
07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.


Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Cerise Fontaine ritstjóri og þýðandi talar um þolinmæði.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.


Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.


Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 19. febrúar 2017: Við förum við á rúntinn og tölum við fólk um rall og akstur. Systkinin Ásta og Daníel Sigurðarbörn segja frá ást sinni á hestöflum og hraða. Hallgrímur Ólafsson rifjar upp rúntinn á Akranesi og við pöntum bíl frá Bifreiðastöð Oddeyrar á Akureyri. Það er Gylfi Ásmundsson sem segir okkur frá þrjátíu ára starfsferli sem leigubílsstjóri.
Dagskrárgerð: Dagur Gunnarsson, Halla Ólafsdóttir og Ágúst Ólafsson.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir

Útvarpsfréttir.

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.


Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Brot úr Morgunvaktinni.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög sem voru samin við ljóð íslenskra skálda. Fyrst eru þrjú lög við ljóð eftir Heiðrek Guðmunddson. Björgvin Halldórsson flytur lag Heimis Sindrasonar við ljóðið Ég sagði við þig, Guðrún Gunnarsdóttir og Ari Jónsson flytja lag Heimis við ljóðið Heilræði ömmu og Berglind Björk Jónasdóttir flytur lag Ingva Þórs Kormákssonar við ljóðið Tvíburabræður. Næst eru þrjú lög Ingva Þórs Kormákssonar við ljóð þriggja skálda. Guðrún Gunnarsdóttir syngur Þegar þið eruð nálægt og Kondu, fyrra ljóðið er eftir Hannes Pétursson en seinna ljóðið eftir Steinunni Sigurðardóttur. Jóhanna Vigdís Arnardóttir flytur Bjartsýni við ljóð Ólafs Hauks Símonarsonar. Elíza Newman flytur þrjú lög sem hún samdi fyrir plötuna Heimþrá, en það eru lögin Þú veizt við ljóð eftir Ólöfu frá Hlöðum, Heimþrá við ljóð eftir Jóhann Sigurjónsson og Vetrarmávur við ljóð eftir Jón úr Vör. Ragnheiður Gröndal syngur Veglaust haf, lag sem Tómas R. Einarsson samdi við fimm erindi ljóðabálks Steins Steinarrs Tíminn og vatnið. Síðasta lagið er Flugvélar sem Halldór Gunnarsson samdi við ljóð Hannesar Péturssonar. Þokkabót flytur lagið. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Samantekt hvers þema (fimm þátta) úr örþáttaröðinni.
Upprifjun úr Uppástandi frá því í júlí 2022. Sigtýr Ægir Kára, Mars M. Proppé, Nóam Óli Stefánsson og Hanna María Karlsdóttir flytja eigin pistla út frá hugtakinu Hinsegin.

Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.

Skáldsaga Halldórs Laxness um hinn 18 ára gamla Stein Elliða kom út árið 1927 þegar Halldór var sjálfur 25 ára gamall.
Þessi saga um leit ungs manns að eigin lífsskoðunum þótti marka tímamót í íslenskri bókmenntasögu.
Valdimar Örn Flygenring las söguna fyrir útvarpið árið 1991.
Í 5., 6. og 34. lestri les Bára Lyngdal Magnúsdóttir ásamt Valdimar Erni og í 7. og 8. lestri les Guðrún S. Gísladóttir ásamt Valdimar.


frá Veðurstofu Íslands

Svanhildur Óskarsdóttir les sálmana í hljóðritun frá árinu 1998.
Árið 1944 var tekinn upp sá siður hjá Ríkisútvarpinu að lesa alla Passíusálma Hallgríms Péturssonar á föstunni.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Alþjóðadagur hamingjunnar er í dag og af því tilefni verður Morgunútvarpið í einstaklega góðu skapi. Háskóli Íslands ætlar líka að halda málþing um tengsl samfélagsmiðla og hamingju þar sem verður meðal annars fjallað um hvernig hægt er að nýta tæknina á jákvæðan hátt til að styðja við hamingju og vellíðan. Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri félags Sameinuðu þjóðanna og Mia Ðuric, nemandi Menntaskólans í Reykjavík, halda erindi á málþinginu og kíktu til okkar og sögðu okkur frá hamingjunni í samtengdum heimi.
Þættirnir Stjörnubíó hafa vakið verðskuldaða athygli en í lokaþættinum á laugardaginn verður tekin fyrir kvikmyndin Englar alheimsins eftir Friðrik Þór Friðriksson. Við í Morgunútvarpinu heyrðum að það væri áhugaverð saga á bakvið efni sem var tekið upp bakvið tjöldin samliða myndinni sem fannst nýlega eftir mikla leit. Við fengum Ara Eldjárn til að segja okkur þessa sögu.
Heimildarmynd breska blaðamannsins Louis Theroux, Inside the Manosphere fer nú með himinskautum á Netflix. Myndin fjallar um umdeilda áhrifavalda sem reyna að höfða til ungra karla með því að boða einstaklingshyggju, græðgi, ofur-íhaldssamar hugmyndir um karlmennsku í bland við kvenfyrirlitningu, hommahatur og rasisma. Við heyrðum í rithöfundinum og samfélagsrýninum Braga Páli Sigurðarsyni og spjölluðum við hann um myndina, sem trónir á toppi vinsældarlista Netflix yfir það sem Íslendingar eru að horfa á.
Tíðindamikil vika að baki og fengum til okkar þá Baldvin Þór Bergsson, sem undirbýr nú umræðuþáttinn Torgið sem fjallar næst um ESB og Jóhann Alfreið Kristinsson, sem er ávallt með mörg járn í eldinum og kemur nú fram í þættinum Taskmaster á Sýn, til að fara yfir það helsta sem var í fréttum.

07:30

08:30

Létt spjall og lögin við vinnuna.


Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Ólafur Páll Gunnarsson spilar tónlist að sínum hætti - hitt og þetta og þetta og allt í bland.

Fréttastofa RÚV.

Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.


Samkvæmis og gleðiþáttur á föstudagskvöldum þar sem Doddi litli leikur hressandi samkvæmispopp síðustu fimm áratuga og dansar með hlustendum inn í helgina.