06:50
Morgunvaktin
Forsendur lífskjarasamninga flókið mál

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Eru forsendur lífskjarasamningsins brostnar? Ja, ekki er sama hvern við spyrjum, um þetta er deilt, og reyndar er skilningur forystumanna launþega annars vegar og vinnuveitenda hins vegar svo ólíkur að helst mætti ætla að þeir væru að tala um sitt hvort málið. En hverjar eru helstu forsendur og hvernig ríma þær við stöðuna í efnahagslífinu og horfurnar fram undan? Við skoðuðum þessi mál með Þórði Snæ Júlíussyni, ritstjóra Kjarnans. Hann ræddi líka um samfélagslega ábyrgð lífeyrissjóða og skattamál Donalds Trump Bandaríkjaforseta.

30 ár eru síðan þýsku ríkin tvö: Austur og Vestur Þýskaland voru sameinuð og úr varð Sambandslýðveldið Þýskaland. Deildar meiningar eru um hvernig til tókst og þá einkum hvernig austur-hlutinn hafi farið út úr sameiningunni. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá í Þýskalandsspjalli eftir Morgunfréttirnar. Hann talaði líka um umræður um bandarísku forsetakosningarnar í Þýskalandi, en einhverjir spekingar telja að þær skipti Þjóðverja meira máli en kosningar í Þýskalandi. Þá hefur hjónaskilnuðum fjölgað í kórónuveirukrísunni.

Öldum saman voru Hólar í Hjaltadal eitt helsta menningarsetur landsins. Þar var biskupsstóll og skóli og auðvitað prentsmiðjan hans Jóns Arasonar svo fátt eitt sé nefnt. Raunar má segja að á sínum tíma hafi hálfu landinu, meira eða minna, verið stýrt frá Hólum. Enn hefur Hólafólk rík áhrif; Háskólinn á Hólum sér samfélaginu fyrir sérfræðingum í ferðaþjónustu, fiskeldi og hestafræðum. Við röbbuðum við Erlu Björk Örnólfsdóttur rektor skólans á níunda tímanum.

Tónlist: Sunday morning coming down - Jerry Lee Lewis, Ekki dauðir enn - Mannakorn, Ó þú - Mannakorn

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,