15:00
Shamone! Sagan af Michael Jackson
The Jackson 5 og Motown

Í þáttunum er ferill Michael Jackson rakin í tali og tónum. Barnastjarna, skemmtikraftur, poppstjarna af áður óþekktri stærð, frík og fyrirbæri; Bakgrunnur hans og helstu áhrifavaldar verða til umfjöllunar og leitast verður við að setja fjölbreytilegan feril hans í menningarsögulegt samhengi.

Umsjón: Berglind María Tómasdóttir

Annar þátturinn er helgaður hinum söngelsku bræðrum sem saman mynduðu The Jackson 5. Fjallað verður um upphafsár þeirra, plötuútgáfuna Motown sem þeir komust á mála hjá og menningar- og þjóðfélagslegar sviptingar sjöunda áratugarins.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 6. júní 2015.

Er aðgengilegt til 07. ágúst 2026.
Lengd: 56 mín.
e
Endurflutt.
,