16:05
Víðsjá
Jarðvegur Önnu Rúnar, Mamma mjöll og draugapennar

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Á einkasýningu Önnu Rúnar Tryggvadóttur, Jarðvegi, taka á móti gestum fagurlega mótaðar vatnslitamyndir, órætt, líkamlegt landslag sem rennur til og ofan í jarðveginn. Að baki býr leynifélag kvenlegra gilda og viska sem byggir á tilfinningu, alúð og reynslu frekar en á hlutlausri, fjarlægri athugun. Síðustu ár hefur Anna Rún gjarnan unnið með náttúruleg fyrirbæri og ferli og beint með því sjónum okkar að stóra samhenginu. Við lítum við í gallerí Þulu í Víðsjá dagsins, heyrum rýni Gauta Kristmannsonar í venezúelsku skáldsöguna Mamma mjöll og minningar hennar og rifjum upp hugleiðingar Tómasar Ævars um draugapenna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,