07:03
Morgunútvarpið
Stórmeistari,símalaus ungmenni,offita og afþreying í vetrarfríinu

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Vetrarfríin eru framundan í mörgum skólum og leikskólum og Borgarbókasafnið er til þjónustu reiðubúið. Þangað geta ráðvilltir foreldrar leitað um helgina kíkt á fjölbreytta dagskrá. Bingó, brandarar, smiðjur, tónlist, ratleikir og margt fleira verður í boði og hún Hólmfríður Ólöf Ólafsdóttir kíkti í Morgunútvarpið og sagði okkur frá þessu.

Fréttir um að rykbindiefni landsins hafi klárast á landinu vakti mikla athygli í síðustu viku. Svifryksmengun hefur gert íbúum höfuðborgarsvæðisins lífið leitt og fannst mörgum tímasetningin á rykbindiefnisskortinum bagalegur. En hvað er að frétta af þessum máli? Við kröfðumst svara frá G. Pétri Matthíassyni hjá Vegagerðinni.

Símafrí í grunnskólum hefur verið mikið til umræðu undanfarið og Rebekka Lind Guðmundsdóttir, kennari í Kerhólsskóla á Borg í Grímsnesi, er með áhugavert innlegg í umræðuna. Hún er stödd með nemendur í 7. bekk í skólabúðum á Reykjum og þar eru engir símar leyfðir í heila viku. Hún var á línunni og sagði okkur hvernig nemendurnir taka í það.

Heilbrigðisráðherra vill skera upp herör gegn offitu og skoðar nú meðal annars að setja á óhollustuskatt, endurskoða greiðsluþátttöku í þyngdarstjórnunarlyfjum og fjölga meðferðarúrræðum. Hvernig líst minnihlutanum á þingi á þessar tillögur? Eru þau kannski með einhverjar aðrar lausnir á þessum mikla vanda? Sigríður Á. Andersen frá Miðflokknum og Ingibjörg Isaksen frá Framsóknarflokknum eiga sæti í velferðarnefnd Alþingis og þær kíktu til okkar.

Stórmeistarinn Vignir Vatnar hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frábæran árangur við taflborðið og hversu snjall hann er að koma íþróttinni á framfæri á samfélagsmiðlum. Þar sýnir hann líka hvernig hann fór að því að leggja besta skákmann samtímans, Magnus Carlsen ásamt því að birta skemmtilegt efni frá ferðalögum sínum um heiminn. Vignir Vatnar kíkti í Morgunútvarpið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,