07:03
Morgunútvarpið
Krossfestingar,Tiger Woods,badmintonpar á leið á EM,kokkur ársins og óánægður eigandi Skógarbaða

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Sigyn Blöndal, kynningarstjóri Unicef á Íslandi, fluttist með fjölskyldu sinni til Filippseyja fyrir nokkru síðan. Þar kynntist hún manni sem hefur látið krossfesta sig 36 sinnum en við erum vön að sjá mennina sem stunda slíkt í fréttatímunum um páskana. Sigyn gerði þátt um athæfið sem verður á dagskrá Rásar 1 um páskana. Hún leit við í Morgunútvarpinu og sagði okkur frá þessum áhugaverða manni.

Kristófer Darri Finnsson og Davíð Bjarni Björnsson eru á leiðinni á EM í badminton í þriðja skipti en mótið fer fram á Spáni í næstu viku. Þeir hafa þurft að leggja allt undir til að komast á mótið en þangað komast aðeins þeir bestu í íþróttinni. Að vera tvíliðaleikspar í badminton í raun eins og að vera í ástarsambandi, samkvæmt þeim sem þekkja til; þeir eru alltaf saman, æfa saman, ferðast saman, keppa saman — eru meira með makkernum en fjölskyldunni. Hvernig gengur þetta allt saman upp? Kristófer Darri og Davíð Bjarni kíktu til okkar.

Baðlón hafa sprottið upp eins og gorkúlur á Íslandi undanfarin ár og hafa mörg þeirra hagnast vel. Nú stendur til að hækka virðisaukaskatt á þessa starfsemi úr 11 í 24 prósent — hugmyndir sem eru mikið áfall fyrir ferðaþjónustuna. Finnur Aðalbjörnsson, eigandi Skógarbaðanna, sagði á Vísi í gær að áformin valdi sér miklum áhyggjum, enda hafi hann þegar gefið út verðskrá fyrir næsta ár og að hækkunin setji stækkunaráform þeirra í uppnám. Við heyrðum í Finni.

Golfgoðsögnin Tiger Woods hefur verið ákærður fyrir akstur undir áhrifum eftir að bíll hans valt á Jupiter Island í Flórída um síðustu helgi. Þetta er fjórða bílslysið sem Tiger veldur en í þetta skipti slapp hann ómeiddur. Áður en þetta gerðist var fólk aðallega að velta fyrir sér hvort Tiger myndi taka þátt í Masters-mótinu í golfi eftir páska en nú eru aðdáendur hans enn á ný minntir á hversu breyskur þessi magnaði íþróttamaður er. Við fáum til okkar golfkennarann Margeir Vilhjálmsson og hann sagði okkur frá hæðum og lægðum í lífi Tiger Woods.

Ísak Aron Jóhannsson nældi í titilinn kokkur ársins um nýliðna helgi en keppnin var þá haldin í þrítugsta skipti. Ísak Aron er fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins, sem er á leiðinni á heimsmeistaramótið í matreiðslu í Lúxemborg í nóvember og þar stendur til að gera góða hluti. Hvað er á bakvið þennan frábæra árangur? Við fengum Ísak Aron til okkar til að svara því og fiskuðum líka upp úr honum góð ráð fyrir eldamennskuna um páskana.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,