12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 29. september 2020

Útvarpsfréttir.

Ríkisstjórnin kynnti á tólfta tímanum aðgerðir í átta liðum sem ætlað er að stuðla að félagslegum og efnahagslegum stöðugleika og halda lífskjarasamningnum á lífi, meðal annars lækkun tryggingagjalds og endurgreiðslu virðisaukaskatts. Aðildarfélög Samtaka atvinnulífsins greiða nú atkvæði um hvort segja eigi samningnum upp.

Paolo Macchiarini, sem græddi plastbarka í sjúklinga á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi, hefur verið ákærður fyrir að valda sjúklingunum alvarlegum skaða sem leiddi til dauða þeirra.

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesskaga þurfa að búa sig undir jarðskjálfta af stærðinni sex til sex komma fimm í náinni framtíð. Þetta er mat jarðeðlisfræðings hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.

Ekkert lát er á bardögum í Nagorno-Karabakh. Fregnir berast af liðsflutningum stórskotaliða Armena og Asera fjarri héraðinu.

Starfsmönnum flugvallarins í Vestmannaeyjum hefur verið sagt upp störfum. Bæjarstjórinn í Eyjum segir að Isavia grípi hvert tækifæri sem gefist til þess að skerða þjónustu flugvalla úti á landi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,