Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar í þetta sinn er hljómplatan Rain Town með skosku hljómsveitinni Deacon Blue. Deacon Blue var stofnuð í Glasgow árið 1985. Nafn hljómsveitarinnar kemur úr titli lagsins Deacon Blues með hljómsveitinni Steely Dan. Ricky Ross, söngvari og aðallagahöfundur stofnaði sveitina eftir að hann flutti frá Dundee til Glasgow og fékk til liðs við sig Lorraine McIntosh, James Prime, Dougie Vipond, Ewen Vernal og Graeme Kelling. Hljómsveitin sendi frá sér sína fyrstu plötu, Raintown, árið 1987 og náði hún talsverðum vinsældum. Sú plata er vínill vikunnar í þetta sinn. Titill plötunnar vísar til borgarinnar Glasgow og efni texta Ross voru glíman við hversdagslífið í borginni. Platan náði talsverðum vinsældum, náði hæst í 14. sæti breska vinsældarlistans og var á listanum í eitt og hálft ár.
Við hlýddum á A hlið plötunnar í heild, þar hljóma lögin í þessari röð:
Born in a Storm
Raintown
Ragman
He Looks Like Spencer Tracy Now
Loaded
When will You (Make My Telephone Ring)
Og svo var það B hlið plötunnar í heild, lögin hljóma í þessari röð:
Chocolate Girl
Dignity
The Very Thing
Love's Great Fears
Town to Be Blamed
Hljómsveitin hætti árið 1994 eftir ágætis gengi, en tók svo aftur saman um það bil áratug síðar og starfar enn. Í fyrra sendu þau frá sér sína elleftu plötu og hljómsveitin kemur reglulega fram á tónleikum. Þau Ricky og Lorraine giftust árið 1990 og eru enn gift.
Við enduðum þennan þátt á því að heyra tvö aukalög með hljómsveitinni, fyrst þeirra vinsælasta lag, Real Gone Kid frá árinu 1989 og svo Fergus Sings the Blues en bæði lögin voru á annarri hljómplötu sveitarinnar When the World Knows Your Name sem kom út árið 1989.
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 29. mars 2014.
Umsjón: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Steinunn Ólina Þorsteinsdóttir leikur tónlist að eigin vali.

frá Veðurstofu Íslands.
Aldrei hefur gustað jafn kröftuglega um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og nú. En þó pallíetturnar og glimmerið glitri undan ljóskösturunum sprettur sjónarspilið úr rammpólitískum jarðvegi sem, þegar grannt er á litið, hefur alltaf sett sinn brag á keppnina.
Gæti keppnin sungið sitt síðasta 2026?
Gísli Marteinn Baldursson hagar seglum eftir vindvélunum og fylgir blæstri þeirra í gegnum átakasögu Eurovision.
Múrinn fellur, frelsið er allt um kring, og Eurovision kemur út úr skápnum.

Tónlist héðan og þaðan
Útvarpsfréttir.
Rússar fögnuðu sigurdeginum með hersýningu í dag. 81 ár er síðan Sovét ríkin sigruðu nasista í seinni heimsstyrjöld. Hersýningin var látlausari en síðustu ár vegna ótta um drónaárásir Úkraínumanna.
Fimm eru særðir eftir að ekið var á hóp fólks í breskum bæ í nótt. Einn þeirra er í lífshættu.
Peter Magyar verður settur í embætti forsætisráðherra Ungverjalands í dag. Búist er við að tugir þúsunda safnist saman og fagni tímamótunum.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, borgastjórinn í Reykjavík og rektor Listaháskólans skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um framtíðarhúsnæði Listaháskóla Íslands.
Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir bagalegt að kvittanir og fylgiskjöl hafi vantað við færslur borgarstjóra á innkaupakort sem hún hefur frá Reykjavíkurborg.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Athygli heimsbyggðarinnar var á Venesúela í byrjun árs þegar bandarískir hermenn tóku forseta landsins, Nicolás Maduro og eiginkonu hans Ciliu Flores, höndum og fluttu í fangelsi í New York þar sem þeim er enn haldið. Trump lýsti því yfir að boðað yrði til kosninga og að Bandaríkin tækju yfir olíuframleiðslu landsins. Þrátt fyrir að vera risastórt fréttamál féll það fljótlega í skuggann af öðrum málum, eins og hótunum Trumps um að taka yfir Grænland, árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran og árásum Ísraela á Líbanon, svo fátt eitt sé nefnt. Í Heimskviðum í dag ætlum við að reyna að glöggva okkur á því hvort eitthvað hafi breyst í Venesúela eftir að Maduro var steypt af stóli. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.
Enska fótboltafélagið Brighton and Howe Albion tilkynnti nýlega um byggingu nýs leikvangs sem verður eingöngu fyrir kvennafótbolta. Þetta yrði fyrsti völlur sinnar tegundar í Evrópu en sá fyrsti í heiminum var tekinn í notkun í Kansas City í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum. En hvað gerir þessa velli vænlegri fyrir kvennafótbolta og af hverju er ástæða til hafa slíka velli? Hallgrímur Indriðason, sem hefur horft á ófáa fótboltaleikina um ævina, kannar þetta.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Eygló Höskuldsdóttir Viborg er hámenntað tónskáld sem samið hefur ýmiskonar tónverk uppúr hljómrænum hugmyndurm og líka eftir pöntun. Hún á sér líka aukasjálf, Alter Eygló, sem fann sig á karókíbar í New York og semur karaókílög.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Rætt við Teit Mangússon tónlistarmann um áhrifavalda á textagerð, föðurhlutverkið, hvernig það er að samræma föðurhlutverkið og tónlistarsköpun, afkomukvíða, tuttugu ára gamlan bíl, auk þess sem eldri börn Teits, þau Ingileif og Baldur, fá að segja frá kostum og göllum þess að eiga pabba sem er tónlistarmaður.
Umsjón: Þórhallur Guðmundsson
Í þáttunum er ferill Michael Jackson rakin í tali og tónum. Barnastjarna, skemmtikraftur, poppstjarna af áður óþekktri stærð, frík og fyrirbæri; Bakgrunnur hans og helstu áhrifavaldar verða til umfjöllunar og leitast verður við að setja fjölbreytilegan feril hans í menningarsögulegt samhengi.
Umsjón: Berglind María Tómasdóttir
Annar þátturinn er helgaður hinum söngelsku bræðrum sem saman mynduðu The Jackson 5. Fjallað verður um upphafsár þeirra, plötuútgáfuna Motown sem þeir komust á mála hjá og menningar- og þjóðfélagslegar sviptingar sjöunda áratugarins.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 6. júní 2015.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
„Heimska fólks felst í því að eiga svör við öllu. Viska skáldsögunnar felst í því að eiga spurningar við öllu,“ sagði Milan Kundera á einum stað. Og í þættinum í dag munu eflaust vakna ýmsar spurningar. Þessa vikuna verðum við með hugann við karnivalíska skáldsögu um réttláta reiði, útlegð og ofbeldi en líka samhygð og mennsku. Við rýnum í nýja skáldsögu eftir Almar Stein Atlason, Mold er bara mold – litla systir mín fjöldamorðinginn. Almar sem hefur hingað til verið áberandi í myndlistinni og sem gjörningalistamaður en kemur skeiðandi á ritvöllinn með skáldsögu og það í þremur bindum saman í kassa. Við drögum fram sparistellið, Mikail Bakhín og kenningar um gróteskuna og karnívalið af þessu tilefni. Mold er bara mold er rússíbani, saga full af hasar, ádeilu og íróníu.
Í lokin fylgjum við því eftir með samtali við Heiðu Vigdísi Sigfúsdóttur sem veltir með mér vöngum yfir undiröldu í menningarefni nútímans, meðal annars bók Almars, þar sem dregnar eru fram í dagsljósið afleiðingar hinna ströngu hefða og viðmiða vestrænna samfélaga, um miðjuna og jaðarinn, hvað við erum oft félagslega nærsýn og gleymin – og já hvernig listin sýnir „normið“ í nýju ljósi.
Viðmælendur: Almar Steinn Atlason og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir
Lesari: Jóhann Egill Jóhannsson
Tónlist: Pista (Fresh Start) - Los Bitchos / Bang bang (My baby shot me down) - Nancy Sinatra / I'm Kin - Colleen
Umsjón: Jóhannes Ólafsson
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Eirík Orra Ólafsson trompetleikara um tónlist hljómsveitarinn Hist og... en hún sótti djassstefnuna Jazzahead í Bremen í Þýskalandi í apríl sl.
Þeir velta fyrir sér ástandi og horfum í Evrópu- og heimsdjassinum og hlusta saman á tónlist Hist og... og sumt af því sem boðið var uppá Bremen þetta árið.
Tónlistin í þættinum
Arpah - Hist og... - Days of Tundra 2019
Savua (feat. Jori Huhtala & Mika Kallio) - Harri Kuusijärvi 2025
TI-RI-Ma - Cassius Lambert - Bitoi - Sirkulu 2025
Resolution Points - Umbra II- Peter Evans ofl - 2024
Free - Crutches - Four Lttr Wrds - 2025
Gravity - Jeremy Leadbetter - Gravity - 2024
Laskað lánshæfi - Róberta Andersen - Hist og... - Holy Ghost of... 2023
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í september 1970 rændu liðsmenn Alþýðufylkingarinnar til frelsunar Palestínu fjórum farþegaþotum og stefndu þeim á gamlan herflugvöll í eyðimörk Jórdaníu. Fyrri þáttur af tveimur.

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Fats Waller & Rhythm sextett flytja lögin By The Light Of The Silvery Moon, Ain't Misbehavin', Sad Sap Sucker Am I Am, Moppin' and Boppin', I Wanna Hear Swing Songs, Cash For Your Trash, Your Socks Don't Match og Chant Of The Groove. Stórsveit Benny Goodman flytur lögin Goodbye, Undercurrent Blues, Swintime In The Rockies, Peckin', Downhill Special, If I Had You, It Takes Time og Flying Home. Don Sebesky og hljómsveit leika lögin Satin Doll, Mood Indigo, Take The Coltrane, Caravan, Creole Love Call, Chelsea Bridge og El Morro.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Hvað er baldakin? Og hvað er veifiskati? Hvað er að vera aftarlega á merinni? Hvernig reipi er haldreipi? Ef eitthvað ber á góma, hvort eru það þá fingurgómar eða tanngómar? Hvað er eiginlega að snurfusa?
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Eiríkur Stephensen, líffræðingur og tónlistarmaður, segir frá sínu uppáhalds tónverki.
Leiknir eru tveir kaflar úr Requiem Guiseppe Verdi; Kyrie og Ingemisco.
Einsöngvarar eru tenórinn Veriano Luchetti, Renata Scotto, sópran,
Agnes Baltsa, mezzo-sópran og Evgeny Nesterenko, bassi. Upptakan er frá árinu1979, Richardo Muti stjórnar Bresku fílharmóníusveitinni, um kórsöng sjá Ambrosian Singers.
Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.
Umsjón: Jón Ormar Ormsson
Jóhannes Sveinsson Kjarval var ekki ókunnur árinni. Hann var nokkur ár á skútum í upphafi síðustu aldar. En eftir að hann steig frá borði og hélt til listnáms var hann lítt við sjómennsku kenndur. Í ágústmánuði 1959 ýtti hann þó fari sínu, tvírónu, út á Selfljótið og sigldi sjó alla leið að Bakkagerði í Borgarfirði, nær 30 km leið. Kjarval var þá 73 ára. Í þættinum segir frá þessari siglingu Kjarvals á fari sínu Gullmáfinum.
Andrés Bjarni Björnsson (10.09‘93-20.04’74) 26,00
Sigling Gullmáfsins/Múlaþing 1970
Lesari Sigríður Kristín Jónsdóttir 130563-5039 17,00
Tónlist: Lög eftir Inga T. Lárusson.
Sumar í sveit/Guðmundur Guðmundsson
Ingveldur Hjaltested/Jónína Gísladóttir
Hríslan og lækurinn/Páll Ólafsson
Þórarinn Hjartarson, Ragnhildur Ólafsdóttir
Fyrst á dagskrá 25. september 2009

frá Veðurstofu Íslands
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Umsjónarmaður fer yfir feril Vilhjálms Vilhjálmssonar, söngvara, og leikur lög úr nýju þriggja diska safni með tónlist hans.

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Jenný Kristín Valberg er kona sem barðist út úr ofbeldi í nánu sambandi og nýtir nú reynslu sína til að hjálpa öðrum í gegnum starf sitt hjá Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Jenný kom í Fimmu og sagði okkur af fimm áhrifavöldum í lífi hennar og það hófst með afa hennar, Ingvari Jónssyni, sem var skipa og húsasmiður.
Í síðari hlutanum skoðum við það sem gerðist á deginum og spilum tónlist sem tengist.
Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.
Helga Lilja Magnúsdóttir fatahönnuður og Lilja Birgisdóttir myndlistakona og ilmhönnuður koma í heimsókn og fara yfir Hönnunarmars ásamt fleiru.
Tónlist í þættinum:
Creature of Habit - Myrká.
Blood Harmony - Girl from the Northern Valley.
Paul McCartney - Days We Left Behind.
Sigur Rós - Hoppípolla.
Moses Hightower - Tíu dropar.
Ragnhildur Gísladóttir - Fegurðardrottning.
Ivar Klausen - Dreamer.
SIN FANG & JÓNSI & KJARTAN HÓLM - Bakgarðar.
Jimmy Soul - If you wanna be happy.
DAWN feat. TONY ORLANDO - Tie A Yellow Ribbon Round The Ole Oak Tree.
BUBBI & KATRÍN HALLDÓRA - Án Þín.
Laufey - Madwoman.
RAYE - WHERE IS MY HUSBAND!
Útvarpsfréttir.
Rússar fögnuðu sigurdeginum með hersýningu í dag. 81 ár er síðan Sovét ríkin sigruðu nasista í seinni heimsstyrjöld. Hersýningin var látlausari en síðustu ár vegna ótta um drónaárásir Úkraínumanna.
Fimm eru særðir eftir að ekið var á hóp fólks í breskum bæ í nótt. Einn þeirra er í lífshættu.
Peter Magyar verður settur í embætti forsætisráðherra Ungverjalands í dag. Búist er við að tugir þúsunda safnist saman og fagni tímamótunum.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, borgastjórinn í Reykjavík og rektor Listaháskólans skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um framtíðarhúsnæði Listaháskóla Íslands.
Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir bagalegt að kvittanir og fylgiskjöl hafi vantað við færslur borgarstjóra á innkaupakort sem hún hefur frá Reykjavíkurborg.
Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.
Helgarútgáfan lagði af stað af gömlum vana að hádegisfréttum loknum. 9. maí mættur og vorið farið að banka hressilega upp á víðast hvar. Kristján Freyr hélt um stýrið, skrunaði yfir það helsta sem á seyði var þessa helgina, tók á móti skemmtilegum gestum og spilaði skemmtilega tónlist. Annar sunnudagur í maí fram undan og þá er iðulega mæðradagur. Þó svo að auðvitað allir dagar séu mæðradagar þá er þessi dagur haldinn til heiðurs mæðrum. Helgarútgáfan heiðraði mæður með lagavali dagsins.
Svo var það Meðmælasúpan góða en fjöllistamaðurinn Árni Vilhjálmsson, sem hefur meðal annars gert vel með vinum sínum í leikhópnum Kriðpleir upp á síðkastið, var áður í FM Belfast, gefið út sólótónlist og fengist við myndlist einnig - og tónlistarkonan stórefnilega Ragnhildur Veigarsdóttir sem semur meira og minna megnið af þeim frábæru lögum sem hljómsveitin FLOTT hefur gefið út síðustu misseri og er jafnframt höfundur tónlistarinnar í þáttunum 20 og eitthvað sem eru að slá í gegn hér á RÚV um þessar mundir ... ættu eldhress í súpuna að þessu sinni.
Þau gáfu af sér hver meðmælin að fætur öðrum og ræddu meðal annars um suðu á eggjum í 6.20 mín., norsku þættina um Berit, Love on the Spectrum og kvikmyndina Dig! XX um sveitirnar The Dandy Warhols og The Brian Jonestown Massacre. Úr eldhúsinu var helst rætt um steiktan fisk í raspi, veitingastaðina Tíu sopa og Skál! í miðborg Reykjavíkur og heimalagað Bolognese. Loks voru ræddar bækur um leikarann sáluga Matthew Perry og listamanninn Stefán Jóonsson frá Möðrudal eða Stórval.
Hér er svo hinn fallegi meðralagalisti í bland við annað skemmtilegt:
POSSIBILLIES - Móðurást
PAUL SIMON - Mother And Child Reunion
BRÍET - Takk fyrir allt
ROLLING STONES - Mother's Little Helper
FLOTT - Tuttugu og eitthvað
FRIÐRIK DÓR - Aftur ung (Dansaðu við mig)
ÁRNI VIL - Afternoons
SADE - Kiss of life
ASSOCIATION - Never My Love
SKÚLI MENNSKI - Mamma fílar rokk og ról
ÐE LÓNLÍ BLÚ BOJS - Mamma grét
EGÓ - Móðir
MINNIE RIPERTON - Lovin' You
BUFF & Á MÓTI SÓL - Mamma gefðu mér grásleppu
KRÓLI - Kókómjólk
LENNY KRAVITZ - Always on the run
KLAUFAR - Huggun harmi gegn
MAMMAÐÍN - Frekjukast
BOTNLEÐJA - Heima er best
QUEEN - Bohemian Rhapsody

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í tíunda þætti eru árin 1999-2002 til umfjöllunar, þegar Bubbi sendi m.a. frá sér plöturnar Nýbúinn og Sól að morgni. Í þættinum má m.a. heyra valdar klippur úr útvarpsþáttunum Árið er, Bubbi segir sögur, Plata vikunnar, Poppland, Rokkland og Tónlistarviðburður ársins 2001
Viðmælandi í níunda þætti er Bubbi Morthens.
Viðtöl: Ásgeir Eyþórsson og Ólafur Páll Gunnarsson.
Lagalisti:
Bubbi Morthens - Matarhlé
Bubbi Morthens - Gemmér
Bubbi Morthens - Kata rokkar
Bubbi & Ensími - Það þarf að mynd’ana
Bubbi & Botnleðja - Horfinn
Bubbi & Botnleðja - Góðar stelpur fara til himna
Bubbi - Lagður hjá rúmi Casju Lísu síðla kvöld eitt
Bubbi - Gamli Nói
Utangarðsmenn - Íslenski draumurinn
Utangarðsmenn - Hiroshima (Af tónleikum)
Bubbi - Pollýanna
Bubbi & Stríð og friður - Þú mátt kalla það ást
Bubbi & Stríð og friður - Nýbúinn
Bubbi & Stríð og friður - Alltaf einn
Bubbi & Stríð og friður - Frelsi 76
Bubbi & Stríð og friður - Tel Aviv
Bubbi & Stríð og friður - Á hörðum stól
Bubbi & Stríð og friður - Guð er kona
Bubbi & Stríð og friður - Við Gróttu
Bubbi & Stríð og friður - Kveðja
Bubbi & Stríð og friður - Þar sem gemsarnir aldrei þagna,
Hera Hjartardóttir & Bubbi - Stúlkan sem starir á hafið
Bubbi & Stríð og friður - Þá verður gaman að lifa

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.

Útvarpsfréttir.

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Atli Már Steinarsson tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.
Gestur Matta er söng og leikkonan Vala Guðna. (e)
Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
Soldið af rokki og heilmikið af róli með því.
Lagalisti:
Bylur - Rugl
Velvet Underground - Rock and roll
Kurt Vile - Chance To Bleed
Apparat Organ Quartet - Stereo rock 'n roll
Bang Gang - Find what you get
Emilíana Torrini - Tookah
Skálmöld - Að sumri
Foo Fighters - White limo
Annihilator - Alison Hell
Jimi Hendrix - Hey Joe
Swizz - Selfoss
Bruce Springsteen - Glory days
Sjana Rut - Burn the matches
Kot - Sól
Diljá, Bubbi Morthens - Júlíkvöld
Lame dudes - Saga af sambandsslitum úr Grafarvogi
Gillon - My special mine
Hörður Torfa - Litli Fugl
Tómas Jónsson, Ingi Björn Ingason, Valdimar Guðmundsson, Kristinn Snær Agnarsson, Þorleifur Gaukur Davíðsson, Ómar Guðjónsson - Æviskeið
Svanfríður - What's hidden there
Ævintýri - Ævintýri
Radiohead - Creep
U2 - I will follow
Ðe Lónlí blú bojs - Mér líður svo vel
Gildran - Vorbragur
Papar og gestir, Papar, Einar Ágúst Víðisson - Og þá stundi Mundi
Deep Purple - Burn
Pink Floyd - Comfortably Numb
Iron Maiden - The number of the beast
Helgi og hljóðfæraleikararnir - Fyrir handan
Án orma - Dansaðu fíflið þitt dansaðu
Fræbbblarnir - Nóg (er meira en nóg)!
Þeyr - Úlfur
Olga Guðrún Árnadóttir - Það vantar spýtur
Guðmundur Rúnar Lúðvíksson - Gallabuxur
Björgvin Halldórsson - Ég skal syngja fyrir þig
The Move - Disturbance
Boston - More Than a Feeling
Billy Joel - All shook up
Una Torfadóttir, Sigurður Halldór Guðmundsson - Þetta líf er allt í læ
Herbert Guðmundsson - I believe in love