18:00
Kvöldfréttir útvarps
Segir aðgerðir ekki leysa bráðavanda á leikskólum

Fréttir

Fréttir

Leikskólastjóri í Reykjavík segir breytingarnar á leikskólakerfinu í borginni, sem samþykktar voru í dag, leysi ekki aðkallandi vanda.

Alþingi samþykkti í dag rammaáætlun þar sem Skrokkölduvirkjun á Sprengisandi og Holtavirkjun í Þjórsá eru færðar úr biðflokki í nýtingarflokk.

Stefnt er að því að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum á fimmtudaginn eftir snjóléttan vetur. Aðstæður í Hlíðarfjalli hafa verið öllu betri og aðsókn með mesta móti.

Rauðar viðvaranir hafa verið gefnar út í Frakklandi vegna flóða og úrhellisrigningar.

Strandabyggð hefur ráðið endurskoðunarfyrirtæki til að ráðast í úttekt á kostnaði sveitarfélagsins við útgáfu Byggðasögu Stranda.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 9 mín.
,