19:00
Tónleikur
Glenn Gould og útvarpið

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Áður á dagskrá veturinn 2008-2009

Haldið verður áfram að segja frá kanadíska píanóleikaranum Glenn Gould í þættinum í dag, og leikin tónlist eftir Gibbon, Beethoven og Alban Berg. Útvarpsmaðurinn Glenn Gould verður líka kynntur til sögunnar og flutt brot úr tveimur útvarpsþáttum hans, en hann var að öllum líkindum upphafsmaður svokallaðra fléttuþáttanna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 49 mín.
e
Endurflutt.
,