12:42
Þetta helst
Frumskógur fósturheimilanna: „Eins og ég væri í fangelsi“

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Kona sem dvaldi á fósturheimili í Garðinum á Reykanesi segir að það hafi verið eins og fangelsi að búa þar. Hún bjó á heimilinu á árunum 2017 og 2019. Heimilið hét Gauksstaðir og er ekki lengur starfandi.

Konan ber vistinni á heimilinu samt frekar vel söguna almennt séð en segir aðra stúlku hafa átt erfiðari stundir þar.

Ekki fást skýr svör frá Barna- og fjölskyldustofu, arftaka Barnaverndarstofu, af hverju hætt var að vista börn á heimilinu. Annar af forsvarsmönnum heimilisins vill ekki veita viðtal.

Fósturheimili á Íslandi hafa mikið verið til umræðu eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur sagði frá Bakkakotsmálinu svokallaða í byrjun febrúar. Ríkisstjórnin mun leggja fram frumvarp um rannsóknarnefnd sem mun rannsaka Bakkakotsmálið en ákveða þarf hversu víðfem sú rannsókn á að vera og hvort hún eigi einnig að taka til annarra fósturheimila.

Rætt er við stúlku sem bjó á fósturheimilinu í Garðinum og Pál Þórhallsson, lögfræðing í forsætisráðuneytinu. Þá eru birt svör frá Heru Ósk Einarsdóttur hjá velferðarsviði Reykjanesbæjar og Ásdísi Sigríði Ágústsdóttur hjá Barna- og fjölskyldustofu.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,