Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Ragnar Þór Ingólfsson hefur setið í ríkisstjórn landsins í rúman mánuð. Hann tók við embætti félags- og húsnæðismálaráðherra 11. janúar. Mikilvægir málaflokkar heyra undir ráðuneytið; almannatryggingar, félags- og fjölskyldumál, þjónusta við aldraða og húsnæðismál. Við spjölluðum við um þessi mál.
Í Berlínarspjalli fjallaði Arthur Björgvin Bollason meðal annars um ræðu Merz Þýskalandskanslara á Öryggisráðstefnunni í Munchen á laugardag, hún vakti mikla athygli. Hann sagði líka frá skrifum þýsks heimspekings um félagssálfræðilegar skýringar á græðgi þeirra sem allt eiga fyrir.
Menntaskólinn í Kópavogi er stofnun ársins í flokki stærri stofnana. Við fengum Guðríði Hrund Helgadóttur, skólameistara Menntaskólans í Kópavogi, í kaffi til okkar af þessu tilefni og spjölluðum vítt og breitt um skólann og skólamál.
Tónlist:
Allra meina bót - Mamma gefðu mér grásleppu.
Skapti Ólafsson, Hljómsveit Jan Morávek, Baldur Georgs Takács - Konni flautar.
Van Morrison - Moondance.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Svifrykið sem mælst hefur á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana í froststillunum er mjög skaðlegt fyrir heilsu fólks. Það eykur tíðnina á hjartaáföllum og heilablóðföllum er krabbameinsvaldandi og í svifrykinu eru baneitraðar hárfínar agnir sem eru að berast inn í líkamann og valda heilsutjóni. Þetta er haft eftir Hjalta Má Björnssyni formanni félags lækna gegn umhverfisvá í viðtali á Vísi í gær. Hjalti kom í þáttinn í dag.
Hvað er málfærni? Hvernig er að vera í viðkvæmri stöðu þegar kemur að málfærni? Og hvernig notar fólk málbeitingu og breytileika tungumálsins í sína þágu? Iris Edda Nowenstein, lektor í íslenskri málfræði og máltækni og talmeinafræðingur við Landspítalann kom til okkar í dag og sagði frá erindi sem hún kallar Mál og vald. Við fengum hana til að segja okkur betur frá því í þættinum.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo í dag í veðurspjallið. Í framhaldi af viðtali okkar í gær við Andra Snæ Magnason, byrjaði Einar á því að setja stórar og illskiljanlegar tölur, sem Andri nefndi, um jöklaafkomu í samhengi. Svo er það hlýjasti janúar í sögu mælinga í Nuuk á Grænlandi, en á sama tíma kaldasti janúar í Dammörku. Það setti hann svo í samhengi við tíðina hér heima og snjóleysið sunnanlands í vetur. Í lokum sagði Einar frá breytingum framundan í veðrinu, snjókomuspá og sitthvað fleira.
Tónlist í þættinum í dag:
Einu sinni var / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Svavar Benediktsson, texti Kristján frá Djúpalæk)
Ekki bíl / Hrekkjusvín (Valgeir Guðjónsson, texti Pétur Gunnarsson)
Vor við flóann / Ragnar Bjarnason (Leon T. René, texti Jón Sigurðsson)
Gamla gatan / Kvartett Reynis Sigurðssonar (Oddgeir Kristjánsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Börn sem voru send í Bakkakot fyrir milligöngu sveitarfélaga fyrir rúmum 20 árum sögðu yfirvöldum frá meintu ofbeldi en samt voru börn áfram vistuð þar. Sextán hafa bæst í hóp þeirra sem krefjast bóta og rannsóknar.
Reykjavíkurborg boðar breytingar á leikskólakerfinu þar sem fyrstu 36 klukkutímar sem börn dvelja á leikskólum á viku verða gjaldfrjálsir. Gjald fer stighækkandi fyrir lengri vistun.
Alþingi greiðir í dag atkvæði um breytingar á rammaáætlun þar sem lagt er til að Holtavirkjun og Skrokkölduveita fari í nýtingarflokk. Urriðafossvirkjun verður áfram í biðflokki þótt ráðherra hafi lagt til að hún færi í nýtingarflokk.
Gular viðvaranir taka gildi vegna hríðar og skafrennings sunnan- og suðaustanlands í kvöld. Hætt er við að færð spillist þar fram eftir degi á morgun.
Stjórnvöld í Úkraínu bjóða hermönnum að frysta sæði áður en þeir halda á vígvöllinn til að bregðast við fólksfækkun. Á móti hverju barni sem fæðist í Úkraínu týna þrír lífi. Fyrir hverja fæðingu í Úkraínu eru um það bil þrjú dauðsföll.
Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson er látinn. Hann var einn áhrifamesti baráttumaður fyrir réttindum svartra í Bandaríkjunum.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í þætti dagsins er sjónum beint að mögulegum óhollustuskatti sem er til skoðunar að setja á. Í samráðsgátt er nú að finna drög heilbrigðisráðherra að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026 til 2030. Þar er lagt til að skipaður verði þverfaglegur starfshópur sem verði meðal annars falið að skoða fýsileika þess að lækka álögur á grænmeti og ávexti og hækka álögur á sérlega orkuríkar, næringarlitlar og gjörunnar matvörur.
Viðmælendur:
Birna Þórisdóttir
Gylfi Ólafsson
Ólafur Stephensen
Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Samhliða umfjöllun Kveiks um bæinn Bakkakot fyrir tveimur vikum síðan, stigu níu menn fram sem kröfðust rannsóknar á ofbeldi sem þeir segjast hafa verið beittir þar sem börn. Í dag hefur tala þeirra meira en tvöfaldast.
Í aðdraganda annars þáttar Kveiks um málið heyrum við viðbrögð eins viðmælanda þeirra við umfjölluninni, heyrum sögu manns sem var sóttur í Bakkakot af móður sinni eftir skamma en yfirþyrmandi dvöl, og ræðum við Jóhann Bjarna Kolbeinsson, fréttamann Kveiks, um dagskrárgerðina.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hreinsunaræði Stalín náði æ fastari tökum á sovésku samfélagi árið 1936. Viktor Kravténko segir frá örlögum ýmissa samstarfsmanna sinna og loks stendur hann sjálfur í eldlínunni.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Frægasta ópera franska tónskáldsins Bizet; Carmen, var frumsýnd í útfærslu Kammeróperunnar um liðna helgi og eins og hópsins er von og vísa er um nýstárlega uppsetningu að ræða. Kristín Sveinsdóttir bregður sér þar í hlutverk Carmen og hún lítur við í hljóðstofu ásamt leikstjóra sýningarinnar, Adolf Smára Unnarssyni.
Freyja Þórsdóttir heimspekingur fjallar um það hvernig umhverfið sem við sköpum okkur og eyðum tíma okkar í hefur áhrif á sálarlífið. Við sögu kemur smásagan Gula veggfóðrið og grísk goðsögn um Erós og Psyche. En við byrjum þátttinn á því að kynnast myndlýsingum í íslenskum pappírshandritum og heyrum í höfundi nýrrar bókar um efnið, sagnfræðingnum Kjartani Atla Ísleifssyni.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Hvað eiga íslendingar mörg orð yfir vont veður og úrkomu? Og hvað eiga incelar mörg orð yfir konur sem ekki vilja sofa hjá þeim? Fríða Þorkelsdóttir, bókmenntafræðingur og netblaðamaður Lestarinnar, fer yfir orðaforðan sem verður til í myrkari kimum internetsins, þar sem bölsýni og kvenfyrirlitning ráða ríkjum.
Eru danir of góðir til að við hugsum um þá sem nýlenduherra? Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor á Hugvísindasviði veltir fyrir sér af hverju það gæti verið að Danir hafi þá ímynd að þeir séu einfaldlega of 'næs' til að vera nokkurntíman kallaðir nýlenduherrar, þó þeir eigi grimmilega sögu á Jómfrúaeyjum.
Undanfarna daga hefur löng samfélagsmiðlafærsla farið eins og eldur í sinu um netið. “Þetta er upphafið á einhverju stóru” nefnist færslan - Something big is happening. Í færslunni fjallar höfundurinn Matt Shumer um starf sitt sem forritari og hvernig það hefur gjörbreyst á undanförnum árum með tilkomu gervigreindar. Við veltum fyrir okkur hvort forritarar séu hættir að kóða, hvað er vibe-coding og verða til einhverjar forritarar í framtíðinni. Viðmælandi Lestarinnar er Jón Eðvald Vignisson, forritari og reynslubolti úr sprotabransanum.
Fréttir
Fréttir
Leikskólastjóri í Reykjavík segir breytingarnar á leikskólakerfinu í borginni, sem samþykktar voru í dag, leysi ekki aðkallandi vanda.
Alþingi samþykkti í dag rammaáætlun þar sem Skrokkölduvirkjun á Sprengisandi og Holtavirkjun í Þjórsá eru færðar úr biðflokki í nýtingarflokk.
Stefnt er að því að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum á fimmtudaginn eftir snjóléttan vetur. Aðstæður í Hlíðarfjalli hafa verið öllu betri og aðsókn með mesta móti.
Rauðar viðvaranir hafa verið gefnar út í Frakklandi vegna flóða og úrhellisrigningar.
Strandabyggð hefur ráðið endurskoðunarfyrirtæki til að ráðast í úttekt á kostnaði sveitarfélagsins við útgáfu Byggðasögu Stranda.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Innviðaráðherra vill að framkvæmdir við Fljótagöng hefjist strax í byrjun næsta árs en Vegagerðin telur að til að hægt verði að hefja framkvæmdir sumarið 2027 þurfi allt að ganga upp og ekkert rými verði fyrir utanaðkomandi tafir. For- og verkhönnun Fljótaganga hefur verið flýtt en göngin verða á mesta jarðskjálftasvæði landsins.
Í nýrri skýrslu eru ráðamenn í Evrópu hvattir til að búa lönd sín, stofnanir og innviði undir heim sem er tveimur komma átta til þremur gráðum hlýrri en hann var fyrir iðnbyltingu. Það er allt að tvöfalt meiri hlýnun en miðað er við í Parísarsamningnum.
Upp á síðkastið hefur hlaupið líf í hannyrðir og andóf, ekki síst í Bandaríkjunum. Rauðar húfur sem ýmsir eru að prjóna til að mótmæla gjörðum innflytjendalögreglunnar vestra hafa verið áberandi á prjónasíðum.

frá Veðurstofu Íslands
Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Áður á dagskrá veturinn 2008-2009
Eins og áheyrendur munu geta heyrt er tími í tónlist mjög afstætt hugtak. Strengjakvartett þessa þáttar er eini strengjakvartettinn sem Claude Debussy samdi, og hann er frá því fyrir aldamótin þarsíðustu saminn árið 1893, en er samt mun lengra kominn í uppbroti hefðanna en kvartettar Skandinavanna sem hafa hljómað í síðustu þáttum, þeirra Griegs, Nielsens og Sibeliusar. Auk þess verður leikinn einn þáttur úr La Mer, eða Hafinu og Rapsódía fyrir klarinett og hljómsveit, líka eftir Debussy.
Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Tónlistin í þættinum:
Tvö sönglög eftir Tryggva M. Baldvinsson:
Gömul ljósmynd, ljóð eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson.
Krummi, ljóð eftir Davíð Stefánssonar frá Fagraskógi.
Flytjendur: Sólrún Bragadóttir, sópran og Margaret Singer, píanó. Hljóðritun gefin út 1998.
Játékok - Book 3 : Scraps of a Colinda Melody - Faintly Recollected (Hommage à Farkas Ferenc) - Grand Piano eftir György Kurtág.
Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á flygil. Útgefið 2022 á plötunni From Afar.
Brainstorm in a tea cup (2007) eftir Gunnar Andreas Kristinsson. Joachim Kwetzinsky leikur á píanó. Útgefið 2013 á plötunni Patterns.
Coni-unc-tio (1994) eftir Snorra Sigfús Birgisson. Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur undir stjórn Ann Manson.
Hljóðritun í Háskólabíói 24. febrúar 1995, Bjarni Rúnar Bjarnason og Þórir Steingrímsson stýrðu upptökum.
Vals úr Djasssvítu nr. 2 eftir Dmitríj Shostakovitsj. Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur undir stjórn Daníels Bjarnasonar. Hljóðritað á tónleikum í Klassíkinni okkar Eldborg Hörpu árið 2020.
Tvö sönglög úr Jónasarlögum Atla Heimis Sveinssonar (við ljóð Jónasar Hallgrímssonar) í útsetningum eftir Francisco Javier Járegui:
Söknuður
Næturkyrrð:
Flytjendur: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, Francisco Javier Jáuregui, gítar; Pétur Jónasson, gítar.
Útgefið árið 2024 á plötunni Atli Heimir Sveinsson - Sönglög með gítar.
Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Samhliða umfjöllun Kveiks um bæinn Bakkakot fyrir tveimur vikum síðan, stigu níu menn fram sem kröfðust rannsóknar á ofbeldi sem þeir segjast hafa verið beittir þar sem börn. Í dag hefur tala þeirra meira en tvöfaldast.
Í aðdraganda annars þáttar Kveiks um málið heyrum við viðbrögð eins viðmælanda þeirra við umfjölluninni, heyrum sögu manns sem var sóttur í Bakkakot af móður sinni eftir skamma en yfirþyrmandi dvöl, og ræðum við Jóhann Bjarna Kolbeinsson, fréttamann Kveiks, um dagskrárgerðina.
Skáldsaga Halldórs Laxness um hinn 18 ára gamla Stein Elliða kom út árið 1927 þegar Halldór var sjálfur 25 ára gamall.
Þessi saga um leit ungs manns að eigin lífsskoðunum þótti marka tímamót í íslenskri bókmenntasögu.
Valdimar Örn Flygenring las söguna fyrir útvarpið árið 1991.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Svifrykið sem mælst hefur á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana í froststillunum er mjög skaðlegt fyrir heilsu fólks. Það eykur tíðnina á hjartaáföllum og heilablóðföllum er krabbameinsvaldandi og í svifrykinu eru baneitraðar hárfínar agnir sem eru að berast inn í líkamann og valda heilsutjóni. Þetta er haft eftir Hjalta Má Björnssyni formanni félags lækna gegn umhverfisvá í viðtali á Vísi í gær. Hjalti kom í þáttinn í dag.
Hvað er málfærni? Hvernig er að vera í viðkvæmri stöðu þegar kemur að málfærni? Og hvernig notar fólk málbeitingu og breytileika tungumálsins í sína þágu? Iris Edda Nowenstein, lektor í íslenskri málfræði og máltækni og talmeinafræðingur við Landspítalann kom til okkar í dag og sagði frá erindi sem hún kallar Mál og vald. Við fengum hana til að segja okkur betur frá því í þættinum.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo í dag í veðurspjallið. Í framhaldi af viðtali okkar í gær við Andra Snæ Magnason, byrjaði Einar á því að setja stórar og illskiljanlegar tölur, sem Andri nefndi, um jöklaafkomu í samhengi. Svo er það hlýjasti janúar í sögu mælinga í Nuuk á Grænlandi, en á sama tíma kaldasti janúar í Dammörku. Það setti hann svo í samhengi við tíðina hér heima og snjóleysið sunnanlands í vetur. Í lokum sagði Einar frá breytingum framundan í veðrinu, snjókomuspá og sitthvað fleira.
Tónlist í þættinum í dag:
Einu sinni var / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Svavar Benediktsson, texti Kristján frá Djúpalæk)
Ekki bíl / Hrekkjusvín (Valgeir Guðjónsson, texti Pétur Gunnarsson)
Vor við flóann / Ragnar Bjarnason (Leon T. René, texti Jón Sigurðsson)
Gamla gatan / Kvartett Reynis Sigurðssonar (Oddgeir Kristjánsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Hvað eiga íslendingar mörg orð yfir vont veður og úrkomu? Og hvað eiga incelar mörg orð yfir konur sem ekki vilja sofa hjá þeim? Fríða Þorkelsdóttir, bókmenntafræðingur og netblaðamaður Lestarinnar, fer yfir orðaforðan sem verður til í myrkari kimum internetsins, þar sem bölsýni og kvenfyrirlitning ráða ríkjum.
Eru danir of góðir til að við hugsum um þá sem nýlenduherra? Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor á Hugvísindasviði veltir fyrir sér af hverju það gæti verið að Danir hafi þá ímynd að þeir séu einfaldlega of 'næs' til að vera nokkurntíman kallaðir nýlenduherrar, þó þeir eigi grimmilega sögu á Jómfrúaeyjum.
Undanfarna daga hefur löng samfélagsmiðlafærsla farið eins og eldur í sinu um netið. “Þetta er upphafið á einhverju stóru” nefnist færslan - Something big is happening. Í færslunni fjallar höfundurinn Matt Shumer um starf sitt sem forritari og hvernig það hefur gjörbreyst á undanförnum árum með tilkomu gervigreindar. Við veltum fyrir okkur hvort forritarar séu hættir að kóða, hvað er vibe-coding og verða til einhverjar forritarar í framtíðinni. Viðmælandi Lestarinnar er Jón Eðvald Vignisson, forritari og reynslubolti úr sprotabransanum.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Íslenska frumkvöðlafyrirtækið YogaNúna býður upp á jógatíma á netinu fyrir þau sem komast ekki í jógasalinn. Í febrúar hafa þau verið í herferð sem kallast Vellíðan á vinnustað, sem snýst um að bæta vellíðan í vinnu með einföldum, mannlegum og aðgengilegum yogatímum, sem auðvelt er að samþætta inn í vinnudaginn. Jógakennararnir Þóra Rós Guðbjartsdóttir og Íris Dögg Oddsdóttir mættu í Morgunútvarpið og kenndu hlustendum meðal annars öndunaræfingar.
Á samfélagsmiðlum eins og Tiktok og Instagram er margt sagt um getnaðarvarnir og fæst af því er satt. Ljósmæðurnar Steinunn Zophoníasdóttir og Jórunn Oddssdóttir hjá Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hafa hitt ótal ungar konur og heyrt allar flökkusögurnar. Þær hafa boðið upp á einstaklingsfræðslu sem konur geta skráð sig í beint í gegnum netið og mættu í Morgunútvarpið og sögðu okkur hvað er satt og hvað er logið.
Svifsryksmengunin á höfuðborgarsvæðinu gerir fólki lífið leitt og í Morgunútvarpinu í gær heyrðum við í lækni sem bar áhrif hennar saman við tóbakspláguna. Svifrykið getur valdið bæði krabbameini og heilablóðfalli en samt upplifir fólk aðgerðarleysi stjórnvalda, fyrir utan vinsamleg tilmæli til viðkvæmra, barna og gamalmenni um að halda sig innandyra þegar loftgæði eru slæm. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vildi sem óbreyttur þingmaður á sínum tíma sporna við óþarfri notkun á nagladekkjum í þéttbýli með gjaldtöku. En hvað finnst honum í dag þegar hann stýrir umhverfismálunum? Hann kom til okkar í Morgunútvarpið.
Kvikmyndin Pillion varpar ljósi á flókið valdasamspil undirgefni og drottnunar á sjóðheitan hátt. Sænski hjartaknúsarinn Alexander Skarsgård leikur kynþokkafullan mótorhjólaöffara sem leiðir feiminn kórsöngvara leikinn af Harry Melling inn í heim BDSM. Myndin verður frumsýnd í Bíó paradís í samstarfi við Bangasfélagið og BDSM á Íslandi á fimmtudaginn. Sigurður Júlíus Guðmundsson, formaður Bangsafélagsins, Katrín Íris Sigurðardóttir, formaður BDSM á Íslandi og Óli Hjörtur Ólafsson, rekstrarstjóri Bíó Paradís,komu til okkar í spjall um myndina og þessi félög.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Saga var sögð af gullhjarta Bruce Springsteen og platínu korti hans, afmælisbörn dagsins voru tvö og hlustandinn Ísak valdi þriðjudagsþemað sem var vinir og fjölskylda.
Lagalisti þáttarins:
BÍTAVINAFÉLAGIÐ – Alveg orðlaus
MANIC STREET PREACHERS – A Design for Life
ED SHEERAN – The A Team (Radio edit)
GLOWIE & STONY – No More
COLDPLAY – In My Place
ARCADE FIRE – Wake Up
HJÁLMAR – Upp í sveit
BUBBI MORTHENS & KRISTMUNDUR AXEL – Kominn heim
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON – Dagar og nætur
KK & RÚNAR JÚLÍUSSON – Ég er vinur þinn
TRÚBROT – My Friend and I
LEVEL 42 – Running in the Family
MARY J. BLIGE – Family Affair
BIZ MARKIE – Just a Friend
KUSK & ÓVITI – Elsku vinur
THE CRANBERRIES – Ode to My Family
THE ROLLING STONES – Waiting on a Friend
SISTER SLEDGE – We Are Family
THE CHARLATANS – My Beautiful Friend
MANNAKORN – Gamli góði vinur
UPPLYFTING – Traustur vinur
QUEEN – You're My Best Friend
JOE COCKER – With a Little Help from My Friends
INSPECTOR SPACETIME – People in the Video
PETER GABRIEL – Big Time
TEITUR MAGNÚSSON – Gullauga
ÁSGEIR TRAUSTI EINARSSON – Against the Current
TAME IMPALA – Dracula
BAND OF HORSES – No One's Gonna Love You
MUMFORD & SONS – The Banjo Song
RÖYKSOPP – What Else Is There
NOAH KAHAN – The Great Divide
CAMERON WINTER – Love Takes Miles
BRUCE SPRINGSTEEN – Born to Run
ÓMAR GUÐJÓNSSON – Arnarvatnsheiði
ÁRNÝ MARGRÉT – Hakk og spaghettí
BRÍET – Bang Bang
Á MÓTI SÓL – Fyrstu laufin
RICHARD ASHCROFT – Break the Night with Colour

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Börn sem voru send í Bakkakot fyrir milligöngu sveitarfélaga fyrir rúmum 20 árum sögðu yfirvöldum frá meintu ofbeldi en samt voru börn áfram vistuð þar. Sextán hafa bæst í hóp þeirra sem krefjast bóta og rannsóknar.
Reykjavíkurborg boðar breytingar á leikskólakerfinu þar sem fyrstu 36 klukkutímar sem börn dvelja á leikskólum á viku verða gjaldfrjálsir. Gjald fer stighækkandi fyrir lengri vistun.
Alþingi greiðir í dag atkvæði um breytingar á rammaáætlun þar sem lagt er til að Holtavirkjun og Skrokkölduveita fari í nýtingarflokk. Urriðafossvirkjun verður áfram í biðflokki þótt ráðherra hafi lagt til að hún færi í nýtingarflokk.
Gular viðvaranir taka gildi vegna hríðar og skafrennings sunnan- og suðaustanlands í kvöld. Hætt er við að færð spillist þar fram eftir degi á morgun.
Stjórnvöld í Úkraínu bjóða hermönnum að frysta sæði áður en þeir halda á vígvöllinn til að bregðast við fólksfækkun. Á móti hverju barni sem fæðist í Úkraínu týna þrír lífi. Fyrir hverja fæðingu í Úkraínu eru um það bil þrjú dauðsföll.
Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson er látinn. Hann var einn áhrifamesti baráttumaður fyrir réttindum svartra í Bandaríkjunum.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Matti og Lovísa skiptu á milli sín landamæravörslu í Popplandi þennan þriðjudaginn.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Í Spánarspjallinu þessa vikuna heyrðum við af konu sem slapp úr haldi mannræningja á Spáni í síðustu viku. Hafði verið fangi mannsins í 2 ár. Og líka af tónlistarkonunni Rosaliu sem fór í hlaðvarpsþátt um daginn hjá vinsælum þáttastjórnanda og þær reyktu sígarettur á meðan. Það varð bara allt vitlaust. Jóhann Hlíðar Harðarson okkar maður á Spáni sagði okkur þetta og meira til.
Samræmd próf hafa ekki verið lögð fyrir grunnskólanema síðan tæknileg vandamál komu upp við framkvæmd samræmdu könnunaprófanna árið 2021 og þau voru felld niður. Nú stendur til breyting. Svokölluð stöðu- og framvindupróf verða lögð fyrir nemendur í að minnsta kosti þremur árgöngum. Prófað verður í stærðfræði og lesskilningi.
Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu kom til okkar.
Reykjavíkurborg kynnti í morgun breytingar á leikskólakerfinu. 20 til 75 prósenta afsláttur verður tengdur tekjum og hjúskap. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir þessi leið sem kynnt er gangi út á gjaldfrjálsan 36 stunda dvalartíma en svo taki gjöldin stigvaxandi hækkunum umfram það. Útkoman sé að hálftíminn umfram 8 stundir verður sá dýrasti á höfuðborgarsvæðinu. Sonja kom til okkar.
Niðurstöður í vali á Stofnun ársins 2025 voru kynntar á hátíð Sameykis í Reykjavík þann 12. Febrúar sl. Þar var Menntaskólinn á Tröllaskaga valinn Stofnun ársins, Titilinn Stofnun ársins hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í níu lykilþáttum að mati starfsfólks. Þeir eru trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægja og stolt starfsfólks auk jafnréttis. Lára Stefánsdóttir er skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga. Við heyrðum í henni.
Kolumbus - Ævintýraferðir er ferðaskrifstofa í eigu Sigurðar K. Kolbeinssonar en þar hefur m.a. verið boðið upp á ævintýraferðir til framandi landa og fyrir stuttu bauð ferðaskrifstofan upp á ferð hringinn í kringum hnöttinn. Sigurður kom til okkar og sagði okkur frá því hvernig hugmyndin af Kolumbus kviknaði og við spurðum meðal annars hvort mikill markaður sé fyrir slíkum ferðum.
Það er snjókoma í kortunum, við heyrðum í G. Pétri Matthíassyni, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar og heyrðum hvort menn spái einhverjum lokunum á vegum.
Hvað eigum við að horfa á? Er sennilegasta algengasta spurningin á heimili þar sem mikið er horft á sjónvarp, kannski á eftir spurninginni: Hvað eigum við að borða? Ragnar Eyþórsson, sjónvarpsþáttaframleiðandi benti okkur á áhugavert sjónvarpsefni.
Fréttir
Fréttir
Leikskólastjóri í Reykjavík segir breytingarnar á leikskólakerfinu í borginni, sem samþykktar voru í dag, leysi ekki aðkallandi vanda.
Alþingi samþykkti í dag rammaáætlun þar sem Skrokkölduvirkjun á Sprengisandi og Holtavirkjun í Þjórsá eru færðar úr biðflokki í nýtingarflokk.
Stefnt er að því að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum á fimmtudaginn eftir snjóléttan vetur. Aðstæður í Hlíðarfjalli hafa verið öllu betri og aðsókn með mesta móti.
Rauðar viðvaranir hafa verið gefnar út í Frakklandi vegna flóða og úrhellisrigningar.
Strandabyggð hefur ráðið endurskoðunarfyrirtæki til að ráðast í úttekt á kostnaði sveitarfélagsins við útgáfu Byggðasögu Stranda.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Innviðaráðherra vill að framkvæmdir við Fljótagöng hefjist strax í byrjun næsta árs en Vegagerðin telur að til að hægt verði að hefja framkvæmdir sumarið 2027 þurfi allt að ganga upp og ekkert rými verði fyrir utanaðkomandi tafir. For- og verkhönnun Fljótaganga hefur verið flýtt en göngin verða á mesta jarðskjálftasvæði landsins.
Í nýrri skýrslu eru ráðamenn í Evrópu hvattir til að búa lönd sín, stofnanir og innviði undir heim sem er tveimur komma átta til þremur gráðum hlýrri en hann var fyrir iðnbyltingu. Það er allt að tvöfalt meiri hlýnun en miðað er við í Parísarsamningnum.
Upp á síðkastið hefur hlaupið líf í hannyrðir og andóf, ekki síst í Bandaríkjunum. Rauðar húfur sem ýmsir eru að prjóna til að mótmæla gjörðum innflytjendalögreglunnar vestra hafa verið áberandi á prjónasíðum.
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Bubbi Morthens, Kristmundur Axel - Kominn heim.
Liam Gallagher - One Of Us.
Dead Dads Club - That's Life.
Noah Kahan - The Great Divide.
CAGE THE ELEPHANT - Come a Little Closer.
BORKO - Haustpeysan.
JJerome87, Alt-J - Brush Me Like A Horse.
sombr - Homewrecker.
Ásgeir Trausti - Against the Current.
The Stranglers - Let Me Down Easy.
Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
Lykke Li - Lucky Again.
Arlo Parks, - 2SIDED.
Gorillaz - Orange County [BZRP Radio Mix].
Harry Styles- Aperture.
Birnir, GusGus - Eða?.
Calvin Harris, Kasabian - Release the Pressure.
Bríet, KK - Gleymmérei.
Zach Bryan - Plastic Cigarette.
Hrafn Thoroddsen - Alone again.
Kevin Morby - Javelin.
Machine Gun Kelly - Times of my life.
ASAP Rocky - Punk Rocky.
White Stripes - The denial twist.
Black Keys, The - You Got To Lose.
AC/DC - Sin City.
Sault - Good Things Will Come After the Pressure.
George Jackson - I Can't Do Without You.
Brother Wallace - Who's That.
DEATH IN VEGAS feat. LIAM GALLAGHER - Scorpio Rising.
Lime Garden - 23 (Lyrics!).
Kneecap - Liars Tale.
Robyn - Talk To Me.
Grian Chatten, Kae Tempest, Damon Albarn- Flags.
Elín Hall - Tachylite
Wilco - If I Ever Was a Child
Iron & Wine - In Your Ocean
Belle & Sebastian - Piazza, New York Catcher
MJ Lenderman - Wristwatch
Joyce Manor - All My Friends Are So Depressed
Wet Leg - Wet Dream
Brigitte Calls Me Baby - Slumber Party
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í Rokklandi vikunnar kynnumst við Jarðfræðiprófessornum Ívari Ben sem var að senda frá sér sína fyrstu plötu – og á vinyl. Hann er búinn að vera að búa til lög árum saman en svo vatt þetta upp á sig og nú er komin út plata.
En í fyrri hluta þáttarins kynnumst við Bad Bunny sem vakti mikla athygli fyrir skemmtiprógrammið sem boðið var upp á í hálfleik á Superbowl í bandaríska fótboltanum síðasta sunnudag – Ofurskálinni.
Þetta 13 mínútna skemmtiatriði Bad Bunny frá Puerto Rico hefur skipt fólki í fylkingar og einn af þeim sem er óánægður er foringinn í hvíta-húsinu í Bandaríkjunum sem sagði á samfélagsmiðlinum sínum að þetta atriði hafi verið eitt það versta frá upphafi skemmtiatriða á Superbowl og móðgun við mikilleika Bandaríkjanna. Þá hafi dansatriðin verið ógeðsleg, sérstaklega fyrir börnin sem horfðu á. „það skilur enginn orð af því sem þessi gaur segir“ sagði hann líka – en hann söng á spænsku sem er hans tungumál og móðurmál eins og c.a. 45 milljóna bandaríkjamanna – c.a. 13% bandarísku þjóðarinnar.