19:00
Endurómur úr Evrópu
Styriarte-hátíðin í Austurríki

Hljóðritanir frá sumartónlistarhátíðum víðs vegar að úr Evrópu.

Hljóðritun frá tvennum tónleikum á Styriarte hátíðinni í Graz í Austurríki.

*Frá tónleikum Styriarte hátíðarhljómsveitarinnar 1. júlí sl. sem flutti verk eftir Johann Jospeh Fux og Antonio Vivaldi ásamt Mari Ladurner sópran og Valerio Contaldu tenór undir stjórn óbóleikarans, Alfredos Bernardinis.

*Frá kammertónleikum 20. júlí sl. þar sem flutt var píanótríó nr. 5 í D-dúr op. 70, Geister-tríóið eftir Ludwig van Beethoven.

Flytjendur eru Fritz Kirchern á fiðlu, Luis Zorita á selló og Florian Birsak á fortepíanó.

Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir.

Var aðgengilegt til 29. október 2020.
Lengd: 1 klst. 30 mín.
,