12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 9. maí 2026

Útvarpsfréttir.

Rússar fögnuðu sigurdeginum með hersýningu í dag. 81 ár er síðan Sovét ríkin sigruðu nasista í seinni heimsstyrjöld. Hersýningin var látlausari en síðustu ár vegna ótta um drónaárásir Úkraínumanna.

Fimm eru særðir eftir að ekið var á hóp fólks í breskum bæ í nótt. Einn þeirra er í lífshættu.

Peter Magyar verður settur í embætti forsætisráðherra Ungverjalands í dag. Búist er við að tugir þúsunda safnist saman og fagni tímamótunum.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, borgastjórinn í Reykjavík og rektor Listaháskólans skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um framtíðarhúsnæði Listaháskóla Íslands.

Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir bagalegt að kvittanir og fylgiskjöl hafi vantað við færslur borgarstjóra á innkaupakort sem hún hefur frá Reykjavíkurborg.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,