18:00
Kvöldfréttir útvarps
Fjárlagafrumvarpið, laxadauði í Reyðarfirði og kort Bandaríkjaforseta

Fréttir

Fréttir

Fjárlagafrumvarpið er ekki verðbólguhvetjandi að mati dósents í hagfræði en hækkun krónutölugjalda kom á óvart.

Bandaríkjaforseti birti á samfélagsmiðlum í dag landakort þar sem Ísland, Grænland og fleiri ríki eru í bandarísku fánalitunum. Evrópusambandið tilkynnti í dag um umfangsmiklar fjárfestingar á Grænlandi.

Marglyttur herjuðu á lax í kvíum Kaldvíkur í Reyðarfirði um helgina, fyrirtækið sendi tilkynningu til kauphalla í Osló og á Íslandi í dag vegna affalla.

Íþróttafélög á landsbyggðinni rukka að jafnaði lægri æfingagjöld en félög á höfuðsborgarsvæðinu samkvæmt nýlegri úttekt ASÍ. Yfirþjálfari handknattleiksdeildar Þórs segir samanburðinn þó ekki gefa rétta mynd, foreldrar á landsbyggðinni beri líklega meiri kostnað af íþróttaiðkun barna sé ferðakostnaður með talinn.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,