Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Samskipti Bandaríkjanna og ríkja í vestur Evrópu voru rædd í kjölfar nýjustu yfirlýsinga Trumps forseta um Grænland. Sveinn Máni Jóhannesson, doktor í sagnfræði, stiklaði á stóru í langri sögu samskipta ríkjanna vestan- og austanmegin Íslands.
Arthúr Björgvin Bollason sagði frá viðbrögðum þýskra ráðamanna við orðum og athöfnum Trumps síðustu daga. Þeir eru hálf ráðalausir. Forystumenn AfD hafa lýst óánægju sinni með Trump en kært hefur verið á milli þeirra fram til þessa.
Rætt var handbolta. Ísland mætir Ungverjalandi á EM í kvöld. Jón Hjaltalín Magnússon lék 58 landsleiki á sínum tíma og var formaður HSÍ 1984-1992. Hann kvaðst bjartsýnn á áframhaldandi gott gengi liðsins auk þess sem hann rifjaði upp gamlar sögur.
Tónlist:
Concierto de Aranjuez - Narciso Yepes,
From the start - Laufey,
Laufey - From The Start
An der Ostseeküste
Gerum okkar besta - Snorri Helgason.

07:30

08:30

Umsjón: Halldóra Björnsdóttir.

Veðurstofa Íslands.
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Lagalistinn:
Oscar Peterson trio - The Man I Love.
NINA SIMONE - He Needs Me.
Mississippi John Hurt - Goodnight Irene.
Kate and Anna McGarrigle - Swimming Song.
Julie London - 'S Wonderful.
Billie Holiday - When you're smiling.
Pink Floyd - Us And Them.
Bob Wills & His Texas Playboys - Stay a Little Longer.
BOB DYLAN - Someday Baby.
Elmore James - Fine Little Mama.
Rahsaan Roland Kirk & Al Hibbler - Lover come back to me.
U2 - Stuck in a Moment You Can't Get Out Of.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein stendur fyrir vitundarvakningu sem hefst á sunnudaginn í Hörpu þar sem perluarmböndin með áletrunni „lífið er núna“ eru perluð og seld. Sólveig Ása Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krafts, kom í þáttinn en hún þekkir það af eigin raun að berjast við krabbamein. Með henni kom Eva Sigrún Guðjónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Krafts, til að segja okkur betur frá málefninu.
Laugardaginn 31. janúar tekur Ástvaldur Zenki Traustason formlega við stöðu ábóta Zen á Íslandi. Ástvaldur Zenki hefur verið nemandi Jakusho Kwong-roshi í hart nær 30 ár og tekur nú við stöðu hans sem ábóti og aðal kennari Zen á Íslandi. Jakusho-roshi er upphafsmaður Zen á Íslandi og kom árlega til Íslands í um 25 ár.
Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag talaði Einar um veðrið og tíðina hér heima, flughálkuna og af hverju hún myndast þó það sé hiti í lofti. Svo var það veðurspáin framundan, kuldahvirfill Stóri Boli vestan Grænlands sem kemur æðandi yfir N-Ameríku, en virðist síðan ætla hverfa fljótt aftur. Það er kalt í Austur-Evrópu og stríð í Úkraínu. Einar rifjaði upp þrjá óvenjulega kalda vetur 1940-1942 sem höfðu áhrif á gang síðari heimstyrjaldarinnar og Vetrarstíðið í Finnlandi. Þessir þrír vetur voru allir sérlega mildir hér á landi.
Tónlist í þættinum:
Austurstræti / Laddi (Þórhallur Sigurðsson)
Egils appelsín / Spilverk þjóðanna (Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson, Sigurður Bjóla Garðarsson, Sveinbjörn Egilsson og Kristján Jónsson)
Röndótta mær / Jakob Frímann Magnússon (Jakob Frímann Magnússon)
Don’t Try to Fool Me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Fljúgandi hálka mætti landsmönnum víða í morgun. Hún hefur valdið vegfarendum á höfuðborgarsvæðinu mestum vandræðum, tugir hafa leitað á bráðamóttöku og þess eru dæmi að mannlausir bílar hafi runnið af stað.
Evrópusambandið undirbýr víðtækar fjárfestingar á Grænlandi og vill auka samstarf í öryggismálum á norðurslóðum. Þetta kom fram í ræðu forseta framkvæmdastjórnar ESB á Davos-ráðstefnunni í morgun.
Íslendingur sem býr í Bandaríkjunum segir ótta í loftinu hjá fólki sem ekki styður embættisverk Bandaríkjaforseta. Ár er í dag síðan hann tók við embætti á ný.
Ingibjörg Isaksen sækist eftir að verða formaður Framsóknarflokksins. Hún hefur ein lýst yfir framboði, kjósa á nýjan formann á flokksþingi eftir rúmar þrjár vikur.
Það kom eiganda hópferðafyrirtækis í Norðurþingi á óvart að skólaakstur frá Raufarhöfn til Öxarfjarðar hefði verið færður eiginmanni skólastjóra Öxarfjarðarskóla. Sviðsstjóri velferðarsviðs segir útboð ekki hafa komið til greina.
Ástralir hafa hert löggjöf um skotvopnaeign og hatursorðræðu eftir hryðjuverkaárás á Bondi-ströndinni í síðasta mánuði.
Ísland mætir Ungverjalandi í kvöld í lokaleik sínum í riðlakeppni EM karla í handbolta. Stigin sem vinnast í leiknum fylgja liðunum áfram í milliriðil.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Stöðugleikasamningarnir - og verðhækkanir í ljósi þeirra - eru til umfjöllunar í Þetta helst í dag. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sagði í kvöldfréttum sjónvarps um helgina að verðbólga gæti sprengt kjarasamninga í haust.
Viðmælendur:
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra
Róbert Farestveit, aðalhagfræðingur ASÍ
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Okjökull fyrrverandi og Hofsjökull eystri eru viðfangsefni vísindagreinar sem birtist nýverið í alþjóðlega vísindaritinu annals of glaciology. Því var lýst yfir fyrir tólf árum að Okjökull væri horfinn. Hofsjökull eystri tórir enn, en talið að hann muni hverfa að óbreyttu eftir þrjátíu og fimm til fjörutíu ár. Eyjólfur Magnússon frá Jarðfræðistofnun háskóla íslands og Hrafnhildur Hannesdóttir frá Veðurstofu Íslands eru meðal höfunda greinarinnar. Við spjöllum við þau í upphafi þáttar.
Við hringjum síðan austur á land og heyrum í Jóni Birni Hákonarsyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sambandið er að fara af stað með átak til að auka þátttöku almennings í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Meira um það um miðbik þáttar.
Við ræðum síðan jafnrétti kynjanna í lok þáttar. Í fyrra voru liðin fimmtán ár frá setningu laga um hlutföll kynja í stjórnum fyrirtækja. Þau fara fram á að hlutfall kvenna sé þar 40%. Ásta Dís Óladóttir prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fleiri birtu grein á dögunum í ritinu Stjórnmál og stjórnsýsla. Þar er farið yfir þróun mála frá setningu laganna fyrir fimmtán árum, áhrif þeirra og viðhorf til frekari aðgerða. Ásta Dís ætlar að segja okkur frá niðurstöðunum á eftir.
En fyrst eru það jöklarnir.
Tónlist í þættinum:
Right Down the Line - Bonnie Raitt
Heat Lightning - Mitski
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Gunnhildur Hauksdóttir notar raddir til að skapa list, fléttar saman teikningum, pendúlum og kórum sem hún setur saman til að syngja teikningarnar og hugmyndirnar. Hún leggur áherslu á það að hún sé ekki að búa til tónlist, segist enda ekki kunna neitt í tónlist, en sé að búa til áferð með röddum.
Lagalisti:
Óútgefið - Kór fyrir einn
Óútgefið - Tvíeyrna
Five Drawings - Fimm teikningar
Óútgefið - jäkälä
Óútgefið - Úr hjarta í stein
Óútgefið - Rottukór
Óútgefið - Skýjakór
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hér lýkur að segja frá Höskuldi Jónssyni, sem Bólu-Hjálmar skrifaði um, en síðan er gluggað í frásögn Hjálmars af Eyvindi Jónssyni bónda og smið á 17. öld en hann var sérlega frægur fyrir bátasmíði sína og eru af því rómaðar sögur sem Hjálmar skráði mjög skemmtilega.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Á sýningunni Blind date, sem opnaði í Ásmundarsal um helgina, umbreytist innihald pennaveskis í himingeiminn, alda gleypir harmónikkuslóð á kínverskri strönd, plútóblýantur mætir jafnóðum strokleðrum í yfirstærð og tilfinningin fyrir víðáttunni í hversdagsleikanum er kitluð úr öllum höfuðáttum. Við bregðum okkur í hlutverk þriðja hjólsins með myndlistarmönnunum Kristínu Karólínu Helgadóttur og Sigurði Guðmundssyni í þætti dagsins. Við kynnum okkur líka dagskrá Frönsku kvikmyndahátíðarinnar, sem haldin verður í tuttugasta og sjötta skiptið dagana 23. janúar til 1. febrúar, og ræðum við Ásu Baldursdóttur, dagskrárstjóra Bíó Paradís. Til að brúa bilið milli umfjallana rifjum við auk þess upp hugleiðingar Páls Skúlasonar um Útlending Alberts Camus.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Í bókinni Ástarkraftur: Undirstöður ástarfræða er lagður grunnur að ástarrannsóknum í íslensku samhengi. Fjöldi höfunda á skrif í bókinni en það eru Silja Bára Ómarsdóttir og Berglind Rós Magnúsdóttir sem ritstýra henni. Jóhannes Bjarki ræðir við Berglindi Rós og Önnu Guðrúnu Jónsdóttir sem kynnti hugtakið í doktorsritgerð sinni árið 1991.
Brynja Hjálmsdóttir sér um sjónvarpið í Lestinni. Að þessu sinni segir hún frá tveimur HBO þáttum, I Love LA - kynslóðarportretti í borg englanna þar sem kaldhæðnin drýpur af hverju strái og The Pitt - læknadrama í Pittsburgh með kerfisádeilu.
Og svo eru það íþróttir. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson segir okkur frá frændum okkar í Færeyjum sem unnu sinn fyrsta leik á EM um helgina, þegar þeir sigruðu Svartfellinga.
Fréttir
Fréttir
Mikil spenna hefur ríkt á Alþjóðaefnahagsþinginu í Davos í Sviss í dag. Bandaríkjaforseti kveðst áfram staðráðinn í að taka yfir Grænland og að án hans væri Atlantshafs-bandalagið úr sögunni.
Bandaríska þinginu hefur ekki tekist að standa upp-i í hárinu á Donald Trump fyrsta árið eftir að hann sneri aftur í Hvíta húsið, segir Silja Bára Ómarsdóttir, rektor og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum.
Margir bílar eru óökufærir eftir árekstra í mikilli hálku á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Það styttist í úrslitaleik Íslands og Ungverjalands um efsta sæti F-riðils á Evrópumótinu í handbolta. Hundruðum flugsæta hefur verið bætt við til þess að koma íslenskum stuðningsmönnum til Svíþjóðar.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Alþjóðakerfinu er mikil hætta búin um þessar mundir segir Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur og ekki síst róa Vladimír Pútin og Donald Trump að því öllum árum að kollsteypa því með valdi og hótunum um beitingu valds og viðskiptaafls. Leiðtogar heims koma saman í litlum skíðabæ í Sviss um þessar mundir og þar ætlar Trump hvergi að hvika frá áformum um innlimun Grænlands.
Þótt almennt sé talið að það sé hagkvæmast að reka stór sveitarfélög og fjölmennari sveitarfélög ættu að geta veitt bestu þjónustuna, sýnir ný könnun að ef íbúafjöldinn fer yfir tuttugu þúsund finnst íbúunum þjónustan fara versnandi.
219 daga rannsókn lögreglu á Edition-málinu er lokið. Það er nú í höndum héraðssaksóknara að ákveða að gefa út ákæru eða ekki. Frönsk kona er í farbanni, grunuð um að hafa banað eiginmanni sínum og dóttur.
Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalistinn:
Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Valentínus.
Miller, Glenn and his Orchestra - String of pearls.
Bryndís Halla Gylfadóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Sigurður Ingvi Snorrason - Plutôt blanche qu'azurée = Frekar hvítt en himinblátt : fyrir klarínettu selló o.
Adapter - Ferskeytla.
Anfinsen, Björn Atle, Djäss - Vetrarsól.

frá Veðurstofu Íslands
Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Áður á dagskrá veturinn 2008-2009
Í Tónleiknum í dag verður leikinn strengjakvartett eftir Antonin Dvorak. Hann var af fátæku fólki kominn ólíkt flestum öðrum tónlistarmönnum þessa tíma, fæddur árið 1841. Faðir hans starfaði sem slátrari og vildi að sonurinn fetaði í fótspor sín, en sendi hann þó í tíma í fiðluleik og söng. Sonurinn kaus að feta tónlistarbrautina og vann fyrir sér sem fiðluleikari, organisti og tónlistarkennari, og fyrstu tónverkum hans var illa tekið. Hann lét samt engan bilbug á sér finna og samdi áfram ótrauður, og loks þegar hann var kominn á fertugsaldurinn fór sól hans að rísa svo um munaði.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Tónlistin í þættinum:
Hörpusveinn eftir Skúla Halldórsson, textann samdi Jóhannes úr Kötlum. Kristinn Hallsson syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem leikur undir stjórn Páls Pampichlers Pálssonar. Hljóðritað í Háskólabíói 1964.
Sónata í A-dúr eftir César Franck.
Sif Margrét Tulinius leikur á fiðlu og Richard Simm á píanó.
Þættirnir verksins eru:
I. Allegretto ben Moderato
II. Allegro
III. Recitativo - Fantasia
IV. Allegretto poco mosso
Upptaka fór fram í Salnum í Kópavogi í júlí 2025. Útgefið sama ár á plötunni Beethoven & Franck.
Sortnar þú ský, þjóðlag við texta eftir Jón Thoroddsen. Sigfús Einarsson útsetti. Liljukórinn syngur undir stjórn Jóns Ásgeirssonar.
Kona og tungl (úr Þremur myndum) eftir Huga Guðmundsson. Verk samið til minningar um Emil Thoroddsen og innblásið af málverkum eftir Emil. Hljóðritun gerð á tónleikum á tónlistarhátíðinni Myrkum músíkdögum árið 2017 í Norðurljósum Hörpu - tónleikum til heiðurs Emil Thoroddsen. Þetta var heimsfrumflutningur verksins.
Flytjendur eru Caput, Hljómeyki og Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari. Stjórnandi er Marta Guðrún Halldórsdóttir.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Okjökull fyrrverandi og Hofsjökull eystri eru viðfangsefni vísindagreinar sem birtist nýverið í alþjóðlega vísindaritinu annals of glaciology. Því var lýst yfir fyrir tólf árum að Okjökull væri horfinn. Hofsjökull eystri tórir enn, en talið að hann muni hverfa að óbreyttu eftir þrjátíu og fimm til fjörutíu ár. Eyjólfur Magnússon frá Jarðfræðistofnun háskóla íslands og Hrafnhildur Hannesdóttir frá Veðurstofu Íslands eru meðal höfunda greinarinnar. Við spjöllum við þau í upphafi þáttar.
Við hringjum síðan austur á land og heyrum í Jóni Birni Hákonarsyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sambandið er að fara af stað með átak til að auka þátttöku almennings í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Meira um það um miðbik þáttar.
Við ræðum síðan jafnrétti kynjanna í lok þáttar. Í fyrra voru liðin fimmtán ár frá setningu laga um hlutföll kynja í stjórnum fyrirtækja. Þau fara fram á að hlutfall kvenna sé þar 40%. Ásta Dís Óladóttir prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fleiri birtu grein á dögunum í ritinu Stjórnmál og stjórnsýsla. Þar er farið yfir þróun mála frá setningu laganna fyrir fimmtán árum, áhrif þeirra og viðhorf til frekari aðgerða. Ásta Dís ætlar að segja okkur frá niðurstöðunum á eftir.
En fyrst eru það jöklarnir.
Tónlist í þættinum:
Right Down the Line - Bonnie Raitt
Heat Lightning - Mitski

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein stendur fyrir vitundarvakningu sem hefst á sunnudaginn í Hörpu þar sem perluarmböndin með áletrunni „lífið er núna“ eru perluð og seld. Sólveig Ása Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krafts, kom í þáttinn en hún þekkir það af eigin raun að berjast við krabbamein. Með henni kom Eva Sigrún Guðjónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Krafts, til að segja okkur betur frá málefninu.
Laugardaginn 31. janúar tekur Ástvaldur Zenki Traustason formlega við stöðu ábóta Zen á Íslandi. Ástvaldur Zenki hefur verið nemandi Jakusho Kwong-roshi í hart nær 30 ár og tekur nú við stöðu hans sem ábóti og aðal kennari Zen á Íslandi. Jakusho-roshi er upphafsmaður Zen á Íslandi og kom árlega til Íslands í um 25 ár.
Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag talaði Einar um veðrið og tíðina hér heima, flughálkuna og af hverju hún myndast þó það sé hiti í lofti. Svo var það veðurspáin framundan, kuldahvirfill Stóri Boli vestan Grænlands sem kemur æðandi yfir N-Ameríku, en virðist síðan ætla hverfa fljótt aftur. Það er kalt í Austur-Evrópu og stríð í Úkraínu. Einar rifjaði upp þrjá óvenjulega kalda vetur 1940-1942 sem höfðu áhrif á gang síðari heimstyrjaldarinnar og Vetrarstíðið í Finnlandi. Þessir þrír vetur voru allir sérlega mildir hér á landi.
Tónlist í þættinum:
Austurstræti / Laddi (Þórhallur Sigurðsson)
Egils appelsín / Spilverk þjóðanna (Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson, Sigurður Bjóla Garðarsson, Sveinbjörn Egilsson og Kristján Jónsson)
Röndótta mær / Jakob Frímann Magnússon (Jakob Frímann Magnússon)
Don’t Try to Fool Me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Í bókinni Ástarkraftur: Undirstöður ástarfræða er lagður grunnur að ástarrannsóknum í íslensku samhengi. Fjöldi höfunda á skrif í bókinni en það eru Silja Bára Ómarsdóttir og Berglind Rós Magnúsdóttir sem ritstýra henni. Jóhannes Bjarki ræðir við Berglindi Rós og Önnu Guðrúnu Jónsdóttir sem kynnti hugtakið í doktorsritgerð sinni árið 1991.
Brynja Hjálmsdóttir sér um sjónvarpið í Lestinni. Að þessu sinni segir hún frá tveimur HBO þáttum, I Love LA - kynslóðarportretti í borg englanna þar sem kaldhæðnin drýpur af hverju strái og The Pitt - læknadrama í Pittsburgh með kerfisádeilu.
Og svo eru það íþróttir. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson segir okkur frá frændum okkar í Færeyjum sem unnu sinn fyrsta leik á EM um helgina, þegar þeir sigruðu Svartfellinga.

Miðnæturfréttir.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Leikmannasamtök Íslands vilja fræða ungt fótboltafólk um það sem gerist eftir að fótboltaferlinum lýkur. Allt of algengt er að fótboltafólk mennti sig ekki og sé jafnvel ekki meðvitað um hvort það fái laun sem verktakar eða launþegar. Það getur því tekið við ákveðin óvissa þegar faðir tími skrúfar fyrir boltann. Þessu vilja leikmannasamtökin breyta og horfa út fyrir landsteinana í leit að fyrirmyndum. Sif Atladóttir, fótboltakempa og framkvæmdastjóri Leikmannasamtakanna mætti til okkar í spjall.
Sníkjudýrið brúnn hundamítill greindist á dögunum á hundi sem var farið með til dýralæknis vegna kláða og útbrota í fési. Matvælastofnun hvetur alla hundaeigendur til að vera á varðbergi svo að brúni hundamítillinn verði ekki landlægur hér á landi. Einn af þeim sem þarf að hafa þetta í huga er Steinþór Hróar Steinþórsson, Steindi Jr., sem eignaðist nýlega hundinn Guinnes. Fáir óttast skógarmítilinn jafn mikið og Steindi og því spurðum við hann hvernig fréttir um brúna hundamítilinn slá hann og Guinnes litla.
Heimsmyndin breytist ört þessa dagana og mætti segja að hún stjórnist af því hvoru megin Donald Trump fari fram úr rúminu á morgnanna. Ísland virðist ætla að sleppa við fyrstu atrennu hefndaraðgerða sem Trump ætlar fara í gegn löndum sem styðja Grænland en hversu lengi hægt er að treysta á það veit enginn. Við fengum til okkar Þórdísi Kolbrúnu Reykjfjörð Gylfadóttur og Sigmar Guðmundsson úr utanríkismálanefnd Alþingis til að ræða stöðuna sem komin er upp.
Íbúar á Húsavík ráku upp stór augu í sumar þegar skemmtiferðaskip sem innihélt hóp Bandaríkjamanna sem stunda makaskipti lagðist að bryggju. Ferðalag hópsins vakti skiljanlega mikla athygli en þeir sigldu í kringum landið og skiptust á mökum hver við annan og áhugasama. Þetta skip og þessir góðglöðu gestir voru í sérstöku hlutverki á þorrablóti Húsvíkinga um helgina og formaður þorrablótsnefndarinnar, Helga Dóra Helgadóttir, sagði okkur betur frá því.
Bláa hafið stendur þétt við bakið á strákunum okkar á EM í handbolta. Ein þeirra sem mætt er til Svíþjóðar er Áslaug Þorsteinsdóttir eldhress amma, sem er svo sannarlega ekki á sínu fyrsta stórmóti í handbolta. Við heyrðum í Áslaugu og spurðum hvernig stemningin sé ytra á keppnisdegi en Ísland mætir fyrnasterkum Ungverjum síðar í dag.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Pottþétt diskarnir, Midlake, Teitur Magnússon, leikarinn Snoop Dog, Ólöf Arnalds og Harry Styles.
Lagalisti fólksins:
STUÐMENN – Popplag Í G Dúr
BECK – Sexx Laws
LENNY KRAVITZ – Rock 'n' Roll Is Dead
TAKE THAT – Back for Good
OF MONSTERS & MEN – Ordinary Creature
PAT BENATAR – Hit Me with Your Best Shot
CMAT – Ready
JOHN GRANT – Marz
MIDLAKE – Roscoe
ADDISON RAE – Headphones On
TEITUR MAGNÚSSON – Gullauga
PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON & BENNI HEMM HEMM – Eitt af blómunum
HAMPARAT – Konami feat. DJ FLUGVÉL OG GEIMSKIP
THE STRANGLERS – No More Heroes
OASIS – Who Feels Love
SUEDE – Stay Together
THE CURE – Pictures of You
ROBYN – Dopamine
LOLA YOUNG – Messy
HAYLEY WILLIAMS – Good Ol' Days
THE BETHS – Straight Line Was a Lie
DR. DRE & SNOOP DOGG – Nuthin' but a 'G' Thang
DIKTA – From Now On
PÁLMI GUNNARSSON – Vegurinn Heim
TAME IMPALA – Dracula
MOBY – Porcelain
VALDIMAR – Karlsvagninn
BRYAN FERRY – Slave to Love
PORTUGAL. THE MAN – Tanana
NÝDÖNSK – Klæddu Þig
CHRISTINE AND THE QUEENS – Girlfriend (Ft. Dâm-Funk)
WARMLAND – All for All
HARRY STYLES – As It Was
ÓLÖF ARNALDS – Heimurinn Núna
GOSSIP – Heavy Cross
SÍÐAN SKEIN SÓL – Nóttin, Hún er Yndisleg
INCUBUS – Drive
EGILL ÓLAFSSON – Ísland er land þitt (hátíðarútgáfa)

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Fljúgandi hálka mætti landsmönnum víða í morgun. Hún hefur valdið vegfarendum á höfuðborgarsvæðinu mestum vandræðum, tugir hafa leitað á bráðamóttöku og þess eru dæmi að mannlausir bílar hafi runnið af stað.
Evrópusambandið undirbýr víðtækar fjárfestingar á Grænlandi og vill auka samstarf í öryggismálum á norðurslóðum. Þetta kom fram í ræðu forseta framkvæmdastjórnar ESB á Davos-ráðstefnunni í morgun.
Íslendingur sem býr í Bandaríkjunum segir ótta í loftinu hjá fólki sem ekki styður embættisverk Bandaríkjaforseta. Ár er í dag síðan hann tók við embætti á ný.
Ingibjörg Isaksen sækist eftir að verða formaður Framsóknarflokksins. Hún hefur ein lýst yfir framboði, kjósa á nýjan formann á flokksþingi eftir rúmar þrjár vikur.
Það kom eiganda hópferðafyrirtækis í Norðurþingi á óvart að skólaakstur frá Raufarhöfn til Öxarfjarðar hefði verið færður eiginmanni skólastjóra Öxarfjarðarskóla. Sviðsstjóri velferðarsviðs segir útboð ekki hafa komið til greina.
Ástralir hafa hert löggjöf um skotvopnaeign og hatursorðræðu eftir hryðjuverkaárás á Bondi-ströndinni í síðasta mánuði.
Ísland mætir Ungverjalandi í kvöld í lokaleik sínum í riðlakeppni EM karla í handbolta. Stigin sem vinnast í leiknum fylgja liðunum áfram í milliriðil.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Margrét Erla sat við hljóðnemann. Laddi á afmæli í dag og því voru spiluð örfá lög með kappanum. Einnig voru spiluð lög í mörgæsatakti þar sem lögreglan mælir með mörgæsagangi í dag í hálkunni. Haukur Páll á plötu vikunnar sem heitir Kyrrðin.
Friðrik Dór Jónsson, Moses Hightower – Bekkjarmót og jarðarfarir
Coldplay – Clocks
Amor Vincit Omnia – 100.000 km/klst.
Dolly Parton – Coat of Many Colours
Janis Joplin – Piece of My Heart
Helgar – Absurd
Daniil, Frumburður – Bráðna
Hipsumhaps – Á hnjánum
Laddi – Búkolla
Lead Belly – Where Did You Sleep Last Night
The Weeknd – Blinding Lights
Wet Leg – Pokémon
SHAED – Trampoline
Birnir, Tatjana – Efsta hæð
Haukur Páll – EMDR
Doechii, SZA – Girl, Get Up
Paolo Nutini – Last Request
Cameron Winter – Love Takes Miles
Tómas R. Einarsson, GDRN – Pínu sein
Bríet – Cowboy Killer
Aretha Franklin – Respect
Hercules & Love Affair, Hips & Lips – Someone Else Is Calling
Romy – Love Who You Love
Take That – How Deep Is Your Love
Þórhallur Sigurðsson – Fatafrík
Kælan mikla – Mánadans
Una Torfadóttir, CeaseTone – Þurfum ekki neitt
Tame Impala – Dracula
Emilíana Torrini – Perlur og svín
Jeff Tweedy – Lou Reed Was My Babysitter
The Pretenders – Brass in Pocket
Sabrina Carpenter – Manchild
Valgeir & Handboltalandsliðið, Laddi – Gerum okkar besta (Handboltalandsliðið)
Nýdönsk – Apaspil
Úlfur Úlfur – Börnin og bítið
Oasis – Wonderwall
Kaleo – I Want More
Robyn – Dopamine
Ragnhildur Gísladóttir – Þorragleðigleðigaman
KK – Kærleikur og tími
Isobel, Prins Thomas – Linger
Cyndi Lauper – Time After Time
Haukur Páll, natanxo – Gegnum reykinn
Beyoncé – Texas Hold ’Em
Laddi og Gísli Rúnar – Túri Klúri
Metronomy – The Look
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Það eru áfram auknar líkur á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni. Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi en þar hafa um 20 milljónir rúmmetra af kviku safnast fyrir frá síðasta eldgosi í júlí. Hættumat helst þó óbreytt til 3. febrúar nema breytingar verði á virkninni. Veðurstofa Íslands greindi frá þessu í morgun og Síðdegisútvarpið ræddi við Kristínu Jónsdóttur sem er deildarstjóri eldvirkni, jarðskjálfta og jarðhniks á Veðurstofunni. Kristínu hefur nefnilega á síðustu árum tekist að útskýra vel fyrir okkur hinum atburðarrásina í iðrum jarðar á þann hátt að við skiljum.
Það er þjóðarsorg á Spáni vegna lestarslyss sem þar varð í fyrrakvöld en 40 hið minnsta dóu og tugir slösuðust. Jóhann Hlíðar Harðarsson, fréttaritari okkar á Spáni hefur fylgst með fréttum af þessu hræðilega slysi og fer yfir það helsta sem þó er vitað um það. Jóhann Hlíðar leitaði líka út fyrir spænska landsteina og sagði frá austurrískri belju sem talin er sú gáfaðasta í heimi.
Þegar Aron Palomares, læknir á bráðamóttöku Landspítalans kom á vaktina klukkan 8 í morgun voru tólf manneskjur á biðstofunni að bíða eftir að komast að hjá lækni eftir að hafa dottið í hálku og slasast. Það var enda svakaleg hálka á göngustígum á höfuðborgarsvæðinu í morgun og fram eftir degi. Um miðjan dag höfðu sjötíu leitað á bráðamóttökuna eftir að hafa slasast í hálkunni. Aron ræddi við Síðdegisútvarpið þegar vaktinni hans á spítalanum var að ljúka.
Óli Þór Árnason, veðurfræðingur leit við hjá okkur og fór yfir það hvers konar aðstæður skapa slíka hálku og hvort búast megi við hálku á næstu dögum.
Það var gríðarlegt álag á Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðinsins í nóvember, desember og nú í byrjun árs. Ástæðan var fyrst og fremst flensa sem hrjáði fjölda Höfuðborgarbúa en ástandið hefur skánað, pestin er í rénun og Ingibjörg Rós Kjartansdóttir, fagstjóri hjúkrunar á Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins fóryfir stöðuna í Síðdegisútvarpinu. Ingibjörg Rós fylgist grannt með öllum tölfræðilegum upplýsingar um til að mynda komur á heilsugæsluna og símtöl í vaktsímann 1700.
„Kveðum niður Ungverjagrýluna“ eru ummæli sem við lesum á miðlum í dag og þar er ekki verið að vísa í einhverja eiginlega grýlu eins og við þekkjum hana heldur vitaskuld ungverska karlalandsliðið í handbolta sem strákarnir okkar heyja einvígi við núna í kvöld.Við höfum mætt þessari grýlu síðustu árin og upplifað sár töp en nú er mál að linni, eða hvað? Við spáðum í viðureign dagsins með Helgu Margréti Höskuldsdóttur af Íþróttadeildinni sem fer fyrir frábæru teymi í Stofunni hér, fyrir og eftir leiki og við lesum í væntingar okkar og vonir.
Fréttir
Fréttir
Mikil spenna hefur ríkt á Alþjóðaefnahagsþinginu í Davos í Sviss í dag. Bandaríkjaforseti kveðst áfram staðráðinn í að taka yfir Grænland og að án hans væri Atlantshafs-bandalagið úr sögunni.
Bandaríska þinginu hefur ekki tekist að standa upp-i í hárinu á Donald Trump fyrsta árið eftir að hann sneri aftur í Hvíta húsið, segir Silja Bára Ómarsdóttir, rektor og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum.
Margir bílar eru óökufærir eftir árekstra í mikilli hálku á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Það styttist í úrslitaleik Íslands og Ungverjalands um efsta sæti F-riðils á Evrópumótinu í handbolta. Hundruðum flugsæta hefur verið bætt við til þess að koma íslenskum stuðningsmönnum til Svíþjóðar.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Alþjóðakerfinu er mikil hætta búin um þessar mundir segir Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur og ekki síst róa Vladimír Pútin og Donald Trump að því öllum árum að kollsteypa því með valdi og hótunum um beitingu valds og viðskiptaafls. Leiðtogar heims koma saman í litlum skíðabæ í Sviss um þessar mundir og þar ætlar Trump hvergi að hvika frá áformum um innlimun Grænlands.
Þótt almennt sé talið að það sé hagkvæmast að reka stór sveitarfélög og fjölmennari sveitarfélög ættu að geta veitt bestu þjónustuna, sýnir ný könnun að ef íbúafjöldinn fer yfir tuttugu þúsund finnst íbúunum þjónustan fara versnandi.
219 daga rannsókn lögreglu á Edition-málinu er lokið. Það er nú í höndum héraðssaksóknara að ákveða að gefa út ákæru eða ekki. Frönsk kona er í farbanni, grunuð um að hafa banað eiginmanni sínum og dóttur.
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Lagalistinn
VÆB - Þetta reddast
Ásgeir - Against the Current
Dan Van Dango - Fjarri
Jane Telephonda - Undir sólinni
Sigga Ózk - Ciao ciao Bella
Helena Guðjohnsen - Together
Godchilla - I Love you
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Doddi hitaði upp fyrir leik Íslebdinga og Ungverja á EM karla í handbolta sem Þorkell Gunnar lýsti í beinni útsendingu.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Doddi spilaði nokkur vel valin lög eftir sigur Íslendinga gegn Ungverjum á EM karlalandsliða í handbolta.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í þessum þætti rifjum við upp brot úr ýmsum Rokklandsþáttum frá árinu sem var að kveðja. Við heyrum í Björk – Roslíu – Páli Óskari og benna Hemm hemm – Atla rock´n roll ferðalangi – Hafdísi Huld – Hildi Völu – Ellen kristjáns - Robert Plant og Led Zeppelin – Bryan Adams – Steinari Berg og Mugison t.d.