13:00
Kerfið
Betrun 5. þáttur - Bílageymsla verður fangageymsla

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.

Fá dómsmál hafa vakið jafn mikla athygli í íslenskri nútímaréttarsögu og Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Tryggvi Rúnar Leifsson sat í gæsluvarðhaldi í rúm fjögur ár eða yfir 1500 daga í tengslum við rannsókn málsins. Þar af í einangrun í Síðumúlafangelsinu á annað ár.

Viðmælendur í þættinum eru Hreinn Hákonarson og Tryggvi Rúnar Brynjarsson. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir.

Í þættinum eru spilaðar gamlar upptökur með Tryggva Rúnari Leifssyni og Jóni Bjarman. Gíga Hólmgeirsdóttir er lesari í þættinum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst.
    ,