17:03
Lestin
Miss Colombia, Já-fólkið og stjórnarskráin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Við spjöllum við Gísla Darra Halldórsson um nýja tölvuteiknaða stuttmynd hans Já-fólkið sem hlaut áhorfendaverðlaun barna á norrænu kvikmyndahátíðinni Nordisk Panorama á dögunum. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Gísli hefur starfað sem "kvikari", það sem á ensku er kallað animator, í um tvo áratugi, unnið að gerð fjölda tölvuteiknimynda og teiknimyndaþátta.

Við kynnum okkur Kólumbísk-kanadísku tónlistarkonuna Lido Pimienta og plötu hennar Miss Colombia.

Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil um hlutverk forseta Íslands og veltir því fyrir sér hvort ný stjórnarskrá geti skýrt það.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 52 mín.
,