus Orri ræddi um og kynnti dagskrá Vöku þjóðlagahátíð sem fer fram n.k.
Góðir gestir og góð tónlist í góðu blandi í nammilandi
Fengum til okkar góða gesti. Ræddum þáttöku Drengsins fengsins í söngvakeppninni pan-arcticvision og áttum stutt spjall við Katrínu Helgu Ólafsdóttur, Leu Kampmann og Elinborgu sem…
Geimfiðlur og barrokkdans í blikkandi útfjólubláu ljósi
Ólátagarður snýr aftur á öldur ljósvakans eftir stutt sumarfrí, og nú með nýjan og betri tíma en nokkru sinni!
,