Tónleikur

Frönsk tónlist

Haldið verður áfram að leika franska tónlist í Tónleiknum, og hér eru mjúklátir strengjatónar í forgrunni; við erum áfram stödd á mörkum 19. og 20. aldar, enda mikil gerjun í franskri tónlist á þeim tíma.

Í þættinum verða flutt tvö verk eftir Ernest Chausson og tvö eftir Gabriel Fauré og að síðustu er ein sónata eftir Claude Debussy.

Erest Chausson er fyrsta tónskáld þáttarins, og flutt verður eitt hans þekktasta verk; Poéme fyrir fiðlu og hljómsveit, þar sem flytjendur eru Isabelle Faust og Þýska sinfóníuhljómsveitin í Berlín, undir stjórn Marko Letonja. Síðara verkið eftir Causson, er Péce op. 39, fyrir selló og píanó, flytjendur þess eru Truls Mørk sem leikur á selló og Hakon Austbö á píanó.

Eftir Gabriel Fauré verða flutt tvö lítil stykki fyrir selló og píanó, hin þekkta Sicilienne, og Serenaða. Síðasta verk þáttarins er svo sónata fyrir selló og píanó eftir Claude Debussy, sem var eitt af síðustu verkunum sem hann lauk við.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Tónleikur

Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Þættir

,