Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Í Spánarspjallinu þessa vikuna heyrðum við af konu sem slapp úr haldi mannræningja á Spáni í síðustu viku. Hafði verið fangi mannsins í 2 ár. Og líka af tónlistarkonunni Rosaliu sem fór í hlaðvarpsþátt um daginn hjá vinsælum þáttastjórnanda og þær reyktu sígarettur á meðan. Það varð bara allt vitlaust. Jóhann Hlíðar Harðarson okkar maður á Spáni sagði okkur þetta og meira til.
Samræmd próf hafa ekki verið lögð fyrir grunnskólanema síðan tæknileg vandamál komu upp við framkvæmd samræmdu könnunaprófanna árið 2021 og þau voru felld niður. Nú stendur til breyting. Svokölluð stöðu- og framvindupróf verða lögð fyrir nemendur í að minnsta kosti þremur árgöngum. Prófað verður í stærðfræði og lesskilningi.
Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu kom til okkar.
Reykjavíkurborg kynnti í morgun breytingar á leikskólakerfinu. 20 til 75 prósenta afsláttur verður tengdur tekjum og hjúskap. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir þessi leið sem kynnt er gangi út á gjaldfrjálsan 36 stunda dvalartíma en svo taki gjöldin stigvaxandi hækkunum umfram það. Útkoman sé að hálftíminn umfram 8 stundir verður sá dýrasti á höfuðborgarsvæðinu. Sonja kom til okkar.
Niðurstöður í vali á Stofnun ársins 2025 voru kynntar á hátíð Sameykis í Reykjavík þann 12. Febrúar sl. Þar var Menntaskólinn á Tröllaskaga valinn Stofnun ársins, Titilinn Stofnun ársins hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í níu lykilþáttum að mati starfsfólks. Þeir eru trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægja og stolt starfsfólks auk jafnréttis. Lára Stefánsdóttir er skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga. Við heyrðum í henni.
Kolumbus - Ævintýraferðir er ferðaskrifstofa í eigu Sigurðar K. Kolbeinssonar en þar hefur m.a. verið boðið upp á ævintýraferðir til framandi landa og fyrir stuttu bauð ferðaskrifstofan upp á ferð hringinn í kringum hnöttinn. Sigurður kom til okkar og sagði okkur frá því hvernig hugmyndin af Kolumbus kviknaði og við spurðum meðal annars hvort mikill markaður sé fyrir slíkum ferðum.
Það er snjókoma í kortunum, við heyrðum í G. Pétri Matthíassyni, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar og heyrðum hvort menn spái einhverjum lokunum á vegum.
Hvað eigum við að horfa á? Er sennilegasta algengasta spurningin á heimili þar sem mikið er horft á sjónvarp, kannski á eftir spurninginni: Hvað eigum við að borða? Ragnar Eyþórsson, sjónvarpsþáttaframleiðandi benti okkur á áhugavert sjónvarpsefni.
