12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 17. febrúar 2026

Útvarpsfréttir.

Börn sem voru send í Bakkakot fyrir milligöngu sveitarfélaga fyrir rúmum 20 árum sögðu yfirvöldum frá meintu ofbeldi en samt voru börn áfram vistuð þar. Sextán hafa bæst í hóp þeirra sem krefjast bóta og rannsóknar.

Reykjavíkurborg boðar breytingar á leikskólakerfinu þar sem fyrstu 36 klukkutímar sem börn dvelja á leikskólum á viku verða gjaldfrjálsir. Gjald fer stighækkandi fyrir lengri vistun.

Alþingi greiðir í dag atkvæði um breytingar á rammaáætlun þar sem lagt er til að Holtavirkjun og Skrokkölduveita fari í nýtingarflokk. Urriðafossvirkjun verður áfram í biðflokki þótt ráðherra hafi lagt til að hún færi í nýtingarflokk.

Gular viðvaranir taka gildi vegna hríðar og skafrennings sunnan- og suðaustanlands í kvöld. Hætt er við að færð spillist þar fram eftir degi á morgun.

Stjórnvöld í Úkraínu bjóða hermönnum að frysta sæði áður en þeir halda á vígvöllinn til að bregðast við fólksfækkun. Á móti hverju barni sem fæðist í Úkraínu týna þrír lífi. Fyrir hverja fæðingu í Úkraínu eru um það bil þrjú dauðsföll.

Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson er látinn. Hann var einn áhrifamesti baráttumaður fyrir réttindum svartra í Bandaríkjunum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,