12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 31. mars 2026

Útvarpsfréttir.

Hjartalæknir hefur verið ákærður fyrir manndráp. Málið var til rannsóknar í fimm ár og laut að sjúklingum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins hafa báðir hvatt til nýrrar þjóðarsáttar. Forseti ASÍ tekur undir þetta og segir þörf á breiðri samfylkingu til að ná niður vöxtum, verðbólgu og atvinnuleysi.

Forseti Alþingis heimsótti Bucha í útjaðri Kyiv í morgun til að minnast þess að fjögur ár eru liðin síðan grimmdarverk Rússa í borginni urðu heimsbyggðinni ljós.

Talið er að tugir barna séu ógreind með heyrnarskerðingu hér á landi. Börnum í eftirliti vegna heyrnarskerðingar hefur fækkað talsvert síðan skólaskimun á heyrn var lögð af.

Ísraelska þingið hefur samþykkt að taka upp dauðarefsingar fyrir hryðjuverkamenn sem drepa ísraelska borgara. Nýju lögin gilda þó aðeins um Palestínumenn.

Íslenskir auglýsendur hafa aldrei varið hærra hlutfalli útgjalda til erlendra miðla. Formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa segir að þegar auglýsingafé flytjist úr landi tapist störf.

Úrslitakeppnirnar í handbolta og körfubolta eru farnar á fullt. Í gærkvöld komust FH-ingar í undanúrslit í úrslitakeppni karla í handbolta.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,