07:03
Morgunútvarpið
Pílumeistari,breytingaskeiðið,flugumferð yfir Kársnesinu og rándýr klósettferð

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Heilsusálfræðingurinn Ragnhildur Þórðardóttir, okkar allra besta Ragga Nagli, birti á dögunum, leiðbeiningar fyrir maka kvenna á breytingaskeiðinu. Þetta gerði hún að eigin sögn til að tryggja öryggi á hættusvæði og koma í veg fyrir refsiaðgerðir. Á meðal ráða eru ekki smjatta, anda hátt eða sötra. Og alls ekki hósta. Ragga var á línunni frá Köben og lagði okkur línurnar.

Heitar umræður sköpuðust í baklandi ferðaþjónustunnar á dögunum þegar notandi birti skilti á veitingastað þar sem kom fram að það kostaði 950 krónur fyrir aðra en viðskiptavini að nota klósettið. Einhverjum fannst þetta til marks um að Ísland væri að verðleggja sig út af kortinu í ferðaþjónustu á meðan aðrir bentu á að veitingastaðir yrðu að fá eitthvað úr því að taka á móti heilu rútunum af ferðamönnum sem nýtti sér enga aðra þjónustu en salernin. En hvernig er staðan í þessum málum, nú þegar stendur til að hækka virðisaukaskatt á baðlón? Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, kom til okkar.

Íbúar á Kársnesi hafa tekið eftir aukinni flugumferð yfir heimili þeirra. Þyrlur og einkaþotur fljúga yfir svæðið með talsverðum látum sem varð til þess að Finnur Pálmi Magnússon, fjölskyldufaðir í Kópavogi, ákvað að kortleggja umferðina til að komast að því hvort umferðin væri að aukast eða hvort hann sé hreinlega bara orðinn miðaldra. Hann kom til okkar og fór yfir þetta með okkur.

Pílukastarinn Alexander Veigar Þorvaldsson varð á dögunum fyrsti Íslendingurinn sem fær samning við stórfyrirtæki í pílukastheiminum. Hann sagði í samtali við Vísi að samningurinn við Shots breyti miklu fyrir sig en samningurinn tryggir honum meðal annars sína eigin pílur. Við fengum Alexander til okkar í spjall um píluna, sem tröllríður öllu um þessar mundir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,