Tónleikur

Karlmannlegt og þjóðlegt

Tónleikurinn verður að þessu sinni bæði einstaklega karlmannlegur og þjóðlegur, því í þættinum verða eingöngu leikin íslensk einsöngslög sungin af körlum og tvö karlakóralög að auki.

Fjórir einsöngvarar syngja margar af helstu perlum íslenska sönglagsins, þeir Kristinn Hallsson og Kristinn Sigmundsson bassbaritónar, og Einar Kristjánsson og Gunnar Guðbjörnsson tenórar, píanóleikarar eru þeir Fritz Weisshappel, Árni Kristjánsson og Jónas Ingimundarson. Auk þess syngur Karlakór Reykjavíkur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Tónleikur

Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Þættir

,