07:03
Morgunvaktin
Ísland og Kína, Berlínarspjall og kýrin Huppa

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Ísland þarf að marka sér stefnu gagnvart Kína, áður en aðrir móta hana fyrir okkur. Þetta segir Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir, sérfræðingur hjá Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, í nýrri grein í tímariti Vörðu. Hún fór yfir samskipti Íslands og Kína, og útskýrði hvað gæti falist í stefnu af þessu tagi.

Arthúr Björgvin Bollason fjallaði meðal annars um samskipti Þjóðverja og Rússa, fyrirhuguð fjöldamótmæli víða um Þýskaland um næstu helgi og komu erlendra verkamanna til landsins fyrir 65 árum. Þeir gjörbreyttu þýsku efnahagslífi.

Svo var fjallað um kú nokkra sem kom í heiminn í nóvemberbyrjun 1926. Hún fékk nafnið Huppa og reyndist þar kominn einhver mesti einstaki kynbótagripur í íslenskri búfjárrækt og jafnvel á heimsvísu. Jón Viðar Jónmundsson búvísindamaður sagði okkur frá Huppu.

Tónlist:

Abba - Dancing queen.

Abba - When I kissed the teacher.

Udo Jürgens - Grischischer Wein.

Kenny Rogers - Coward of the country.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst. 55 mín.
    ,