06:50
Morgunútvarpið
29. sept. - Myndlist, gagnasöfnun, Njálurefill, kæfisvefn og tækni

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Listasafn ASÍ hefur að undanförnu auglýst eftir myndlistarfólki sem vill sýna verk sín á dekkjaverkstæðum. Við heyrðum í Elísabetu Gunnarsdóttur, forstöðumanni listasafnsins um þetta óvenjulega verkefni.

Fjölmiðlar hafa greint frá því að nöfn 411 Íslendinga sé að finna í gagnaleka kínversks fyrirtækis sem fylgist með hegðun fólks á samfélagsmiðlum og netinu. Fullyrt er að samstarfsaðilar fyrirtækisins séu kínverskar varnarmála- og leyniþjónustustofnanir. Hanna Katrín Friðriksson, alþingismaður, er einn Íslendinganna, samkvæmt upplýsingum Stundarinnar. Við heyrðum í henni í þættinum.

Síðustu saumsporin hafa verið tekin í Njálurefilinn, en verkinu lauk nú í september, þó nokkuð á undan áætlun. Refillinn bíður nú upprúllaður eftir að eignast varanlegt heimili. Gunnhildur Edda Kristjánsdóttir er ein þeirra sem héldu utan um þetta stóra verkefni og við hringdum í hana austur á Hvolsvöll og fengum að vita meira.

Kæfisvefn er algengari en margir halda og einnig alvarlegri en margir halda. Hann getur haft áhrif á fjölda heilbrigðisþátta og skert lífsgæði fólks. Rannsóknarhópur á Landspítalanum með Þórarinn Gíslason, prófessor við Háskóla Íslands og yfirlækni Svefndeildar Landspítala, í fararbroddi, hefur rannsakað kæfisvefn í 20 ár í samvinnu við bandaríska fræðimenn og nú nýverið hlaut hópurinn veglegan rannsóknarstyrk. Þórarinn var á línunni og fræddi okkur um kæfisvefn og rannsóknir hópsins.

Guðmundur Jóhannsson mætti til okkar í Tæknihornið, sem nú er í boði hálfs mánaðarlega á þriðjudögum, og ræddi m.a. gagnasöfnun kínverska fyrirtækisins Zhenhuga Data Information og nýjustu kynningu Amazon.

Tónlist:

Baggalútur - Er ég að verða vitlaus eða hvað?

Bogomil Font og Flís - Þvo sér hendur.

Elíza Newman - Vaknaðu.

Alex Kapranos og Clara Luciani - Summer wine.

The La's - There she goes.

Harry Styles - Adore you.

OMAM - Visitor.

KK - Þetta lag er um þig.

Elvis Costello - Oliver?s Army.

GDRN - Áður en dagur rís (ft. Birnir).

Pálmi Gunnarsson - Hvers vegna varstu ekki kyrr?

Unnur Sara - Að gleyma sér.

Var aðgengilegt til 29. september 2021.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,