12:42
Þetta helst
Svona kom saga Manongs til rithöfundarins Sjóns

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Í þættinum í gær var sagt frá sögu Suður-Afríkumannsins Johannes Manong hér á Íslandi á árunum 1964 og 1965.

Manong lenti í kynþáttaofbeldi frá nýnasistum á Íslandi þegar hann vildi setjast hér að til að leggja stund á tannlækningar og var hrakinn frá landinu. Bréf með hakakrossi var sent til Manongs og haldin var krossbrenna fyrir utan Stúdentagarðana sem var í fjölmiðlum sögð minna á aðferðir Ku Klux Klan í Bandaríkjunum.

En af hverju er fjallað um þessa sögu Manongs hér og hvernig tengist hún nútímanum?

Ástæðan er sú að rithöfundurinn Sigurjón Birgir Sigurðsson eða Sjón fékk ábendingu um þessa sögu Manongs eftir að hann gaf út skáldsöguna Korngul augu, grátt hár árið 2019, Sjón kannaði hana sjálfur og kom sögunni svo á framfæri við fjölmiðla. Í bókinni fjallar Sjón um nýnasistasellu sem var starfandi í Reykjavík á sjötta og sjöunda áratugnum.

Í þættinum er rætt við Sjón um þessa atburðarás.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,