18:30
Undiraldan
Nýtt frá Bubba, Högna, Röggu Gröndal og Ísold

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .

Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Það eru kanónur í bland við nýrri listamenn í Undiröldu kvöldsins. Helstu fréttir eru nýtt lag af væntanlegri plötu Bubba, auk laga úr nýrri heimildarmynd um geðhvörf og ýmislegs annars góðgætis héðan og þaðan.

Lagalistinn

Bubbi - Sól rís

Ísold Antonsdóttir - Let me love you

Högni Egilsson - Lífið að veði

Árný Margrét Sævarsdóttir - Ties

Ragnheiður Gröndal - Haustkvöld

Steindór - Yfir sundið

Ruddinn - Sunset

Var aðgengilegt til 29. september 2021.
Lengd: 30 mín.
,