18:00
Kvöldfréttir útvarps
Kólnun á byggingamarkaði, handtaka fyrrverandi prins, sanngirnisbætur, framboð og samgönguáætlun

Fréttir

Fréttir

Samtök iðnaðarins spá samdrætti í byggingu íbúða næsta árið. Framkvæmdastjóri þeirra segir markaðinn fastan í vítahring vaxta og verðbólgu.

Lögmaður þeirra sem krefjast bóta fyrir illa meðferð á barnaheimilinu við Hjalteyri segir ríkið hafa viðurkennt bótaskyldu fyrir tveimur árum; þegar þáverandi dómsmálaráðherra lagði fram frumvarp um sanngirnisbætur.

Innanríkisráðuneyti Bretlands var látið vita áður en Andrew Mountbatten Windsor, bróðir Karls konungs, var handtekinn í morgun. Prófessor við háskólann í London segir þetta mál ekki eiga sér fordæmi á síðustu öldum.

Miðflokkurinn og Viðreisn ætla að bjóða fram í helmingi fleiri sveitarfélögum en í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Píratar bjóða líklega aðeins fram í Reykjavík.

Bandaríkjaher er sagður reiðubúinn til árása á Íran, jafnvel um komandi helgi. Bandaríkjaforseti hefur ekki fyrirskipað árás, en hluti flota hersins er þegar kominn til Persaflóa og Arabíuhafs og enn er von á liðsauka.

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir og Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,