Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
18. ágúst er býsna merkilegur dagur í sögu lands og þjóðar. Þann 18. ágúst árið 1786 tilkynnti kóngur um afnám einokurverslunar í landinu og veitti sex bæjum - segjum þorpum - kaupstaðarréttindi. Þar á meðal var Grundarfjörður - 240 ára afmæli bæjarins er fagnað í dag. Við slógum á þráðinn til Birkis Jóns Jónssonar nýs bæjarstjóra Grundarfjarðar.
Arthúr Björgvin Bollason var á sínum stað og í Berlínarspjalli kom Karl Marx við sögu; getur verið að spádómar hans frá miðri nítjándu öld fari að rætast? Arthúr sagði okkur líka frá stjórnmálamanni nokkrum í klípu og áhyggjum menningarforkólfa í Sachsen-Anhalt af að lista- og menningarlíf í fylkinu leggist af.
Þrjú byggkorn staðfesta aldur landsnámsbyggðar var fyrirsögn fréttar sem birtist á ruv.is fyrr í mánuðinum, í kjölfar fréttar sama efnis í sjónvarpinu kvöldið áður. Þrjú byggkorn! Við heyrðum meir um þau þegar við ræddum við Margréti Hrönn Hallmundsdóttur fornleifafræðing.
Tónlist:
Árný Margrét - In a dream.
Árný Margrét - Maybe I've Wasted My Time.
Lovin' Spoonful - Summer in the city.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Í Bæjarperlum vikunnar er ferðinni heitið á Eyrarbakka. Þar var rætt við Lindu Ásdísardóttur, sérfræðing hjá Byggðasafni Árnesinga, og komið við í þremur sýningarhúsum safnsins; Húsinu, Kirkjubæ og Sjóminjasafninu. Linda sagði frá sögu Eyrarbakka, samgöngum í Árnessýslu áður en stórfljótin voru brúuð, lífi alþýðufólks á millistríðsárunum, sjósókn við Suðurströndina og mannlífinu á Eyrarbakka í dag. Hinrik Wöhler er umsjónarmaður Bæjarperla í Sumarmálum.
Sextánda þáttaröðin af Með okkar augum fer í gang á morgun. Magnús Orri Arnarson og Elva Björg Gunnarsdóttir eru meðal umsjónarfólks og dagskrárgerðarfólks í þessari vinsælu og margverðlaunuðu sjónvarpsþáttaröð. Þau segja okkur frá viðfangsefnum nýju þáttanna.
Fugl dagsins er á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Ég heyri vorið /Sextett Ólafs Gauks. Lag: Oddgeir Kristjánsson. Texti: Ási í bæ.
The Window Cleaner/ Geoge Formby. Höf.: Cliff & Glifford.
Augun þín blá/Uppáhellingarnir(Jón Múli og Jónas Árnasynir)
Operator/Manhattan Transfer.
Nótt/Friðrik Ómar Hjörleifsson. Lag: Gunnar Þórðarson. Texti: Þorsteinn Eggertsson.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist
Útvarpsfréttir.
Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu hélt áfram í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. Fleiri sakborningar gefa skýrslu fyrir dómi í þessu máli þar sem hópur fólks misþyrmdi manni, kúgaði af honum fé og sendi úr landi.
Sameiginleg varnaræfing Bandaríkjanna og Íslands, Norður-Víkingur, var sett á Keflavíkurflugvelli í morgun.
Samtök hernaðarandstæðinga telja að vera herliðs á Íslandi snúist ekki um varnir þess, heldur Bandaríkjanna. Ísland eigi á hættu að dragast inn í hernaðarátök.
Yfir fjögur hundruð íbúar í Fjallabyggð krefjast úrbóta vegna langvarandi vatnsleka í Héðinsfjarðargöngum. Vegagerðin boðar viðgerðir í haust.
Réttarhöld byrja í dag í máli meira en helmings ríkja í Bandaríkjunum gegn Meta, móðurfyrirtæki Instagram og Facebook, sem er sakað um að hanna vísvitandi ávanabindandi miðla sem lokki að ungt fólk og valdi því skaða.
Frá mánaðamótum geta gestir ekki borðað hádegismat á Vitatorgi um helgar. Skrifstofustjóri hjá borginni segir lokun eldhússins á Vitatorgi meginástæðu breytinganna.
Pysjurnar eru farnar á flug í Vestmannaeyjum en sumar þeirra blindast af götuljósum og komast ekki alla leið út á sjó. Á lundaspítala er hlúð að þeim áður en þeim er sleppt aftur út á sjó.
Kvenfélag Grímsness stendur fyrir árlegri tombólu á Borg í hundraðasta sinn um helgina. Þar verða engin núll.
Evrópumót í áhaldafimleikum hefst á morgun. Íslenska sveitin er staðráðin í að komast í úrslit.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í þættinum í gær var sagt frá sögu Suður-Afríkumannsins Johannes Manong hér á Íslandi á árunum 1964 og 1965.
Manong lenti í kynþáttaofbeldi frá nýnasistum á Íslandi þegar hann vildi setjast hér að til að leggja stund á tannlækningar og var hrakinn frá landinu. Bréf með hakakrossi var sent til Manongs og haldin var krossbrenna fyrir utan Stúdentagarðana sem var í fjölmiðlum sögð minna á aðferðir Ku Klux Klan í Bandaríkjunum.
En af hverju er fjallað um þessa sögu Manongs hér og hvernig tengist hún nútímanum?
Ástæðan er sú að rithöfundurinn Sigurjón Birgir Sigurðsson eða Sjón fékk ábendingu um þessa sögu Manongs eftir að hann gaf út skáldsöguna Korngul augu, grátt hár árið 2019, Sjón kannaði hana sjálfur og kom sögunni svo á framfæri við fjölmiðla. Í bókinni fjallar Sjón um nýnasistasellu sem var starfandi í Reykjavík á sjötta og sjöunda áratugnum.
Í þættinum er rætt við Sjón um þessa atburðarás.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Tónlist hefur fylgt Unni Malín Sigurðardóttur eiginlega alla ævi. Snemma lærði hún að blása í trompet en færði sig svo á tenórhorn, tenórtúbu eða euphonium, eftir því hvaða heiti mönnum er tamt, en lærði líka söng. Um þrítugt áskotnaðist henni svo gítar og þá byrjaði hún að semja fjölbreytta flóru tónverka, allt frá tilraunamúsík í strengjaverk, kórverk og þjóðlagasöng, svo fátt eitt sé talið.
Lagalisti
Óútgefið - Glerhvolf
Óútgefið - Shy Zen Achtung
Óútgefið - No Conclusion
Óútgefið - Kósímós
Óútgefið - Slagarinn
Óútgefið - Enga grátkóra
Óútgefið - Stormur
Ferhendur tjaldarans - Einn vísifingur hreyfist
Óútgefið - Nuuk
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Árni Thorsteinsson tónskáld var sonur Árna Thorsteinssonar landfógeta og bróðursonur Steingríms Thorsteinssonar skálds og rektors í Reykjavík og ólst upp í bænum fyri aldamótin 1900. Hann skrifaði seinna æviminningar sínar, sem nefndust Harpa minninganna, og í þættinum er lesið ýmislegt frá æskudögum hans og athyglin beinist ekki síst að tónlistarlífinu.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Á einkasýningu Önnu Rúnar Tryggvadóttur, Jarðvegi, taka á móti gestum fagurlega mótaðar vatnslitamyndir, órætt, líkamlegt landslag sem rennur til og ofan í jarðveginn. Að baki býr leynifélag kvenlegra gilda og viska sem byggir á tilfinningu, alúð og reynslu frekar en á hlutlausri, fjarlægri athugun. Síðustu ár hefur Anna Rún gjarnan unnið með náttúruleg fyrirbæri og ferli og beint með því sjónum okkar að stóra samhenginu. Við lítum við í gallerí Þulu í Víðsjá dagsins, heyrum rýni Gauta Kristmannsonar í venezúelsku skáldsöguna Mamma mjöll og minningar hennar og rifjum upp hugleiðingar Tómasar Ævars um draugapenna.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Jason Arday átti sér ævintýralega sögu, sonur Ganískra innflytjenda í Bretlandi sem var á einhverfurófi, lærði ekki að tala fyrr en 11 ára og lesa 18 ára - en var orðinn yngsti svarti prófessor Cambridge háskóla fyrir fertugt.
Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið fjallað ítarlega og stundum heiftúðlega í breskum fjölmiðlum um Arday en hann var sakaður um ritstuld og að hafa ýkt eða logið ýmsu um eigin ævi. Hann varð að skotspón í menningarstríðum Bretlands um kynþætti og háskólamenntun, einhver umtalaðasti og umdeildasti maður landsins.
Um helgina bárust svo þær fréttir að hann væri látinn, hefði fallið fyrir eigin hendi.
Við ræðum við Gauta Sigþórsson sem hefur starfað í rúma tvo áratugi í bresku háskólaumhverfi um Jason Arday.
Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Hvaða skoðun hefur unga fólkið á mögulegri inngöngu Íslands í ESB og hvernig ætlar það að kjósa þann 29. ágúst? Samtökin Áfram Ísland, sem hvetja til þess að fólk segi nei, og SJÁ, sem hvetja til þess að fólk segi já, sendu sína fulltrúa í Sama viðtalið.
Þau Anton Berg Sævarsson og Kristrún Ágústsdóttir ræddu fram og aftur um kosti og galla aðildar, hvað tekur við ef þjóðin segir já, vexti go verðbólgu og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu. Þá var einnig rætt um umræðuna, falsfréttir og mikilvægi þess að kynna sér málið vel.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Tugir milljarða fara í uppbyggingu margskonarinnviða á Íslandi þessi misserin. Íslenskir ráðamenn og yfirhershöfðingi NATO segja mikilvægi Íslands aukast vegna stöðu heimsmála og fjárfestinga þörf. Við skoðum hvaða verkefni eru hafi eða að hefjast.
Þúsundir mála hafa verið höfðuð í Bandaríkjunum á hendur Meta, móðurfyrirtæki Feisbúkk og Instagram vegna þess að börn og unglingar séu lokkuð að samfélagsmiðlum og þau gerð háð þeim þrátt fyrir að vitað sé að þeir geti valdið þeim skaða. Meta þvertekur fyrir að gróði sé settur ofar hagsmunum barna en í dag hófust réttarhöld í fyrir alríkisdómstól í Kaliforníu sem gæti breytt samfélagsmiðlum.
Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalistinn:
Moses Hightower - Byrjar ekki vel.
Liljukórinn - Leggur reyki.
Bowie, David - Across the Universe.
Sigurður Flosason, Nilsson, Mattias - 3. Darkness falls.
Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - One day.

frá Veðurstofu Íslands
Þessi hátíð hefur verið haldin frá árinu 1983 í ýmsum myndum í bænum Cully við Genfarvatn - miðja vegu milli Lausanne og Montreux, sem enn er vettvangur einhverrar nafntoguðustu djasshátíðar heims.
Vi heyrum hljóðritun af tónleikum hljómsveitarinnar The Bad Plus, sem byrjaði sitt samstarf formlega árið 2000 þó að meðlimirnir hefðu þá þekkst og spilað saman í rúman áratug. The Bad Plus byrjaði sem píanótríó og starfaði þannig í hálfan annan áratug, eða þangað til píanistinn Ethan Iverson sagði skilið við félgaga sína - bassaleikarann Reid Anderson og trommarann Dave King. Þá tók píanistinn Orrin Evans við og stóð vaktina í rúm tvö ár, eða þangað til Anderson og King ákváðu að breyta til og segja skilið við píanótrío hugmyndina, enda má segja að varla sé hægt að ráða píanista sem aukamann í tríó sem þetta. Úr varð um tíma kvartett með gítarleikaranum Ben Monder og saxófónleikaranum Chris Speed.
Það var síðan í byrjun ársins 2026 sem Andersson og King tilkynntu að þeir ætluðu að leysa upp The Bad Plus endanlega með tónleikaferð sem standa mun yfir meginhluta þessa árs. Það er sem sagt þessi útgáfa The Bad Plus-lokaútgáfan kannski, sem við heyrum leika á tónleikunum frá Cully hátíðinni.
Reid Andersson og Dave King sem fyrr á bassa og trommur, en það eru engir aukvisar sem stíga á svið til að spila á píanó og saxófón með þeim. Craig Taborn á píanó og Chris Potter á saxófón. Tveir helstu boðberar nýrrar djasstónlistar hér á ferð.
Dagskrá:
Keith Jarrett (1945) - If The Misfits (Wear it)
Dewey Redman (1931) - Gotta get Some Sleep
Keith Jarrett (1945) - Le Mistral
Charlie Haden (1937-2014) - Silence
Dewey Redman (1931) - Mushi Mushi
Keith Jarrett (1945) - Encore A

Skáldsaga eftir norska höfundinn Tarjei Vesaas.
Heimir Pálsson þýddi, en lesari er Ingrid Jónsdóttir.
Sagan er samin um 1930. Hún segir frá fólki á býlinu Framnesi. Þar býr Ambos, rekur stóran hestabúgarð og ekur með ferðamenn um héraðið. Svörtu hestarnir hans eru honum kærari en flest annað. Ambros var ekkjumaður og á uppkomin börn, en hefur fyrir skömmu kvænst í annað sinn, ungri konu, Lísu. Þau eiga tvö ung börn, en Lísa er annarar gerðar en Ambros og samlagast ekki lífinu á bænum, yfir hjónabandinu hvílir skuggi sem markar allt fólkið á Framnesi.
Tarjei Vesaas var einn af helstu höfundum Norðmanna á tuttugustu öld. Hann fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Klakahöllina, sem einnig hefur komið út í íslenskri þýðingu.
Sagan er 18 lestrar.


frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Í Bæjarperlum vikunnar er ferðinni heitið á Eyrarbakka. Þar var rætt við Lindu Ásdísardóttur, sérfræðing hjá Byggðasafni Árnesinga, og komið við í þremur sýningarhúsum safnsins; Húsinu, Kirkjubæ og Sjóminjasafninu. Linda sagði frá sögu Eyrarbakka, samgöngum í Árnessýslu áður en stórfljótin voru brúuð, lífi alþýðufólks á millistríðsárunum, sjósókn við Suðurströndina og mannlífinu á Eyrarbakka í dag. Hinrik Wöhler er umsjónarmaður Bæjarperla í Sumarmálum.
Sextánda þáttaröðin af Með okkar augum fer í gang á morgun. Magnús Orri Arnarson og Elva Björg Gunnarsdóttir eru meðal umsjónarfólks og dagskrárgerðarfólks í þessari vinsælu og margverðlaunuðu sjónvarpsþáttaröð. Þau segja okkur frá viðfangsefnum nýju þáttanna.
Fugl dagsins er á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Ég heyri vorið /Sextett Ólafs Gauks. Lag: Oddgeir Kristjánsson. Texti: Ási í bæ.
The Window Cleaner/ Geoge Formby. Höf.: Cliff & Glifford.
Augun þín blá/Uppáhellingarnir(Jón Múli og Jónas Árnasynir)
Operator/Manhattan Transfer.
Nótt/Friðrik Ómar Hjörleifsson. Lag: Gunnar Þórðarson. Texti: Þorsteinn Eggertsson.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Jason Arday átti sér ævintýralega sögu, sonur Ganískra innflytjenda í Bretlandi sem var á einhverfurófi, lærði ekki að tala fyrr en 11 ára og lesa 18 ára - en var orðinn yngsti svarti prófessor Cambridge háskóla fyrir fertugt.
Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið fjallað ítarlega og stundum heiftúðlega í breskum fjölmiðlum um Arday en hann var sakaður um ritstuld og að hafa ýkt eða logið ýmsu um eigin ævi. Hann varð að skotspón í menningarstríðum Bretlands um kynþætti og háskólamenntun, einhver umtalaðasti og umdeildasti maður landsins.
Um helgina bárust svo þær fréttir að hann væri látinn, hefði fallið fyrir eigin hendi.
Við ræðum við Gauta Sigþórsson sem hefur starfað í rúma tvo áratugi í bresku háskólaumhverfi um Jason Arday.
Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Hvaða skoðun hefur unga fólkið á mögulegri inngöngu Íslands í ESB og hvernig ætlar það að kjósa þann 29. ágúst? Samtökin Áfram Ísland, sem hvetja til þess að fólk segi nei, og SJÁ, sem hvetja til þess að fólk segi já, sendu sína fulltrúa í Sama viðtalið.
Þau Anton Berg Sævarsson og Kristrún Ágústsdóttir ræddu fram og aftur um kosti og galla aðildar, hvað tekur við ef þjóðin segir já, vexti go verðbólgu og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu. Þá var einnig rætt um umræðuna, falsfréttir og mikilvægi þess að kynna sér málið vel.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Heilsusálfræðingurinn Ragnhildur Þórðardóttir, okkar allra besta Ragga Nagli, birti á dögunum, leiðbeiningar fyrir maka kvenna á breytingaskeiðinu. Þetta gerði hún að eigin sögn til að tryggja öryggi á hættusvæði og koma í veg fyrir refsiaðgerðir. Á meðal ráða eru ekki smjatta, anda hátt eða sötra. Og alls ekki hósta. Ragga var á línunni frá Köben og lagði okkur línurnar.
Heitar umræður sköpuðust í baklandi ferðaþjónustunnar á dögunum þegar notandi birti skilti á veitingastað þar sem kom fram að það kostaði 950 krónur fyrir aðra en viðskiptavini að nota klósettið. Einhverjum fannst þetta til marks um að Ísland væri að verðleggja sig út af kortinu í ferðaþjónustu á meðan aðrir bentu á að veitingastaðir yrðu að fá eitthvað úr því að taka á móti heilu rútunum af ferðamönnum sem nýtti sér enga aðra þjónustu en salernin. En hvernig er staðan í þessum málum, nú þegar stendur til að hækka virðisaukaskatt á baðlón? Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, kom til okkar.
Íbúar á Kársnesi hafa tekið eftir aukinni flugumferð yfir heimili þeirra. Þyrlur og einkaþotur fljúga yfir svæðið með talsverðum látum sem varð til þess að Finnur Pálmi Magnússon, fjölskyldufaðir í Kópavogi, ákvað að kortleggja umferðina til að komast að því hvort umferðin væri að aukast eða hvort hann sé hreinlega bara orðinn miðaldra. Hann kom til okkar og fór yfir þetta með okkur.
Pílukastarinn Alexander Veigar Þorvaldsson varð á dögunum fyrsti Íslendingurinn sem fær samning við stórfyrirtæki í pílukastheiminum. Hann sagði í samtali við Vísi að samningurinn við Shots breyti miklu fyrir sig en samningurinn tryggir honum meðal annars sína eigin pílur. Við fengum Alexander til okkar í spjall um píluna, sem tröllríður öllu um þessar mundir.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Margt gekk á í Morgunverkunum þennan morguninn. Fyrsti formlegi Keðjuklukkarinn fór í loftið og það var enginn annar en Sólstafurinn Addi Rokk sem hringdi inn og kom með fyrsta hlekkinn, saga af Sublime fór í loftið og afmælisbarn dagsins var Aphex Twin!
EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON – Dagar
SUBLIME – What I Got
RASCALS – Groovin'
SPACESTATION – Eiturgrá Skóda
PIXIES – Monkey Gone to Heaven
ÁSGEIR TRAUSTI EINARSSON – Skýjaborg
MARVIN GAYE – I Want You
SNOOP DOGG, CHAKA KHAN – Boogie's in My Soul
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS – Krókurinn
THE CRANBERRIES – Linger
DÁÐI FREYR PÉTURSSON – I'm Out and I Wanna Go Home
QUARASHI – Do It Again
US3 – Cantaloop
FOREIGNER – Cold as Ice
Á MÓTI SÓL – Ice Ice Baby (Vanilla Ice þekja live Hanastél 7. nov. '15)
THEM – Baby Please Don't Go
CHEMICAL BROTHERS – Go ft. Q-Tip
FLEETWOOD MAC – Go Your Own Way
MØ – Way Down
MEN AT WORK – Down Under
THE WAR ON DRUGS – Under the Pressure
TOOTS AND THE MAYTALS – Pressure Drop
PHARRELL – Drop It Like It's Hot ft. Snoop
T. REX – Hot Love
HJALTALÍN – Love from 99
NENA – 99 Luftballons
MARKÚS – É bisst assökunar
BON JOVI – Livin' on a Prayer
JOHN GRANT, KAKTUS EINARSSON – Follow
PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON, BENNI HEMM HEMM – Eitt af blómunum
APHEX TWIN – Windowlicker
BLUR – The Narcissist
ARCADE FIRE – The Suburbs
BILLY JOEL – Movin' Out (Anthony's Song)
GREININGARDEILDIN, BOGOMIL FONT – Þú trumpar ekki ástina
SJANA RUT – Tell Me
EVERLAST – What It's Like
HAUKUR ÆGIR HAUKSSON – Með allt á hreinu
THE DOORS – Break on Through (To the Other Side)
TEITUR MAGNÚSSON – Gullauga
BRIAN JONESTOWN MASSACRE – When Jokers Attack

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu hélt áfram í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. Fleiri sakborningar gefa skýrslu fyrir dómi í þessu máli þar sem hópur fólks misþyrmdi manni, kúgaði af honum fé og sendi úr landi.
Sameiginleg varnaræfing Bandaríkjanna og Íslands, Norður-Víkingur, var sett á Keflavíkurflugvelli í morgun.
Samtök hernaðarandstæðinga telja að vera herliðs á Íslandi snúist ekki um varnir þess, heldur Bandaríkjanna. Ísland eigi á hættu að dragast inn í hernaðarátök.
Yfir fjögur hundruð íbúar í Fjallabyggð krefjast úrbóta vegna langvarandi vatnsleka í Héðinsfjarðargöngum. Vegagerðin boðar viðgerðir í haust.
Réttarhöld byrja í dag í máli meira en helmings ríkja í Bandaríkjunum gegn Meta, móðurfyrirtæki Instagram og Facebook, sem er sakað um að hanna vísvitandi ávanabindandi miðla sem lokki að ungt fólk og valdi því skaða.
Frá mánaðamótum geta gestir ekki borðað hádegismat á Vitatorgi um helgar. Skrifstofustjóri hjá borginni segir lokun eldhússins á Vitatorgi meginástæðu breytinganna.
Pysjurnar eru farnar á flug í Vestmannaeyjum en sumar þeirra blindast af götuljósum og komast ekki alla leið út á sjó. Á lundaspítala er hlúð að þeim áður en þeim er sleppt aftur út á sjó.
Kvenfélag Grímsness stendur fyrir árlegri tombólu á Borg í hundraðasta sinn um helgina. Þar verða engin núll.
Evrópumót í áhaldafimleikum hefst á morgun. Íslenska sveitin er staðráðin í að komast í úrslit.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Tugir milljarða fara í uppbyggingu margskonarinnviða á Íslandi þessi misserin. Íslenskir ráðamenn og yfirhershöfðingi NATO segja mikilvægi Íslands aukast vegna stöðu heimsmála og fjárfestinga þörf. Við skoðum hvaða verkefni eru hafi eða að hefjast.
Þúsundir mála hafa verið höfðuð í Bandaríkjunum á hendur Meta, móðurfyrirtæki Feisbúkk og Instagram vegna þess að börn og unglingar séu lokkuð að samfélagsmiðlum og þau gerð háð þeim þrátt fyrir að vitað sé að þeir geti valdið þeim skaða. Meta þvertekur fyrir að gróði sé settur ofar hagsmunum barna en í dag hófust réttarhöld í fyrir alríkisdómstól í Kaliforníu sem gæti breytt samfélagsmiðlum.
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn


Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson