07:03
Morgunvaktin
Félagsmálaráðherra, Berlínarspjall og stofnun ársins

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Ragnar Þór Ingólfsson hefur setið í ríkisstjórn landsins í rúman mánuð. Hann tók við embætti félags- og húsnæðismálaráðherra 11. janúar. Mikilvægir málaflokkar heyra undir ráðuneytið; almannatryggingar, félags- og fjölskyldumál, þjónusta við aldraða og húsnæðismál. Við spjölluðum við um þessi mál.

Í Berlínarspjalli fjallaði Arthur Björgvin Bollason meðal annars um ræðu Merz Þýskalandskanslara á Öryggisráðstefnunni í Munchen á laugardag, hún vakti mikla athygli. Hann sagði líka frá skrifum þýsks heimspekings um félagssálfræðilegar skýringar á græðgi þeirra sem allt eiga fyrir.

Menntaskólinn í Kópavogi er stofnun ársins í flokki stærri stofnana. Við fengum Guðríði Hrund Helgadóttur, skólameistara Menntaskólans í Kópavogi, í kaffi til okkar af þessu tilefni og spjölluðum vítt og breitt um skólann og skólamál.

Tónlist:

Allra meina bót - Mamma gefðu mér grásleppu.

Skapti Ólafsson, Hljómsveit Jan Morávek, Baldur Georgs Takács - Konni flautar.

Van Morrison - Moondance.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,