Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Alþjóðadagur hamingjunnar er í dag og af því tilefni verður Morgunútvarpið í einstaklega góðu skapi. Háskóli Íslands ætlar líka að halda málþing um tengsl samfélagsmiðla og hamingju þar sem verður meðal annars fjallað um hvernig hægt er að nýta tæknina á jákvæðan hátt til að styðja við hamingju og vellíðan. Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri félags Sameinuðu þjóðanna og Mia Ðuric, nemandi Menntaskólans í Reykjavík, halda erindi á málþinginu og kíktu til okkar og sögðu okkur frá hamingjunni í samtengdum heimi.
Þættirnir Stjörnubíó hafa vakið verðskuldaða athygli en í lokaþættinum á laugardaginn verður tekin fyrir kvikmyndin Englar alheimsins eftir Friðrik Þór Friðriksson. Við í Morgunútvarpinu heyrðum að það væri áhugaverð saga á bakvið efni sem var tekið upp bakvið tjöldin samliða myndinni sem fannst nýlega eftir mikla leit. Við fengum Ara Eldjárn til að segja okkur þessa sögu.
Heimildarmynd breska blaðamannsins Louis Theroux, Inside the Manosphere fer nú með himinskautum á Netflix. Myndin fjallar um umdeilda áhrifavalda sem reyna að höfða til ungra karla með því að boða einstaklingshyggju, græðgi, ofur-íhaldssamar hugmyndir um karlmennsku í bland við kvenfyrirlitningu, hommahatur og rasisma. Við heyrðum í rithöfundinum og samfélagsrýninum Braga Páli Sigurðarsyni og spjölluðum við hann um myndina, sem trónir á toppi vinsældarlista Netflix yfir það sem Íslendingar eru að horfa á.
Tíðindamikil vika að baki og fengum til okkar þá Baldvin Þór Bergsson, sem undirbýr nú umræðuþáttinn Torgið sem fjallar næst um ESB og Jóhann Alfreið Kristinsson, sem er ávallt með mörg járn í eldinum og kemur nú fram í þættinum Taskmaster á Sýn, til að fara yfir það helsta sem var í fréttum.
