13:00
Samfélagið
Barnaverndarkerfið og ferðaþjónusta í Grænlandi

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Netfang: [email protected]

Barnaverndarkerfið hefur verið mikið til umræðu. Tómas Hrafn Sveinsson formaður umdæmisráðs barnaverndar Reykjavíkur ræddi við Fanneyju Birnu Jónsdóttur um stöðu barnaverndar í dag, uppbyggingu og gang kerfisins og feril málanna sem koma inn á borð barnaverndarnefnda.

Og síðan ætlum við að fræðast aðeins um ferðaþjónustu í Grænlandi, eins og hún blasti við árið 2021. Við endurflytjum viðtal sem Þórhildur Ólafsdóttir tók hér í Samfélaginu við Hjört Smárason, sem var þá forstjóri Visit Greenland: um ferðaþjónustu og uppbyggingu hennar og lærdóminn sem Grænlendingar ætluðu að draga af íslensku ferðamannasprengingunni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,