
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Bryndís Malla Elídóttir flytur.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Eru forsendur lífskjarasamningsins brostnar? Ja, ekki er sama hvern við spyrjum, um þetta er deilt, og reyndar er skilningur forystumanna launþega annars vegar og vinnuveitenda hins vegar svo ólíkur að helst mætti ætla að þeir væru að tala um sitt hvort málið. En hverjar eru helstu forsendur og hvernig ríma þær við stöðuna í efnahagslífinu og horfurnar fram undan? Við skoðuðum þessi mál með Þórði Snæ Júlíussyni, ritstjóra Kjarnans. Hann ræddi líka um samfélagslega ábyrgð lífeyrissjóða og skattamál Donalds Trump Bandaríkjaforseta.
30 ár eru síðan þýsku ríkin tvö: Austur og Vestur Þýskaland voru sameinuð og úr varð Sambandslýðveldið Þýskaland. Deildar meiningar eru um hvernig til tókst og þá einkum hvernig austur-hlutinn hafi farið út úr sameiningunni. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá í Þýskalandsspjalli eftir Morgunfréttirnar. Hann talaði líka um umræður um bandarísku forsetakosningarnar í Þýskalandi, en einhverjir spekingar telja að þær skipti Þjóðverja meira máli en kosningar í Þýskalandi. Þá hefur hjónaskilnuðum fjölgað í kórónuveirukrísunni.
Öldum saman voru Hólar í Hjaltadal eitt helsta menningarsetur landsins. Þar var biskupsstóll og skóli og auðvitað prentsmiðjan hans Jóns Arasonar svo fátt eitt sé nefnt. Raunar má segja að á sínum tíma hafi hálfu landinu, meira eða minna, verið stýrt frá Hólum. Enn hefur Hólafólk rík áhrif; Háskólinn á Hólum sér samfélaginu fyrir sérfræðingum í ferðaþjónustu, fiskeldi og hestafræðum. Við röbbuðum við Erlu Björk Örnólfsdóttur rektor skólans á níunda tímanum.
Tónlist: Sunday morning coming down - Jerry Lee Lewis, Ekki dauðir enn - Mannakorn, Ó þú - Mannakorn

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Útvarpsfréttir.

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Arnhildur er organisti í Fella og Hólakirkju og talar um hversu mikilvægur söngurinn er fólki.

Umsjón: Halldóra Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.

Útvarpsfréttir.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Heimildarmyndin Lobster Soup, eða Humarsúpa, fjallar um bræðurna Alla og Krilla, sem stofnuðu og ráku veitingastaðinn Bryggjuna á höfninni í Grindavík. Þar framreiddu þeir eina frægustu humarsúpu landsins og við borðin á staðnum voru málin krufin til mergjar. Við fengum annan bræðranna, Alla, eða Aðalgeir Jóhannsson, ásamt Ólafi Rögnvaldssyni, einum framleiðanda myndarinnar, til þess að segja okkur meira frá þeim bræðrum og humarsúpunni, sem hefur vakið það mikla athygli að hún dregur fjölda ferðamanna frá öllum heimshornum til Grindavíkur og ekki síst tvo spænska kvikmyndagerðamenn sem ákváðu að gera einmitt þessa mynd.
Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, brá sér yfir í Húnaþing vestra og hitti Guðnýju Helgu Björnsdóttur á Bessastöðum sem þar býr ásamt manni sínum, hinum þekkta hestamanni Jóhanni Magnússyni. Þau búa þar að sjálfsögðu með hesta en líka kýr og Guðný sem er fædd og uppalin á Bessastöðum hefur upplifað miklar breytingar í framleiðslu mjólkur.
Buxur eru um margt hentugur klæðnaður, sérstaklega þegar kemur að ákveðnum störfum eða vinnu. Það er þó ekki allra að klæðast buxum og enn þann dag í dag eru fjölmörg ríki sem banna konum að klæðast buxum við hin ýmsu tilefni. Sjókonur í buxum er yfirskrift Föstudagsfléttu Borgarsögusafns á föstudaginn kemur. Hafdís Erla Hafsteinsdóttir sagnfræðingur mun þar fjalla um buxnanotkun íslenskra kvenna í sögulegu ljósi. Í fyrirlestrinum verður fjallað um nokkrar konur sem klæddust buxum til sjós og létu reyna á mörk samfélagsins hvað varðar kvenlega hegðun, klæðaburð og framkomu. Hafdís Erla kom í þáttinn í dag.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Ríkisstjórnin kynnti á tólfta tímanum aðgerðir í átta liðum sem ætlað er að stuðla að félagslegum og efnahagslegum stöðugleika og halda lífskjarasamningnum á lífi, meðal annars lækkun tryggingagjalds og endurgreiðslu virðisaukaskatts. Aðildarfélög Samtaka atvinnulífsins greiða nú atkvæði um hvort segja eigi samningnum upp.
Paolo Macchiarini, sem græddi plastbarka í sjúklinga á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi, hefur verið ákærður fyrir að valda sjúklingunum alvarlegum skaða sem leiddi til dauða þeirra.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesskaga þurfa að búa sig undir jarðskjálfta af stærðinni sex til sex komma fimm í náinni framtíð. Þetta er mat jarðeðlisfræðings hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.
Ekkert lát er á bardögum í Nagorno-Karabakh. Fregnir berast af liðsflutningum stórskotaliða Armena og Asera fjarri héraðinu.
Starfsmönnum flugvallarins í Vestmannaeyjum hefur verið sagt upp störfum. Bæjarstjórinn í Eyjum segir að Isavia grípi hvert tækifæri sem gefist til þess að skerða þjónustu flugvalla úti á landi.

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Þorsteinn Helgason, prófessor emiritus: Kennslubækur í sögu hafa oft vakið deilur. Rætt verður um það í Samfélaginu og sagt frá nýútkomnu riti um álitamál og deilur um sögukennslu í 57 löndum um allan heim, þ.á m. á Íslandi.
Kristbjörg Mekkín Helgadóttir og Eiður Welding: Skýrsla sem börn frá ungmennaráðum um landa allt unnu um málefni sem á þeim brenna hefur verið kynnt fyrir Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna. Þetta er í fyrsta sinn sem börn senda eigin skýrslu en í henni er farið yfir stöðu mannréttinda barna á Íslandi og hvernig Íslandi gengur að uppfylla barnasáttmálann. Það kennir ýmissa grasa þegar kemur að málefnum sem börnin vildu skerpa á - sjónarhorn þeirra er eðli málsins samkvæmt annað, því þau upplifa sjálf og á eigin skinni hvar kreppir að - rætt var við Kristbjörgu og Eið, tvö ungmennu æyr ungmennaráði sem komu að gerð skýrslunnar.
Friðrik Páll Jónsson með erlendan pistil um dreifingu bóluefnis við Covid 19 veirunni en hætt er við að fátæk lönd verði síðust í röðinni.

Útvarpsfréttir.

Lofthelgin býður hlustendum að fljóta frjálslega í tíma og rúmi á lignu hafi hughrifatónlistar. Frá endurómi fortíðar til nýjustu strauma 21. aldarinnar leitum við heimshornanna á milli að réttri stemningu og andrúmslofti til að leiða hlustandann á ný mið andans. Út fyrir endimörk algleymis.
Umsjón er í höndum Friðriks Margrétar-Guðmundsson.

Útvarpsfréttir.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Illugi Jökulsson les um Flóabardaga, sem kallaður hefur verið eina sjóorrustan í íslenskri sögu. En hvað gerðist í raun og veru? Lesið er úr frásögn Henry Hálfdanssonar sem birtist í Sjómannablaðinu árið 1944.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Í Víðsjá dagsins verður rætt er við Guju Dögg Hauksdóttur arkitekt um sýninguna PREFAB / FORSMÍÐ sem opnaði um liðna helgi í Skaftelli, Menningarmiðstöð Austurlands. Á sýningunni er farið yfir fagurfræði og sögu norsku einingahúsanna sem risu við Seyðisfjörð í byrjun síðustu aldar, auk einingahúss eftir Le Corbusier og norsku arkitektana Rintala Eggertsson.
Bók vikunnar að þessu sinni er skáldsagan Beðið eftir barbörunum eftir nóbelskáldið John Maxwell Coetzee. Tveir þýðendur komu að verkinu, þau Sigurlína Davíðsdóttir og Rúnar Helgi Vignisson, og segja þau frá bókinni í Víðsjá dagsins.
Snæbjörn Brynjarsson segir frá upplifun sinni af samtímaóperunni Ekkert er sorglegra en manneskjan sem frumsýnd var á dögunum í Tjarnarbíói og er eftir Friðrik Margrétar Guðmundsson og Adolfs Smára Unnarssonar.
Ennfremur verður fjallað um umdeilda myndlistarsýningu sem farin er að valda titringi löngu áður en hún er komin upp, en á dögunum bárust fréttir um það sýningu sem átti að fara í fjögur mikilvæg myndlistarsöfn, vestan hafs og austan, hefði verið slegið á frest vegna viðkvæms myndefnis. Við segjum frá listamanninum Philip Guston í þætti dagsins og ræðum við Hallgrím Helgason rithöfund um Guston og verk hans.

Útvarpsfréttir.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Við spjöllum við Gísla Darra Halldórsson um nýja tölvuteiknaða stuttmynd hans Já-fólkið sem hlaut áhorfendaverðlaun barna á norrænu kvikmyndahátíðinni Nordisk Panorama á dögunum. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Gísli hefur starfað sem "kvikari", það sem á ensku er kallað animator, í um tvo áratugi, unnið að gerð fjölda tölvuteiknimynda og teiknimyndaþátta.
Við kynnum okkur Kólumbísk-kanadísku tónlistarkonuna Lido Pimienta og plötu hennar Miss Colombia.
Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil um hlutverk forseta Íslands og veltir því fyrir sér hvort ný stjórnarskrá geti skýrt það.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Samtök atvinnulífsins hafa valdið óþarfa óöryggi og usla meðal fólks með því að draga gildi lífskjarasamninganna í efa, segir forseti Alþýðusambands Íslands.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar milda höggið sem fyrirtækin í landinu hafa orðið fyrir segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Ljóst er þó að mörg fyrirtæki verði áfram í miklum vanda.
Formaður Samfylkingarinnar segir ýmislegt gott í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar, en ekki sé gengið nógu langt. Hann kallar sérstaklega eftir aðgerðum í þágu atvinnulausra.
Armenar saka Tyrki um að hafa skotið niður flugvél armenska flughersins. Þeir segjast hvergi hafa komið nærri. Hátt í eitt hundrað hafa fallið í bardögum um Nagorno-Karabakh.
Dómsmálaráðherra ætlar að leggja fram frumvörp í byrjun þings sem skýra refsiákvæði gagnvart kynferðislegri friðhelgi og umsáturseinelti.
Stærstu hluthafar í Icelandair Group fyrir hlutafjárútboð eru það ekki lengur. Lífeyrissjóður verslunarmanna var stærstur með tæp 12 prósent en á nú rúmlega tvö prósent. Fjárfestingasjóðurinn PAR Investment Partners átti tíu en á nú tæplega tvö prósent. Hvorugur sjóðurinn tók þátt í útboðinu.
Samtals hafa átta starfsmenn hjá VÍS, Vátryggingafélagi Íslands, greinst með kórónuveirusmit. Flestir þeirra greindust fyrir tíu dögum og þá fóru 75 starfsmenn í sóttkví og unnu að heiman.
Fyrstu kappræður bandarísku forsetaframjóðendanna Joes Bidens og Donalds Trumps verða í nótt. Chris Wallace, fréttamaður FOX News, stýrir umræðunum í Cleveland í Ohio. Sýnt verður beint frá kappræðunum í sjónvarpinu og á ruv.is og hefst útsending klukkan eitt í nótt.
Lengri umfjallanir:
Forsætisráðherra vonast til að þær aðgerðir sem kynntar voru í dag, létti undir hjá atvinnulífinu og auðveldi atvinnurekendum að taka afstöðu til þess að hvort segja eigi upp kjarasamningum. Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins ákvað í dag að hætta við atkvæðagreiðsluna meðal félagsmanna um hvort segja ætti upp samningum. ASÍ vill að stjórnvöld gefi vilyrði fyrir því að atvinnuleysisbætur verði hækkaðar. Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur tekur undir þessa körfu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti aðgerðir ríkisstjórnarinnar að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Arnar Páll Hauksson tekur saman og talar við Katrínu Ólafsdóttur.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesskaga þurfa að búa sig undir jarðskjálfta af stærðinni sex til sex komma fimm í náinni framtíð. Það sama á við um Húsvík og nágrenni. Þetta er mat Freysteins Sigmundssonar jarðe
Umsjón: Fríða María Ásbergsdóttir.
Gestur Krakkakastsins að þessu sinni er maður sem veit allt um stjörnurnar og geiminn en hugsar líka um náttúruvernd hér á jörðinni. Það er hann Stjörnu Sævar. Afhverju er hann kallaður það? Er hann ekki jarðfræðingur...?
Viðmælandi: Sævar Helgi Bragason
Umsjón: Fríða María Ásbjörnsdóttir

Hljóðritanir frá sumartónlistarhátíðum víðs vegar að úr Evrópu.
Hljóðritun frá tvennum tónleikum á Styriarte hátíðinni í Graz í Austurríki.
*Frá tónleikum Styriarte hátíðarhljómsveitarinnar 1. júlí sl. sem flutti verk eftir Johann Jospeh Fux og Antonio Vivaldi ásamt Mari Ladurner sópran og Valerio Contaldu tenór undir stjórn óbóleikarans, Alfredos Bernardinis.
*Frá kammertónleikum 20. júlí sl. þar sem flutt var píanótríó nr. 5 í D-dúr op. 70, Geister-tríóið eftir Ludwig van Beethoven.
Flytjendur eru Fritz Kirchern á fiðlu, Luis Zorita á selló og Florian Birsak á fortepíanó.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Heimildarmyndin Lobster Soup, eða Humarsúpa, fjallar um bræðurna Alla og Krilla, sem stofnuðu og ráku veitingastaðinn Bryggjuna á höfninni í Grindavík. Þar framreiddu þeir eina frægustu humarsúpu landsins og við borðin á staðnum voru málin krufin til mergjar. Við fengum annan bræðranna, Alla, eða Aðalgeir Jóhannsson, ásamt Ólafi Rögnvaldssyni, einum framleiðanda myndarinnar, til þess að segja okkur meira frá þeim bræðrum og humarsúpunni, sem hefur vakið það mikla athygli að hún dregur fjölda ferðamanna frá öllum heimshornum til Grindavíkur og ekki síst tvo spænska kvikmyndagerðamenn sem ákváðu að gera einmitt þessa mynd.
Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, brá sér yfir í Húnaþing vestra og hitti Guðnýju Helgu Björnsdóttur á Bessastöðum sem þar býr ásamt manni sínum, hinum þekkta hestamanni Jóhanni Magnússyni. Þau búa þar að sjálfsögðu með hesta en líka kýr og Guðný sem er fædd og uppalin á Bessastöðum hefur upplifað miklar breytingar í framleiðslu mjólkur.
Buxur eru um margt hentugur klæðnaður, sérstaklega þegar kemur að ákveðnum störfum eða vinnu. Það er þó ekki allra að klæðast buxum og enn þann dag í dag eru fjölmörg ríki sem banna konum að klæðast buxum við hin ýmsu tilefni. Sjókonur í buxum er yfirskrift Föstudagsfléttu Borgarsögusafns á föstudaginn kemur. Hafdís Erla Hafsteinsdóttir sagnfræðingur mun þar fjalla um buxnanotkun íslenskra kvenna í sögulegu ljósi. Í fyrirlestrinum verður fjallað um nokkrar konur sem klæddust buxum til sjós og létu reyna á mörk samfélagsins hvað varðar kvenlega hegðun, klæðaburð og framkomu. Hafdís Erla kom í þáttinn í dag.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Þorsteinn Helgason, prófessor emiritus: Kennslubækur í sögu hafa oft vakið deilur. Rætt verður um það í Samfélaginu og sagt frá nýútkomnu riti um álitamál og deilur um sögukennslu í 57 löndum um allan heim, þ.á m. á Íslandi.
Kristbjörg Mekkín Helgadóttir og Eiður Welding: Skýrsla sem börn frá ungmennaráðum um landa allt unnu um málefni sem á þeim brenna hefur verið kynnt fyrir Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna. Þetta er í fyrsta sinn sem börn senda eigin skýrslu en í henni er farið yfir stöðu mannréttinda barna á Íslandi og hvernig Íslandi gengur að uppfylla barnasáttmálann. Það kennir ýmissa grasa þegar kemur að málefnum sem börnin vildu skerpa á - sjónarhorn þeirra er eðli málsins samkvæmt annað, því þau upplifa sjálf og á eigin skinni hvar kreppir að - rætt var við Kristbjörgu og Eið, tvö ungmennu æyr ungmennaráði sem komu að gerð skýrslunnar.
Friðrik Páll Jónsson með erlendan pistil um dreifingu bóluefnis við Covid 19 veirunni en hætt er við að fátæk lönd verði síðust í röðinni.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Við spjöllum við Gísla Darra Halldórsson um nýja tölvuteiknaða stuttmynd hans Já-fólkið sem hlaut áhorfendaverðlaun barna á norrænu kvikmyndahátíðinni Nordisk Panorama á dögunum. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Gísli hefur starfað sem "kvikari", það sem á ensku er kallað animator, í um tvo áratugi, unnið að gerð fjölda tölvuteiknimynda og teiknimyndaþátta.
Við kynnum okkur Kólumbísk-kanadísku tónlistarkonuna Lido Pimienta og plötu hennar Miss Colombia.
Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil um hlutverk forseta Íslands og veltir því fyrir sér hvort ný stjórnarskrá geti skýrt það.

Úrval úr dagskrá liðins dags og tónlist úr ýmsum áttum.
Næturútvarp Rásar 1.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Listasafn ASÍ hefur að undanförnu auglýst eftir myndlistarfólki sem vill sýna verk sín á dekkjaverkstæðum. Við heyrðum í Elísabetu Gunnarsdóttur, forstöðumanni listasafnsins um þetta óvenjulega verkefni.
Fjölmiðlar hafa greint frá því að nöfn 411 Íslendinga sé að finna í gagnaleka kínversks fyrirtækis sem fylgist með hegðun fólks á samfélagsmiðlum og netinu. Fullyrt er að samstarfsaðilar fyrirtækisins séu kínverskar varnarmála- og leyniþjónustustofnanir. Hanna Katrín Friðriksson, alþingismaður, er einn Íslendinganna, samkvæmt upplýsingum Stundarinnar. Við heyrðum í henni í þættinum.
Síðustu saumsporin hafa verið tekin í Njálurefilinn, en verkinu lauk nú í september, þó nokkuð á undan áætlun. Refillinn bíður nú upprúllaður eftir að eignast varanlegt heimili. Gunnhildur Edda Kristjánsdóttir er ein þeirra sem héldu utan um þetta stóra verkefni og við hringdum í hana austur á Hvolsvöll og fengum að vita meira.
Kæfisvefn er algengari en margir halda og einnig alvarlegri en margir halda. Hann getur haft áhrif á fjölda heilbrigðisþátta og skert lífsgæði fólks. Rannsóknarhópur á Landspítalanum með Þórarinn Gíslason, prófessor við Háskóla Íslands og yfirlækni Svefndeildar Landspítala, í fararbroddi, hefur rannsakað kæfisvefn í 20 ár í samvinnu við bandaríska fræðimenn og nú nýverið hlaut hópurinn veglegan rannsóknarstyrk. Þórarinn var á línunni og fræddi okkur um kæfisvefn og rannsóknir hópsins.
Guðmundur Jóhannsson mætti til okkar í Tæknihornið, sem nú er í boði hálfs mánaðarlega á þriðjudögum, og ræddi m.a. gagnasöfnun kínverska fyrirtækisins Zhenhuga Data Information og nýjustu kynningu Amazon.
Tónlist:
Baggalútur - Er ég að verða vitlaus eða hvað?
Bogomil Font og Flís - Þvo sér hendur.
Elíza Newman - Vaknaðu.
Alex Kapranos og Clara Luciani - Summer wine.
The La's - There she goes.
Harry Styles - Adore you.
OMAM - Visitor.
KK - Þetta lag er um þig.
Elvis Costello - Oliver?s Army.
GDRN - Áður en dagur rís (ft. Birnir).
Pálmi Gunnarsson - Hvers vegna varstu ekki kyrr?
Unnur Sara - Að gleyma sér.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Útvarpsfréttir.

Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
Morgunverkin 29. sepember 2020
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson
Hvanndalsbræður - X
Celeste - Little runnaway
London Beat - I?ve been thinking about you
Angurværð - Aðeins eina þrá
Lda Sport - The world is a place for kids going far
Sycamore tree - Home again
Suede - She?s in fashion
Supertramp - The logical song
Travis - The only thing Ft. Susanne Hoffs
Ciney Island babies - Swirl
Leonard Cohen - Suzanne
Valdimar & Úlfur - Upphaf
Talk Talk - Life?s what you make it
10:00
200.000 naglbítar - Núna og um framtíð alla
Mammút - Prince
Honne - no song without you
Sade - Still in love with you
Páll Finnur Páll - Býurin svevur
Steely Dan - Rikki don?r lose that number
everything Everything - Violent sun
Carpentrs - Superstar
Black Pumas - I?m ready
Post Malone - Circles
Beabadoobee - Woth it
Tayole Swift - Cardigan
Emiliana Torrini - Big Jumps
11:00
Lay Low - Little by little
George Michael & Astrid Gilberto - Desafinado
Kylie - Say something
New Order - Be a rebel
Pálmi Gunnarsson - Þitt fyrsta bros
Pálmi Gunnarsson - Beirút
Greentea peng - Hu Man
Depeche Mode - People are people
Ragnar Ólafsson - Minor scratch (Plata vikunnar - M.I.S.S.)
Hreimur - Lítið hús
Myrkvi - Gamechanger
Krummi - Fozen tearsdrops
12:00
Ásgeir Trausti - Bernskan
Björk - Pagan poetry
Beatles - Let it be

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Ríkisstjórnin kynnti á tólfta tímanum aðgerðir í átta liðum sem ætlað er að stuðla að félagslegum og efnahagslegum stöðugleika og halda lífskjarasamningnum á lífi, meðal annars lækkun tryggingagjalds og endurgreiðslu virðisaukaskatts. Aðildarfélög Samtaka atvinnulífsins greiða nú atkvæði um hvort segja eigi samningnum upp.
Paolo Macchiarini, sem græddi plastbarka í sjúklinga á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi, hefur verið ákærður fyrir að valda sjúklingunum alvarlegum skaða sem leiddi til dauða þeirra.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesskaga þurfa að búa sig undir jarðskjálfta af stærðinni sex til sex komma fimm í náinni framtíð. Þetta er mat jarðeðlisfræðings hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.
Ekkert lát er á bardögum í Nagorno-Karabakh. Fregnir berast af liðsflutningum stórskotaliða Armena og Asera fjarri héraðinu.
Starfsmönnum flugvallarins í Vestmannaeyjum hefur verið sagt upp störfum. Bæjarstjórinn í Eyjum segir að Isavia grípi hvert tækifæri sem gefist til þess að skerða þjónustu flugvalla úti á landi.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Umsjón: Matthías Már Magnússon og Lovísa Rut Kristjánsdóttir
Góð stemning í Popplandi dagsins, fullt af nýrri íslenskri og erlendri tónlist, þessar helstu tónlistarfréttir á sínum stað, Ísold kíkti í heimsókn og sagði frá nýju lagi og plata vikunnar sömuleiðis á sínum stað sem er nýjasta plata Ragnars Ólafssonar og heitir m.i.s.s.
Baggalútur - Er ég að Verða vitlaus eða Hvað?
Roxy Music - Avalon
Janelle Monáe - Turntables
Högni - Lífið Að Veði
Emilíana Torrini - Birds
Stero MC?s - Connected
Angurværð - Aðeins Eina Þrá
Ómland - Geymi Mínar Nætur
Spilverk Þjóðanna - Veðurglöggur
Anna - Addiction
Páll Finnur Páll - Býurin Svevur
Red Hot Chili Peppers - By The Way
Hylur - Me Myself and I
Ragnar Ólafsson - Needle And Thread
Doobie Brothers - Long Train Running
Rúnar Þór - Ferðast Um Hugann
Corinne Bailey Ray - Put Your Records On
Paul Simon - Diamonds on the Soles of her Shoes
Utangarðsmenn - Kyrrlátt Kvöld
200.000 Naglbítar - Núna og Um Framtíð Alla
Jan Mayen - On A Mission
Coldplay - Orphans
Beabadoobee - Worth It
Peter Gabriel - Solsbury Hill
Ragnar Ólafsson - Muddy Waters
OMAM - Visitor
ABC - The Look Of Love
Hjálmar - Segðu Já
James Blake - Godspeed
ABC - The Look Of Love
Krassasig - Þú Ert Eins og Hún
Gashi - Mama (ft. Sting)
Hjaltalín - Feels Like Sugar
Jón Jónsson - Dýrka Mest
Pálmi Gunnarsson - Vegurinn Heim
The XX - Angels
Ísold - Let Me Love You
Billie Eilish - All The Good Girls Go To Hell
Frid - Found You
Hvanndalsbræður - X
Valdimar - Upphaf
Adele - Cold Shoulder
Gyda - Andstæður
Myrkvi - Gamechanger
Tómas Welding - Go The Distance

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Í gær var fjallað um ný hraðpróf sem gefa niðurstöðu um það hvort fólk sé smitað af COVID-19 innan 15-30 mínútna. Suður-kóreska fyrirtækið SD Biosensor hefur fengið bráðabirgðaleyfi fyrir hraðprófi frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og bandaríska fyrirtækið Abbot vonast eftir slíku leyfi innan skamms. En hvernig virka þessi próf og ef þau virka af hverju er ekki fyrir löngu búið að setja þetta á markaðinn ? við ræðum við Ernu Magnúsdóttur sem er dósent í lífeinda og líffærafræði viðHáskóla Íslands
Mjaldrarnir Litla-Grá og Litla-hvít sem komu til Vestmannaeyja í fyrra eftir 10ára veru í sædýrasafni í Kína fengu loksins að taka sinn fyrsta sundsprett í Klettsvík í Vestmannaeyjum í gær. Í Klettsvík eiga þær hægt og rólega að venjast við náttúrulegra umhverfi og kaldari sjó. En hvernig hafa þær spjarað sig fyrsta sólahringinn í hafinu? Vignir Skæringsson hefur fylgst náið með þeim og hann er á staðnum.
Einn vinsælasti þátturinn í íslensku sjónvarpiu í dag er Ráðherrann. Í síðasta þætti fæddist sú pæling að láta þjóðina koma að því að semja stjórnarsáttmálann á Twitter. „Conceptualising Procedural Fairness in EU Competition Law“ eftir Hauk Loga Karlsson, nýdoktor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Titill bókarinnar gæti útlagst á íslensku sem „Greining hugmyndarinnar um sanngjarna málsmeðferð í evrópskum samkeppnisrétti“. Í bókinni fjallar höfundurinn um ekkert ósvipaða pælingu og þeirri sem var í Ráðherranum.
Eins og Síðdegisútvarp Rásar 2 fjallaði um á dögunum stendur yfir birkifræsöfnun á landsvísu og þar hefur Skógræktin og Landgræðslan tekið hönum saman og kvetur alla landsmenn til að fra út að tína birkifræ. Nýverið bættist þú við góður liðsauki. Lionsklúbbar landsins hafa ákveðið að aðstoða við tínsluna. Við heyrum í Jónasi Yngva Ásgrímssini umdæmisstjóra A umdæmi 109a.
Við ræddum fjölgun Covid smita í Bretlandi og hringdum í Sigurð Sverrisson í Liverpool.
Og einn ástsælasti söngari þjóðarinnar er sjötugur í dag - Pálmi Gunnarsson. Við hringjum í hann í tilefni dagsins

Útvarpsfréttir.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Samtök atvinnulífsins hafa valdið óþarfa óöryggi og usla meðal fólks með því að draga gildi lífskjarasamninganna í efa, segir forseti Alþýðusambands Íslands.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar milda höggið sem fyrirtækin í landinu hafa orðið fyrir segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Ljóst er þó að mörg fyrirtæki verði áfram í miklum vanda.
Formaður Samfylkingarinnar segir ýmislegt gott í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar, en ekki sé gengið nógu langt. Hann kallar sérstaklega eftir aðgerðum í þágu atvinnulausra.
Armenar saka Tyrki um að hafa skotið niður flugvél armenska flughersins. Þeir segjast hvergi hafa komið nærri. Hátt í eitt hundrað hafa fallið í bardögum um Nagorno-Karabakh.
Dómsmálaráðherra ætlar að leggja fram frumvörp í byrjun þings sem skýra refsiákvæði gagnvart kynferðislegri friðhelgi og umsáturseinelti.
Stærstu hluthafar í Icelandair Group fyrir hlutafjárútboð eru það ekki lengur. Lífeyrissjóður verslunarmanna var stærstur með tæp 12 prósent en á nú rúmlega tvö prósent. Fjárfestingasjóðurinn PAR Investment Partners átti tíu en á nú tæplega tvö prósent. Hvorugur sjóðurinn tók þátt í útboðinu.
Samtals hafa átta starfsmenn hjá VÍS, Vátryggingafélagi Íslands, greinst með kórónuveirusmit. Flestir þeirra greindust fyrir tíu dögum og þá fóru 75 starfsmenn í sóttkví og unnu að heiman.
Fyrstu kappræður bandarísku forsetaframjóðendanna Joes Bidens og Donalds Trumps verða í nótt. Chris Wallace, fréttamaður FOX News, stýrir umræðunum í Cleveland í Ohio. Sýnt verður beint frá kappræðunum í sjónvarpinu og á ruv.is og hefst útsending klukkan eitt í nótt.
Lengri umfjallanir:
Forsætisráðherra vonast til að þær aðgerðir sem kynntar voru í dag, létti undir hjá atvinnulífinu og auðveldi atvinnurekendum að taka afstöðu til þess að hvort segja eigi upp kjarasamningum. Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins ákvað í dag að hætta við atkvæðagreiðsluna meðal félagsmanna um hvort segja ætti upp samningum. ASÍ vill að stjórnvöld gefi vilyrði fyrir því að atvinnuleysisbætur verði hækkaðar. Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur tekur undir þessa körfu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti aðgerðir ríkisstjórnarinnar að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Arnar Páll Hauksson tekur saman og talar við Katrínu Ólafsdóttur.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesskaga þurfa að búa sig undir jarðskjálfta af stærðinni sex til sex komma fimm í náinni framtíð. Það sama á við um Húsvík og nágrenni. Þetta er mat Freysteins Sigmundssonar jarðe

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Það eru kanónur í bland við nýrri listamenn í Undiröldu kvöldsins. Helstu fréttir eru nýtt lag af væntanlegri plötu Bubba, auk laga úr nýrri heimildarmynd um geðhvörf og ýmislegs annars góðgætis héðan og þaðan.
Lagalistinn
Bubbi - Sól rís
Ísold Antonsdóttir - Let me love you
Högni Egilsson - Lífið að veði
Árný Margrét Sævarsdóttir - Ties
Ragnheiður Gröndal - Haustkvöld
Steindór - Yfir sundið
Ruddinn - Sunset

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson
Tónlistarfók með spriklandi ferskt tónlistarefni í þætti kvöldsins af Kvöldvaktinni eru meðal annars; Meginstreymi, Justin Bieber Porridge Radio, Fleet Foxes, Paul Kalkenbrenner, Fontaines DC og Taylor Swift.
Lagalistinn
Meginstreymi - Finnst þér sama og mér
Justin Bieber ft Chance the Rappser - Holy
Black Pumas - Im Ready
Sly & the Family Stones
Cayucas- Yeah Yeah Yeah
Porridge Radio - 7 Seconds
Matt Beringer - One More Second
Fleet Foxes - Can I Belive In You
Hjaltalín - Chestmark
Talk Talk - Lifes What You Make It
Valdimar & Úlfur - Upphaf
Charlotte Day Wilson - Summertime
Sports Team - Camel Crew
Elín Helena - Raunsæ rómantík
Haki ft Bubbi - Flýg
Big Sean ft Post Malone - Wolves
Arab Strap - The Turning Of Our Bones
LCD Soundsystem - North American Scum
Danger Mouse & Run the Jewels - Chase Me
Royal Blood - Troubles Coming
Hylur - My Myself and I
Fontaines DC - A Lucid Dream
Paul Kalkbrenner - Parachute
Bicep - Atlas
Emmsjé Gauti - Malbik
Frank Ocean - Ivy
OMAM - Visitor
Idles - Model Village
Celebs - Sætur
Sault - Free
Arlo Parks - Hurt
King Gizzard & the Lizard Whizzard - Straws In the Wind
Taylor Swift - Betty
Yo La Tengo - Wasnt Born To Follow
Valdís - Get Better
Flaming Lips - Will You Return
Prodigy - 3 Kilos
Bonobo & Totally Enormous Extinct Dinausaurs - Heartbreak

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Cat Stevens er maður dagsins í Rokklandi. Árið 1970, fyrir hálfri öld sendi hann frá sér plötuna Tea for the Tillerman. Hann var 22 ára gamall - þetta var fjórða platan hans og hún hefur að geyma lög eins og Wild World, Where do the children play og Father and son t.d. Hann hljómar alls ekki 22 ára á þessari plötu heldur frekar eins og lífsreyndur eldri maður. Það er hann svo sannarlega orðinn í dag. Hann er 72 ára gamall og það eru meira en 40 ár síðan hann tók Íslamstrú og tók upp nafnið Yusuf Islam. Hann hætti alfarið að syngja og spila og semja lög, seldi alla gítarana sína og gaf peningana til góðgerðarmála. En löngu síðar fannst honum að hann gæti látið það ganga saman, að vera múslimi og syngja og spila og semja lög - gefa út plötur og spila á tónleikum.
Og núna þegar Tea for the Tillerman platan er orðin hálfrar aldar gömul ákvað hann að gefa hana út í sérstökum afmælis-pakka eins og oft er gert, en hann lét ekki duga að endurhljóðblanda plötuna eins og sumir gera heldur tók hann hana upp alla aftur. Hann er með sama upptökustjóra með sér og gerði plötuna með honum í gamladaga - Paul Samwell Smith sem var bassaleikari Yardbirds á sínum tíma, og gítarleikarinn Alun Davies sem var á gömlu plötunni og hans hægri hönd á sínum tíma er líka á þeirri nýju.
Í Rokklandi í dag ætla ég að skoða þessa nýju útgáfu af Tea for the Tillerman og skauta yfir feril og ævi Cat Stevens/Yusuf og hann segir frá því sjálfur hvers vegna hann snérist til Islam á sínum tíma, hvers vegna hann hætti að spila og hvers vegna hann byrjaði svo aftur.
Cat Stevens er klassík.