Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Háskólinn á Hólum verður sameinaður Háskóla Íslands, samkvæmt frumvarpi sem atkvæði verða greidd um á Alþingi í dag. Jóni Bjarnasyni, fyrrverandi stjórnmálamanni og skólastjóra Bændaskólans á Hólum, hugnast sú ráðstöfun illa og óttast að skólahald á Hólum leggist af í framtíðinni.
Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er ríkisstjórn Úkraínu til ráðgafar, ásamt öðrum, í aðildarferli að sambandinu. Hann sagði frá verkefninu í samtali við Björn Malmquist, fréttamann í Brussel.
Bæjarstjórn Grindavíkur kemur saman til fyrsta fundar eftir sveitarstjórnarkosningar á morgun. Flokkarnir þrír sem buðu fram, náðu kjöri, ætla að vinna saman í bæjarstjórninni - ekki verður myndaður meirihluti. Guðbjörg Eyjólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, ræddi um störfin fram undan.
Tónlist:
Sumarlag - Stjórnin,
Let's fall in love - Louis Armstrong,
Ríðum heim til Hóla - Jórunn Viðar og Þuríður Pálsdóttir,
Ríðum heim til Hóla - Björgvin Halldórsson og Kór Öldutúnsskóla,
Summertime - Louis Armstrong og Ella Fitzgerald,
Diamonds are a girl's best friend - Marilyn Monroe.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Fimmti þátturinn af sex þar sem dregin eru fram lög sem hafa verið samin við ljóð Davíðs Stefánssonar. Helgi Eyleifur Þorvaldsson syngur eigið lag við ljóðið Skugginn, hljómsveitin Farandskuggar leikur lag við ljóðið Fjallalíf, hljómsveitin Sigurboginn flytur lög við ljóðin Hrafnamóðir og Stjörnurnar, Kristófer Jensson syngur lag við ljóðið Svarti byrðingurinn, Atli Rafn Sigurðsson syngur lag sem samið er við fyrstu erindi ljóðsins Örlög og nefnist Ég hef farið um víða veröld, Ingólfur Steinsson syngur Lofið þreyttum að sofa og hann syngur með Sunnu dóttur sinni lag við ljóðið Nú fækkar þeim óðum, Ingibjörg Ingadóttir syngur lag við ljóðið Yngismey og Pálmi Gunnarsson syngur lag við ljóðið Litli víkingurinn. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Á undanförnum árum hefur umræða um einhverfu kvenna aukist en þær fá oft ekki greiningu fyrr seint á ævinni. Í áratugi var einhverfa skilgreind út frá drengjum og stúlkur féllu utan rammans og fullorðnar konur enn frekar. Þegar greiningin kemur, oft á þrítugs- eða fertugsaldri og stundum eftir fimmtugt, lýsa margar konur henni eins og þar hafi þeim loksins verið gefin hin rétta skýring á eigin lífi. Skýringu á því hvers vegna ákveðnir hlutir voru alltaf erfiðari, hvers vegna félagsleg samskipti voru alltaf lýjandi og hvers vegna einföld dagleg verkefni gátu á stundum tekið alla orku frá þeim. Við ræddum við Vigdísi M Jónsdóttur sálfræðing í dag.
Við fórum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið og hittum þar fyrir Njörð Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörð. Hann sýndi okkur einkaskjöl sem Jónas Jónsson frá Hriflu lét geyma á safninu eftir að hann lét af störfum. Hann fór fram á það að skjölin skyldu vera lokuð frá afhendingu 1966 til 1.maí árið 1985, en þá hefði hann orðið 100 ára. Njörður sagði okkur frá þessum skjölum sem geymd eru í fimm öskjum á safninu, en þau voru talsvert persónuleg.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Úlfar Jökull Eyjólfsson nemandi í MR. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Úlfar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Himnaríki og helvíti e. Jón Kalman
Þrúgur reiðinnar e. john steinbeck
Gamli maðurinn og hafið e. Ernest Hemingway
Behind the shades (ævisaga Bob dylans) e.
Clinton Heylin.
Náðarstund e. Hannah Kent
Harry Potter bækurnar.
Tónlistin í þættinum:
Á ferðalagi / Ragnar Bjarnason (D. Darst, texti Ómar Ragnarsson)
The Girl from Ipanema / Stan Getz og Astrud Gilberto (Carlos Antoni Jobim, Vinicius de Moraes & Norman Gimbel)
Kóngur einn dag / KK og Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Leiðtogar í Evrópu fordæma hernað ísraelskra stjórnvalda gegn Líbanon og Frakkar krefjast skyndifundar í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðherra Ísraels fyrirskipaði árásir á úthverfi Beirút í morgun.
Jafnlaunavottun hefur verið afnumin í núverandi mynd og Háskólinn á Hólum sameinast Háskóla Íslands; lög um þetta voru samþykkt á Alþingi í morgun.
Litlar breytingar hafa orðið á eldsneytisverði síðustu vikur, þrátt fyrir miklar sveiflur á heimsmarkaði. Framkvæmdastjóri FÍB segir svigrúm til lækkunar.
Eftir fyrri umferð forsetakosninga í Kólumbíu í gær er ljóst að hægrimaður sem nýtur stuðnings Bandaríkjaforseta, og vinstrimaður bandamaður sitjandi forseta landsins eigast við í seinni umferð kosninganna.
Óvissa er hjá starfsmönnum heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga vegna fyrirhugaðra breytinga á störfum þeirra og kjörum um áramótin. Fækka á eftirlitsstofnunum og sameina ríkisstofnunum.
Rúmlega 450 jarðskjálftar hafa mælst undanfarinn sólarhring á Hellisheiði. Ekkert bendir til gosóróa.
Stjórn útgerðarfélagsins Brims hefur samþykkt að kaupa öll hlutabréf í Lýsi fyrir 20 milljarða króna. Það er þriðjungi lægra en kauptilboðið sem gert var í fyrra.
Ríkissáttasemjari segir fátt að frétta í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Síðan deilunni var vísað til hans hafa 40 flugferðir verði felldar niður vegna manneklu.
Freyr Alexandersson er hættur sem þjálfari Brann í norsku úrvalsdeild karla í fótbolta eftir erfiða byrjun á tímabilinu.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að vítaspyrnum - sögu og sálfræði vítaspyrnunnar - bæði í ljósi helgarinnar og heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu sem hefst í næstu viku. Rætt er við Stefán Pálsson, sagnfræðing og sparkspeking, og Daða Rafnsson, íþróttasálfræðing.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Sameinuðu þjóðirnar hafa útnefnt árið 2025 ár skammtafræðinnar.
„Leggðu þig á láðið, hvar lækjarbunur hvína. Farðu svo að þenkja þar um þig og sköpunina," orti skáldið Sigurður Breiðfjörð á fyrri hluta 19. aldar. Við veljum okkur vænan íslenskan lautarbarm, látum okkur falla í dúnmjúkan mosann og hlýðum á streymi vatnsins allt um kring. Hefjum þar að þenkja um það smæsta, og í senn það stærsta; eindir jarðar, minnstu einingar alls og einskis samkvæmt skammtafræðinni. Í þessari þáttaröð horfum við á jörðu og himinsfar, hafsins firna díki, „Gættu að rétt, hver þú ert þar í þessu stóra ríki," eins og Sigurður Breiðfjörð orðaði það. Í þessum þáttum, frá 2023, kynnum við okkur heim skammtafræðinnar, og brjótum heilann um tímann, svarthol, grátt efni, hvítt efni og raunar allra handa efni.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir.
„Leggðu þig á láðið, hvar lækjarbunur hvína. Farðu svo að þenkja þar um þig og sköpunina," orti skáldið Sigurður Breiðfjörð á fyrri hluta 19. aldar. Við veljum okkur vænan íslenskan lautarbarm, látum okkur falla í dúnmjúkan mosann og hlýðum á streymi vatnsins allt um kring. Hefjum þar að þenkja um það smæsta, og í senn það stærsta; eindir jarðar, minnstu einingar alls og einskis samkvæmt skammtafræðinni. Í þessari þáttaröð horfum við á jörðu og himinsfar, hafsins firna díki, „Gættu að rétt, hver þú ert þar í þessu stóra ríki," eins og Sigurður Breiðfjörð orðaði það. Við kynnum okkur heim skammtafræðinnar, í því ljósi brjótum við heilann um tímann, svarthol, grátt efni, hvítt efni og raunar allra handa efni.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
6. préludía, Des pas sur la neige úr Préludes Bók 1, L. 117 eftir Claude Debussy. Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á píanó. Útgefið 27. mars 2020 á plötunni Debussy Rameau.
Impromptu fyrir víólu og píanó (1931) eftir Dmitríj Shostakovitsj. Nils Mönkemeyer leikur á víólu og Rostislav Krimer á píanó. Heiti plötu: Shostakovich Discoveries : World Premiere Recordings and Rarities Útgáfudagur: 23. maí 2025 (gefið út af Deutsche Gramophone í tilefni af 50 ára ártíð tónskáldsins sem lést árið 1975.) Upptökur fóru fram 24. júní 2018 í Gohrisch, Concert Barn
Ich kann nicht sitzen úr óperunni Elektru, eftir Richard Strauss. Cheryl Studer sópransöngkona syngur, og með leikur hljómsveit Bæverska útvarpsins undir stjórn Wolfgang Sawallisch.
Anthèmes 2 (1997) : þáttur VI eftir Pierre Boulez.
Undirþættirnir eru:
1. Allant assez serré dans le tempo
2. Calme régulier - Agité - Brusque
3. Calme sans trainer d´un mouvement très régulier - Libre
Meðlimir í The Ensemble Intercontemporain flytja ; Hae-Sun Kang, fiðla ; Andrew Gerzso rafhljóðfæri. Frumhljóðritun. Útgefið á plötunni Boulez : Sur incises árið 2000.
Portrett nr. 3 eftir Snorra Sigfús Birgisson. Snorri Sigfús leikur á píanó. Útgefið á plötunni Portrett nr. 1-7 árið 1998.
Nú sé ég og faðma þig, syngjandi vor eftir Sigurð Helgason. Ljóðið orti Þorsteinn Erlingsson. Örlygur Benediktsson útsetti til kórflutnings með tilliti til útsetningar Sigfúsar Einarssonar
Kammerkór Suðurlands, stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson.
Lög úr þáttaröðinni „Hin einu sönnu Fjárlög “ 2016.
Sónata fyrir selló og píanó eftir Claude Debussy.
Verkið skiptist í eftirfarandi þætti:
Prologue
Sérénade
Finale
Á selló leikur Hafliði Hallgrímsson, og Robert Bottone leikur á píanó. Hljóðritað í Austurbæjarbíói 1974.
Vorið langt, þjóðlag. Gadus Morhua (Eyjólfur Eyjólfsson, þverflauta; Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir. selló). Útgefið á plötunni Peysur og Parruk árið 2020.
Umsjón : Arthúr Björgvin Bollason og Þröstur Ásmundsson.
Þáttur frá 1985 um ritverk skáldsins Heinrichs Heine í óbundnu máli og viðhorf þess til ýmissa þátta í samtíð skáldsins. Í þættinum eru fluttir kaflar úr prósaverkum Henes í áður óbirtri þýðingu umsjónarmanna.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Sameiginleg bein útsending Víðsjár og Lestarinnar frá Iðnó, sem hefur nú verið umbreytt í klúbb Listahátíðar í Reykjavík.
Viðmælendur í þættinum eru
Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, Hrefna Lind Lárusdóttir, Eygló Höskuldsdóttur, Kjartan Hólm, Rósa Jóhannesdóttir, Helgi Zimsen, Jóhannes Zimsen, Viðar Eggertsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Chloe Loftus og Florent Devlesaver.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Sameiginleg bein útsending Víðsjárog Lestarinnar frá Iðnó, sem hefur nú verið umbreytt í klúbb Listahátíðar í Reykjavík.

Fréttir
Fréttir
Snarpur jarðskjálfti reið yfir við Hengil í dag og fannst víða á Suð-vesturhorninu. Rúmlega 700 jarðskjálftar hafa mælst þar síðan í gærmorgun.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. Samfylkingin stendur í stað, en Flokkur fólksins tapar fylgi.
370 var sagt upp í fjórum hópuppsögnum í maí.
Ísraelsher hefur skipað íbúum í úthverfum Beirút að yfirgefa heimili sín, óljóst er hvert fólk getur flúið. Íslensk stjórnvöld kalla eftir því að Ísrael virði fullveldi Líbanons og landamæri.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Brjóstakrabbamein er algengasta tegund krabbameins hjá íslenskum konum og er nærri þriðjungur af öllum meinum sem greinast. Niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar gefa til kynna að með erfðaprófum sé hægt að meta líkurnar á gagnsemi lyfjameðferðar. Slík erfðapóf eru notuð hér og Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins segir að íslenskir sjúklingar njóti góðs af.
Um 1.2 milljarðar Jarðarbúa, 1.200 milljónir karla, kvenna og barna, eru með geðsjúkdóma eða geðraskanir af einhverju tagi. Það eru nær tvöfalt fleiri en 1990. Það þýðir að geðraskanir eru algengasta heilbrigðisvandamál samtímans. Þetta er meginniðurstaða viðamikillar rannsóknar sem birt var í læknatímaritinu Lancet á dögunum.
Bresk stjórnvöld birtu í dag skjöl í þremur bindum upp á um fimmtán hundruð síður með samskiptum sem tengjast sendiherratíð Peters Mandelsonsa í Bandaríkjunum. Ýmislegt í skjölunum er talið koma illa við Keir Starmer sem þegar sætir mikilli gagnrýni vegna skipunar Mandelsons.
Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalisti:
Laufey - Misty.
Elektra Ensemble - Contrasti (2015) : Lament.
Schola Cantorum - Maríuljóð.
Beach Boys - Wonderful.
Sigurður Flosason, Anna Gréta Sigurðardóttir - Come rain or come shine (with Sigurður Flosason).

frá Veðurstofu Íslands
Kammersveit Reykjavíkur heimsækir New York á síðustu tónleikum starfsárins. Á tónleikunum leikur Kammersveitin verk sem tengjast borginni á einn og annan hátt. Á efnisskrá eru m.a. verk eftir Steve Reich, Philip Glass, Edgar Varèse, Jennifer Higdon og Moondog.
Kammersveit Reykjavíkur var stofnuð 1974 í því augnamiði að gefa áheyrendum kost á reglulegum tónleikum með kammertónlist og um leið hljóðfæraleikurunum tækifæri til að glíma við áhugaverð verkefni. Óhætt er að fullyrða að Kammersveit Reykjavíkur hafi tekist ætlunarverk sitt því hún hefur átt fastan sess í tónlistarlífi höfuðborgarinnar æ síðan. Sveitin hefur frumflutt fjölda íslenskra og erlendra verka sem samin hafa verið fyrir hana og ennfremur staðið fyrir íslenskum frumflutningi þekktra erlendra verka. Kammersveit Reykjavíkur hefur í gegnum tíðina einnig lagt áherslu á hljóðritun og útgáfu íslenskra tónverka. Ennfremur hefur sveitin gefið út geisladiska með klassískum verkum m.a. Brandenborgarkonserta Bachs, en fyrir þá útgáfu hlaut hún Íslensku tónlistarverðlaunin 2003. Kammersveit Reykjavíkur hefur tvívegis verið tilnefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs; árin 2005 og 2015. Platan Windbells kom út á vegum Sono Luminus árið 2022, en þar leikur Kammersveitin verk eftir Huga Guðmundsson. Hún var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins og sveitin sem flytjandi ársins.
Sameinuðu þjóðirnar hafa útnefnt árið 2025 ár skammtafræðinnar.
„Leggðu þig á láðið, hvar lækjarbunur hvína. Farðu svo að þenkja þar um þig og sköpunina," orti skáldið Sigurður Breiðfjörð á fyrri hluta 19. aldar. Við veljum okkur vænan íslenskan lautarbarm, látum okkur falla í dúnmjúkan mosann og hlýðum á streymi vatnsins allt um kring. Hefjum þar að þenkja um það smæsta, og í senn það stærsta; eindir jarðar, minnstu einingar alls og einskis samkvæmt skammtafræðinni. Í þessari þáttaröð horfum við á jörðu og himinsfar, hafsins firna díki, „Gættu að rétt, hver þú ert þar í þessu stóra ríki," eins og Sigurður Breiðfjörð orðaði það. Í þessum þáttum, frá 2023, kynnum við okkur heim skammtafræðinnar, og brjótum heilann um tímann, svarthol, grátt efni, hvítt efni og raunar allra handa efni.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir.
„Leggðu þig á láðið, hvar lækjarbunur hvína. Farðu svo að þenkja þar um þig og sköpunina," orti skáldið Sigurður Breiðfjörð á fyrri hluta 19. aldar. Við veljum okkur vænan íslenskan lautarbarm, látum okkur falla í dúnmjúkan mosann og hlýðum á streymi vatnsins allt um kring. Hefjum þar að þenkja um það smæsta, og í senn það stærsta; eindir jarðar, minnstu einingar alls og einskis samkvæmt skammtafræðinni. Í þessari þáttaröð horfum við á jörðu og himinsfar, hafsins firna díki, „Gættu að rétt, hver þú ert þar í þessu stóra ríki," eins og Sigurður Breiðfjörð orðaði það. Við kynnum okkur heim skammtafræðinnar, í því ljósi brjótum við heilann um tímann, svarthol, grátt efni, hvítt efni og raunar allra handa efni.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Á undanförnum árum hefur umræða um einhverfu kvenna aukist en þær fá oft ekki greiningu fyrr seint á ævinni. Í áratugi var einhverfa skilgreind út frá drengjum og stúlkur féllu utan rammans og fullorðnar konur enn frekar. Þegar greiningin kemur, oft á þrítugs- eða fertugsaldri og stundum eftir fimmtugt, lýsa margar konur henni eins og þar hafi þeim loksins verið gefin hin rétta skýring á eigin lífi. Skýringu á því hvers vegna ákveðnir hlutir voru alltaf erfiðari, hvers vegna félagsleg samskipti voru alltaf lýjandi og hvers vegna einföld dagleg verkefni gátu á stundum tekið alla orku frá þeim. Við ræddum við Vigdísi M Jónsdóttur sálfræðing í dag.
Við fórum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið og hittum þar fyrir Njörð Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörð. Hann sýndi okkur einkaskjöl sem Jónas Jónsson frá Hriflu lét geyma á safninu eftir að hann lét af störfum. Hann fór fram á það að skjölin skyldu vera lokuð frá afhendingu 1966 til 1.maí árið 1985, en þá hefði hann orðið 100 ára. Njörður sagði okkur frá þessum skjölum sem geymd eru í fimm öskjum á safninu, en þau voru talsvert persónuleg.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Úlfar Jökull Eyjólfsson nemandi í MR. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Úlfar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Himnaríki og helvíti e. Jón Kalman
Þrúgur reiðinnar e. john steinbeck
Gamli maðurinn og hafið e. Ernest Hemingway
Behind the shades (ævisaga Bob dylans) e.
Clinton Heylin.
Náðarstund e. Hannah Kent
Harry Potter bækurnar.
Tónlistin í þættinum:
Á ferðalagi / Ragnar Bjarnason (D. Darst, texti Ómar Ragnarsson)
The Girl from Ipanema / Stan Getz og Astrud Gilberto (Carlos Antoni Jobim, Vinicius de Moraes & Norman Gimbel)
Kóngur einn dag / KK og Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Sameiginleg bein útsending Víðsjárog Lestarinnar frá Iðnó, sem hefur nú verið umbreytt í klúbb Listahátíðar í Reykjavík.
Viðmælendur í þættinum eru
Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, Hrefna Lind Lárusdóttir, Eygló Höskuldsdóttur, Kjartan Hólm, Rósa Jóhannesdóttir, Helgi Zimsen, Jóhannes Zimsen, Viðar Eggertsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Chloe Loftus og Florent Devlesaver.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Kristján Hafþórsson, sem kallar sig stundum Krissa Haff, er á leiðinni í Vinnuskóla Kópavogs í sumar með fyrirlestra um jákvæðni, hugrekki og valdeflingu. Kristján telur að vinnuskólana vanmetna og vill koma jákvæðum skilaboðum til unga fólksins sem þar starfar. Við fengum Kristján til okkar í valdeflandi spjall.
Guðmundur tæknitröll Morgunútvarpsins færði okkur fréttir af nýjustu tækni og vísindum. Vélmenni sem þrífa voru aðal umræðuefnið.
Lokafundur vormisseris í fundaröðinni Heilsan okkar fór fram í Veröld, húsi Vigdísar í síðustu viku. Umfjöllunarefnið var ópíóíðar og verkjalyfjameðferðir í íslensku samfélagi og fjallaði Adam Bauer, réttarefnafræðingur á Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands um ópíóíða og ketamín á höfuðborgarsvæðinu og um greiningu á lyfjaávísunum, fráveitugögnum og fölsuðum lyfjum. Adam kom til okkar ásamt Martin Inga Sigurðssyni, prófessor við Læknadeild HÍ.
Stefnt er að því að hjólhýsabyggðin sem hefur staðið við Sævarhöfða í tvö ár færist í Gufunes. Í borgarstjórn var deilt um þessa ákvörðun þó flestir geti verið sammála um að aðstoðan við Sævarhöfða hafi verið óviðunandi. Geirdís Hanna Kristjánsdóttir býr í hjólhýsi og hún kom til okkar að ræða þetta mál.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Ozzy, Borgarkringlan, Prince, The Streets og fleira kom við sögu í þessum Morgunverkum!
Lagalisti þáttarins:
KK – 1, 2, 3, Fjór
FUTURE ISLANDS – Seasons (Waiting On You)
OASIS – Live Forever
THE BEATLES – She's leaving home
MUGISON – Kúrekinn (ég trúi á lygina)
U2 – Songs Of The Future
Á MÓTI SÓL – Ef þú ert ein
BAKAR – Hell N Back
SUEDE – Beautiful ones
ELLA LANGLEY – Choosin' Texas
THE DOORS – Light My Fire
FRIÐRIK DÓR – Hlið við hlið
THE STREETS – Let's Push Things Forward
BRUCE SPRINGSTEEN – Dancing In The Dark
KACEY MUSGRAVES – Dry Spell
OZZY OSBOURNE – Mama, I'm coming home
BUBBI MORTHENS – Við föllum
LANA DEL REY – First Light
DUA LIPA – Houdini
THE SMITHS – This Charming Man
GEORGE MICHAEL – Fast Love
LAUFEY – Madwoman
MADONNA & SABRINA CARPENTER – Bring Your Love
HELGI BJÖRNSSON – Allt ljómar
ELLIOT SMITH – L.A.
NÝDÖNSK – Ekkert mál
GARBAGE – Milk
ELECTRIC LIGHT ORCHESTRA – Last Train To London
TAME IMPALA – Lost In Yesterday
UNA TORFADÓTTIR, ÁGÚST ÞÓR BRYNJARSSON – Inn í síðustu nóttina
SOMBR – Potential
KYLIE MINOGUE – Slow
MARK RONSON & BRUNO MARS – Uptown Funk
ÞORMÓÐUR EIRÍKSSON, GDRN – Manstu
PRINCE & THE NPG – Diamonds and pearls
JUSTIN TIMBERLAKE – Take Back The Night
GREININGARDEILDIN, EMILÍANA TORRINI, BOGOMIL FONT – Þú stendur alltaf með mér
MOSES HIGHTOWER – Stundum
ÞURSAFLOKKURINN – Nútíminn
KRUMMI – Smile till it ends
MY MORNING JACKET – Holding On To Black Metal

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Leiðtogar í Evrópu fordæma hernað ísraelskra stjórnvalda gegn Líbanon og Frakkar krefjast skyndifundar í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðherra Ísraels fyrirskipaði árásir á úthverfi Beirút í morgun.
Jafnlaunavottun hefur verið afnumin í núverandi mynd og Háskólinn á Hólum sameinast Háskóla Íslands; lög um þetta voru samþykkt á Alþingi í morgun.
Litlar breytingar hafa orðið á eldsneytisverði síðustu vikur, þrátt fyrir miklar sveiflur á heimsmarkaði. Framkvæmdastjóri FÍB segir svigrúm til lækkunar.
Eftir fyrri umferð forsetakosninga í Kólumbíu í gær er ljóst að hægrimaður sem nýtur stuðnings Bandaríkjaforseta, og vinstrimaður bandamaður sitjandi forseta landsins eigast við í seinni umferð kosninganna.
Óvissa er hjá starfsmönnum heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga vegna fyrirhugaðra breytinga á störfum þeirra og kjörum um áramótin. Fækka á eftirlitsstofnunum og sameina ríkisstofnunum.
Rúmlega 450 jarðskjálftar hafa mælst undanfarinn sólarhring á Hellisheiði. Ekkert bendir til gosóróa.
Stjórn útgerðarfélagsins Brims hefur samþykkt að kaupa öll hlutabréf í Lýsi fyrir 20 milljarða króna. Það er þriðjungi lægra en kauptilboðið sem gert var í fyrra.
Ríkissáttasemjari segir fátt að frétta í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Síðan deilunni var vísað til hans hafa 40 flugferðir verði felldar niður vegna manneklu.
Freyr Alexandersson er hættur sem þjálfari Brann í norsku úrvalsdeild karla í fótbolta eftir erfiða byrjun á tímabilinu.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa stýrði Popplandi þennan mánudaginn, fyrsta í júní. Allskonar popptónlist í bland við annað, nýtt frá Stephen Sanchez, Anya Shaddock, Hjálmum og Dermot Kennedy. Plata vikunnar kynnt til leiks: Hjartað á milljón með Ágústi Brynjarssyni.
Hjálmar - Hvað gera fjöllin?.
ROXY MUSIC - Love Is The Drug.
ÞÓRUNN ANTONÍA - So high.
CeaseTone - Á tónaflóði.
THE KILLERS - Mr.Brightside.
Rostam - Back of a Truck.
Bieber, Justin - Daisies.
Digital Ísland - Eh plan?.
BEYONCÉ - CUFF IT.
Beyoncé - Ya Ya (Explicit).
Swift, Taylor - Elizabeth Taylor.
Brynja Rán Eiðsdóttir - Cowboy Wannabe.
Clean Bandit, Glynne, Jess - Rather be.
U2 - Beautiful Day.
Ágúst Þór Brynjarsson - Með þig á heilanum.
Norman, Chris - Stumblin' in.
ÁGÚST - Sveitin mín.
Smokie hljómsveit, Quatro, Suzi - Stumblin' in.
Náttsól - Flýttu þér hægt.
THE CRANBERRIES - Dreams.
Ásgeir Trausti Einarsson - Ferris Wheel.
Salka Sól Eyfeld - Sólin og ég.
JAIN - Makeba.
Júlí Heiðar, Dísa - Cha cha cha.
Carpenter, Sabrina - Manchild.
Úlfur Úlfur Hljómsveit - Sumarið.
Streets, The - Dry your eyes.
sombr - Potential.
PIXIES - Gigantic.
Death Cab for Cutie - Riptides.
Creature of Habit - Myrká.
Sanchez, Stephen - CHUCK THE MONEY.
KULA SHAKER - Hush.
Musgraves, Kacey - Dry Spell.
Kennedy, Dermot - Turnstile.
Laufey - Madwoman.
Langley, Ella - Choosin' Texas.
SHANIA TWAIN - Man! I Feel Like A Woman.
Dean, Olivia - Nice To Each Other.
Anya Hrund Shaddock - Eg sver.
FRIÐRIK DÓR - Þessi kjóll.
LANA DEL REY - First Light.
DOMINIC FIKE - Babydoll.
BRYAN ADAMS - Summer of 69.
ÁGÚST BRYNJARSSON - Áttavilltur.
PAUL MCCARTNEY & RINGO STARR - Home to Us.
FOUNTAINESS DC - Favorite.
THE SOURCE FT. CANDI STATON - You've Got the Love.
ÞORMÓÐUR & GDRN - Manstu.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Staða húsnæðismála lögreglunnar á Seyðisfirði er ein sú alvarlegasta á landinu. Þar sinnir lögregla mikilvægu landamæraeftirliti og hefur undanfarna mánuði staðið í ströngu vegna fíkniefnainnflutnings um höfnina. Við ræddum við Jónínu Brynjólfsdóttur, varaþingmann Framsóknarflokksins og forseta sveitarstjórnar Múlaþings.
Kröftugur skjálfti skók suðvesturhornið klukkan korter í tvö og fannst víða. Skjálftinn er einn af ríflega 500 sem hafa mælst í hrinu á Mosfellsheiði, vestan við Húsmúla, sem hófst í gærmorgun. Við ræddum við Benedikt Halldórsson, fagstjóra jarðskjálftavár hjá Veðurstofunni.
„Upp úr tilraunaglasinu – Hagnýting rannsókna“ er heitið á erindi sem Hildur Inga Sveinsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís og lektor við Háskóla Íslands, flytur á málþingi Matís á morgun. Erindið fjallar um hvernig rannsóknir og vísindavinna verða að raunverulegum lausnum, hagnýtum afurðum og verðmætum fyrir samfélag og atvinnulíf. Hildur Inga fræddi okkur um verðmætasköpun úr hliðarhráefnum í matvælavinnslu sem dregur úr sóun.
Síðustu átta ár hefur engin vinna farið fram sem miðar að því að bæta dýpkunina við Landeyjahöfn. Sigurður Áss Grétarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri siglingasviðs hjá Vegagerðinni, segir stjórnvöld hafa lítinn áhuga á að fylgja þessu verkefni eftir og að ekki hafi verið heldur staðið rétt að dýpkun við höfnina. Öldufarið sé ekki alltaf skýringin á því hvers vegna sum árin fyllist hafnarmynnið af sandi og önnur ekki. Við fórum nánar yfir þetta með Sigurði hér á eftir.
Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir 10 daga og spennan er farin að magnast. Við ætlum að fara yfir það helsta sem þarf að vita fyrir mótið, hverju má búast við og hvaða lið og leikmenn vert er að fylgjast sérstaklega með. Helga Margrét Höskuldsdóttir heldur utan um umfjöllun HM hér á Ruv ásamt Eddu Sif Pálsdóttur og við ætlum að ræða við Helgu um fyrirkomulag mótsins og stemninguna í aðdragandanum og helstu sýningartíma á Íslandi.
Fyrstu ilmtónleikar íslandssögunnar fara fram í Austurbæ á föstudaginn. Tónleikarnir eru hluti af Listahátíð sem var sett á laugardaginn og eru að undirlagi Ilmgerðarinnar Fishersund. Tónlistarmennirnir Jónsi úr SigurRós, Sin Fang og Kjartan Holm flytja tónverk sín sem endurspegla óefnislegan ilm Fischersunds. Sindri Már Sigfússon og Lilja Birgisdóttir komu til okkar.
Fréttir
Fréttir
Snarpur jarðskjálfti reið yfir við Hengil í dag og fannst víða á Suð-vesturhorninu. Rúmlega 700 jarðskjálftar hafa mælst þar síðan í gærmorgun.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. Samfylkingin stendur í stað, en Flokkur fólksins tapar fylgi.
370 var sagt upp í fjórum hópuppsögnum í maí.
Ísraelsher hefur skipað íbúum í úthverfum Beirút að yfirgefa heimili sín, óljóst er hvert fólk getur flúið. Íslensk stjórnvöld kalla eftir því að Ísrael virði fullveldi Líbanons og landamæri.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Brjóstakrabbamein er algengasta tegund krabbameins hjá íslenskum konum og er nærri þriðjungur af öllum meinum sem greinast. Niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar gefa til kynna að með erfðaprófum sé hægt að meta líkurnar á gagnsemi lyfjameðferðar. Slík erfðapóf eru notuð hér og Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins segir að íslenskir sjúklingar njóti góðs af.
Um 1.2 milljarðar Jarðarbúa, 1.200 milljónir karla, kvenna og barna, eru með geðsjúkdóma eða geðraskanir af einhverju tagi. Það eru nær tvöfalt fleiri en 1990. Það þýðir að geðraskanir eru algengasta heilbrigðisvandamál samtímans. Þetta er meginniðurstaða viðamikillar rannsóknar sem birt var í læknatímaritinu Lancet á dögunum.
Bresk stjórnvöld birtu í dag skjöl í þremur bindum upp á um fimmtán hundruð síður með samskiptum sem tengjast sendiherratíð Peters Mandelsonsa í Bandaríkjunum. Ýmislegt í skjölunum er talið koma illa við Keir Starmer sem þegar sætir mikilli gagnrýni vegna skipunar Mandelsons.
Ólafur Páll Gunnarsson spilar tónlist að sínum hætti - hitt og þetta og þetta og allt í bland.
Í hit(t) & Þetta heyrist hitt og þetta milli frétta og í þætti kvöldsins bergjum við á nýju víni úr eldri belgjum, en ekki eingöngu
Greifarnir / Eilíft sumar
Paul McCartney / We two
Willie Nelson / Dream chaser
Falin Gjóður / Gölturinn Gabríel
Frank Zappa / I have been in you
Franki Valli / Grease
The Strokes / Falling out of love

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Daði Freyr - Hot damn.
CSS - Let's make love and listen to death from above.
Madonna, Sabrina Carpenter - Bring Your Love.
Hot Chip - Need you now
Birnir, GusGus - Walk away.
Kneecap, Kae Tempest - Irish Goodbye.
Kaktus Einarsson - Glycerine.
Little Dragon - Ritual Union.
Marshmello, Portugal. The man - Phoenix.
sombr - Potential.
Langley, Ella - Choosin' Texas.
Musgraves, Kacey - Dry Spell.
Widowspeak - No driver.
SKUNK ANANSIE - Hedonism.
Dexter and The Moonrocks - Freakin' Out.
Aldous Harding, Hawkline, H. - Venus in the Zinnia.
Bjarni Daníel - DÍSEL.
Westside Cowboy - Kick Stones (The Boys).
Velvet Underground - Who loves the sun.
Dominic Fike - Babydoll.
Erykah Badu - Window seat.
Þormóður, GDRN - Manstu.
Anya Hrund Shaddock - Eg sver.
Tones and I, FISHER - Favour.
Sonny Fodera, Libianca - Let Me Be In Your Arms.
Everything But The Girl - Wrong
Cloonee, Prospa - Free Your Mind
Purple Disco Machine - Disco Cherry.
Young, Lola - From Down Here.
TURNSTILE & BADBADNOTGOOD & BLOOD ORANGE - Alien Love Call.
Rostam - Back of a Truck.
Nýdönsk - Ekkert mál.
Lime Garden - Cross My Heart.
Django Django - Default.
Johnny Blue Skies - Situation.
Hasar - Nýjasta tíska.
Revivalists, The - Heart Stop
Oasis - Live Forever
Dermot Kennedy - Turnstile
Blondshell - Heart Has To Work So Hard
U2 - Songs Of the Future
Depeche Mode - John the Revelator
In Color - Headlights
Mike D - What We Got
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Ágúst Brynjars hefur gefið út frumraun sína sem ber heitið Hjartað á milljón. Hann kom til okkar í plötu vikunnar þar sem við ræddum upphafið á Húsavík, Stuðlabandið og að vera næsti brekkusöngvari á Þjóðhátíð ásamt mörgu öðru. Svo heyrum við kynningar fyrir lög plötunnar ásamt lögunum sjálfum.