12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 7. september 2026

Útvarpsfréttir.

Ríkissjóður verður rekinn með fimm milljarða afgangi gangi fjárlagafrumvarpið eftir. Það verður þá í fyrsta sinn síðan 2018 sem ríkissjóður er hallalaus. Kílómetragjald hækkar um tæp 16 prósent um áramót og gjaldskrár ríkisins um rúmlega fimm prósent.

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa áhyggjur af áhrifum gjaldskrárhækkana á heimili og fyrirtæki og ferðaþjónustan varar við því að ferðamönnum fækki.

Þýskalandskanslari er sleginn yfir niðurstöðum kosninga í Saxlandi-Anhalt í gær, þar sem harðlínuflokkurinn Alternative fur Deutschland vann stóran sigur. Ekki er enn ljóst hvort flokkurinn kemst til valda í sambandsríkinu.

Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins kom til Grænlands í gær. Samkomulag var undirritað í morgun um að ESB fjárfesti í betra gervihnattasambandi á Grænlandi.

Pólitískum fulltrúum í stjórn Norðurorku fækkar og minnihlutaeigendur missa áheyrnarfulltrúa sinn. Breytingin eykur tortryggni í garð stjórnarinnar, segir oddviti sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar.

Kimi Antonelli vann Monza-kappaksturinn í Formúlu 1 þrátt fyrir að hafa verið aftastur í rásröðinni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,