11:03
Mannlegi þátturinn
Svifryksmengun, Mál og vald og veðurspjallið með Einari

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Svifrykið sem mælst hefur á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana í froststillunum er mjög skaðlegt fyrir heilsu fólks. Það eykur tíðnina á hjartaáföllum og heilablóðföllum er krabbameinsvaldandi og í svifrykinu eru baneitraðar hárfínar agnir sem eru að berast inn í líkamann og valda heilsutjóni. Þetta er haft eftir Hjalta Má Björnssyni formanni félags lækna gegn umhverfisvá í viðtali á Vísi í gær. Hjalti kom í þáttinn í dag.

Hvað er málfærni? Hvernig er að vera í viðkvæmri stöðu þegar kemur að málfærni? Og hvernig notar fólk málbeitingu og breytileika tungumálsins í sína þágu? Iris Edda Nowenstein, lektor í íslenskri málfræði og máltækni og talmeinafræðingur við Landspítalann kom til okkar í dag og sagði frá erindi sem hún kallar Mál og vald. Við fengum hana til að segja okkur betur frá því í þættinum.

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo í dag í veðurspjallið. Í framhaldi af viðtali okkar í gær við Andra Snæ Magnason, byrjaði Einar á því að setja stórar og illskiljanlegar tölur, sem Andri nefndi, um jöklaafkomu í samhengi. Svo er það hlýjasti janúar í sögu mælinga í Nuuk á Grænlandi, en á sama tíma kaldasti janúar í Dammörku. Það setti hann svo í samhengi við tíðina hér heima og snjóleysið sunnanlands í vetur. Í lokum sagði Einar frá breytingum framundan í veðrinu, snjókomuspá og sitthvað fleira.

Tónlist í þættinum í dag:

Einu sinni var / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Svavar Benediktsson, texti Kristján frá Djúpalæk)

Ekki bíl / Hrekkjusvín (Valgeir Guðjónsson, texti Pétur Gunnarsson)

Vor við flóann / Ragnar Bjarnason (Leon T. René, texti Jón Sigurðsson)

Gamla gatan / Kvartett Reynis Sigurðssonar (Oddgeir Kristjánsson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
,