07:03
Morgunvaktin
Grundarfjörður, Berlínarspjall og byggkorn frá landnámsöld

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

18. ágúst er býsna merkilegur dagur í sögu lands og þjóðar. Þann 18. ágúst árið 1786 tilkynnti kóngur um afnám einokurverslunar í landinu og veitti sex bæjum - segjum þorpum - kaupstaðarréttindi. Þar á meðal var Grundarfjörður - 240 ára afmæli bæjarins er fagnað í dag. Við slógum á þráðinn til Birkis Jóns Jónssonar nýs bæjarstjóra Grundarfjarðar.

Arthúr Björgvin Bollason var á sínum stað og í Berlínarspjalli kom Karl Marx við sögu; getur verið að spádómar hans frá miðri nítjándu öld fari að rætast? Arthúr sagði okkur líka frá stjórnmálamanni nokkrum í klípu og áhyggjum menningarforkólfa í Sachsen-Anhalt af að lista- og menningarlíf í fylkinu leggist af.

Þrjú byggkorn staðfesta aldur landsnámsbyggðar var fyrirsögn fréttar sem birtist á ruv.is fyrr í mánuðinum, í kjölfar fréttar sama efnis í sjónvarpinu kvöldið áður. Þrjú byggkorn! Við heyrðum meir um þau þegar við ræddum við Margréti Hrönn Hallmundsdóttur fornleifafræðing.

Tónlist:

Árný Margrét - In a dream.

Árný Margrét - Maybe I've Wasted My Time.

Lovin' Spoonful - Summer in the city.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,