16:05
Síðdegisútvarpið
29.september

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Í gær var fjallað um ný hraðpróf sem gefa niðurstöðu um það hvort fólk sé smitað af COVID-19 innan 15-30 mínútna. Suður-kóreska fyrirtækið SD Biosensor hefur fengið bráðabirgðaleyfi fyrir hraðprófi frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og bandaríska fyrirtækið Abbot vonast eftir slíku leyfi innan skamms. En hvernig virka þessi próf og ef þau virka af hverju er ekki fyrir löngu búið að setja þetta á markaðinn ? við ræðum við Ernu Magnúsdóttur sem er dósent í lífeinda og líffærafræði viðHáskóla Íslands

Mjaldrarnir Litla-Grá og Litla-hvít sem komu til Vestmannaeyja í fyrra eftir 10ára veru í sædýrasafni í Kína fengu loksins að taka sinn fyrsta sundsprett í Klettsvík í Vestmannaeyjum í gær. Í Klettsvík eiga þær hægt og rólega að venjast við náttúrulegra umhverfi og kaldari sjó. En hvernig hafa þær spjarað sig fyrsta sólahringinn í hafinu? Vignir Skæringsson hefur fylgst náið með þeim og hann er á staðnum.

Einn vinsælasti þátturinn í íslensku sjónvarpiu í dag er Ráðherrann. Í síðasta þætti fæddist sú pæling að láta þjóðina koma að því að semja stjórnarsáttmálann á Twitter. „Conceptualising Procedural Fairness in EU Competition Law“ eftir Hauk Loga Karlsson, nýdoktor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Titill bókarinnar gæti útlagst á íslensku sem „Greining hugmyndarinnar um sanngjarna málsmeðferð í evrópskum samkeppnisrétti“. Í bókinni fjallar höfundurinn um ekkert ósvipaða pælingu og þeirri sem var í Ráðherranum.

Eins og Síðdegisútvarp Rásar 2 fjallaði um á dögunum stendur yfir birkifræsöfnun á landsvísu og þar hefur Skógræktin og Landgræðslan tekið hönum saman og kvetur alla landsmenn til að fra út að tína birkifræ. Nýverið bættist þú við góður liðsauki. Lionsklúbbar landsins hafa ákveðið að aðstoða við tínsluna. Við heyrum í Jónasi Yngva Ásgrímssini umdæmisstjóra A umdæmi 109a.

Við ræddum fjölgun Covid smita í Bretlandi og hringdum í Sigurð Sverrisson í Liverpool.

Og einn ástsælasti söngari þjóðarinnar er sjötugur í dag - Pálmi Gunnarsson. Við hringjum í hann í tilefni dagsins

Var aðgengilegt til 29. september 2021.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,