12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 27. október 2026

Útvarpsfréttir.

Tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar verður sagt upp í umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum sem verða kynntar síðar í dag.

Kjörsókn hefur verið mikil í Ísrael í morgun í fyrstu þingkosningum frá hryðjuverkaárás Hamas í október 2023. Ögurstund er runnin upp fyrir Benjamín Netanjahú forsætisráðherra og minni flokkar gætu ráðið úrslitum.

Leit er hafin að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar í sprungu í Grindavík. Sigmenn fóru niður í sprunguna með rústabjörgunarmyndavél að kanna aðstæður.

Vopnahlé sem hófst í bænum Oleshky í Úkraínu í nótt hefur haldið. Forseti Finnlands og forsætisráðherra Noregs ræddu við forseta Rússlands í síma í morgun og sögðu spjallið hafa verið hreinskiptið og innihaldsríkt.

Ljósleiðarinn verður ekki seldur ódýrt komi til einkavæðingar segir forstjóri Orkuveitunnar. Þrátt fyrir skref í þá átt er ekki víst að fyrirtækið verði selt.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar lýsir fullu trausti á Katrínu Sigurjónsdóttur sveitarstjóra, þrátt fyrir viðskiptatengsl hennar við Samherja.

Ólafur Ingi Skúlason er hættur sem þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta. Liðið varð bikarmeistari undir hans stjórn í síðasta mánuði.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 22 mín.
    ,