07:03
Morgunvaktin
Hagstjórn og hamingja

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Við ræddum um hagfræði og hvaða ráð hún hefur við verðbólgu. Og veltum líka fyrir okkur frammistöðu íslenskra ráðamanna í hagstjórn undanfarinn aldarfjórðung eða svo. Már Mixa dósent við Háskóla Íslands kom í þáttinn.

Alþjóðlegi dagur hamingjunnar er í dag. Hann er haldinn ár hvert, og hefur verið frá 2013, til að minna okkur á mikilvægi hamingjunnar í lífinu. Íslendingar eru næsthamingjusamasta þjóð í heimi samkvæmt alþjóðlegri skýrslu þar um - við spjölluðum um hamingjuna við Kristínu Lindu Jónsdóttur sálfræðing.

Umfjöllun um sígilda tónlist var á sínum stð, við endurlékum spjall við Magnús Lyngdal um Editu Gruberova.

Tónlist:

Jens Lisberg - Eg havi keypt mær bil = Hello Mary Lou.

Jens Lisberg - Mamma = Litli tónlistarmaðurinn [á færeysku].

Nýdönsk - Framtíðarvið.

Hljómar - Lífsgleði.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,